Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Fjölskylduráð

3. July 2018 08:15

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Meeting 365

Attended

  • Valdimar Víðisson formaður
  • Helga Ingólfsdóttir varaformaður
  • Guðbjörg Oddný Jónasdóttir aðalmaður
  • Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður
  • Árni Stefán Guðjónsson áheyrnarfulltrúi
  • Hulda Sólveig Jóhannsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Sævar Gíslason varamaður

Auk þeirra sat Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fundinn.

Secretary

  • Dagbjört Gunnarsdóttir ritari fjölskylduráðs

Auk þeirra sat Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fundinn.

  1. Almenn erindi

    • 1806149 – Ráð og nefndir 2018-2022, kosningar

      Á fundi bæjarstjórnar 20.júní sl. var eftirfarandi tekið fyrir:

      1806149 – Ráð og nefndir 2018-2022, kosningar

      Teknar fyrir kosningar í ráð og nefndir.
      Kosið til eins árs:

      Fjölskylduráð

      Aðalmenn:
      Valdimar Víðisson Brekkuás 7, formaður XB
      Helga Ingólfsdóttir Brekkugötu 26, varaformaður XD
      Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Norðurbakka 11c, XD
      Árni Rúnar Þorvaldsson, Stekkjarhvammi 5 xS
      Sigurður Þ. Ragnarsson, Eskivöllum 5 xM
      Árni Stefán Guðjónsson, Hverfisgötu 35 xC
      Áheyrnarfulltrúi
      Hulda Sólveig Jóhannsdóttir, Glitvöllum 5 xL Áheyrnarfulltrúi

      Varamenn:
      Erla Ragnarsdóttir Glitvangi 15, XD
      Magna Björk Ólafsdóttir Dalsás 10b, XB
      Sólon Guðmundsson Efstuhlíð 31, XD
      Svava Björg Mörk, Fífuvöllum 17 xS
      Sævar Gíslason, Engjavöllum 5b XM
      Auðbjörg Ólafsdóttir, Hverfisgötu 52b xC
      Varaáheyrnarfulltrúi
      Lilja Eygerður Kristjánsdóttir, Blómvöllum 14 xL
      Varaáheyrnarfulltrúi

    • 1406376 – Málskotsnefnd, kosning

      Kosning þriggja fulltrúa fjölskylduráðs í málskotsnefnd.

      Fjölskylduráð tilnefnir Valdimar Víðisson formann, Helgu Ingólfsdóttur varaformann og Árna Rúnar Þorvaldsson fulltrúa sína í málskotsnefnd.

    • 1806349 – Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, innleiðing

      Á fundi bæjarstjórnar þ. 20.júní sl. var eftirfarandi tillögu vísað til umfjöllunar í fjölskylduráði:

      “Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna
      Viðreisn leggur til að vinnu við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna hefjist strax. Viðreisn leggur til að Fjölskylduráði verði falið að taka þetta mál til vinnslu með það að markmiði að innleiðingarferlið geti hafist strax í haust.”

      Fjölskylduráð þakkar framkomna tillögu um þetta mikilvæga mál og felur sviðsstjóra að vinna áfram í málinu í samræmi við fyrirliggjandi minnisblað.

    • 1806347 – Fjölmenningarráð Hafnarfjarðar, móttökuáætlun nýbúa

      Á fundi bæjarstjórnar þann 20. júní var eftirfarandi tillögu meirihluta bæjarstjórnar vísað til fjölskylduráðs.

      “Fjölmenningarráð Hafnarfjarðar og móttökuáætlun nýbúa
      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að gerð verði móttökuáætlun fyrir innflytjendur og að fjölmenningarráð verði tekið til skoðunar með það að markmiði að það hafi styrk til að vera bæjarstjórn til ráðgjafar um málefni og hagsmuni innflytjenda.

      Fjölskylduráð þakkar tillöguna og felur sviðsstjóra að undirbúa kynningu um verkefni sem hafa verið á forræði fjölmenningarráðs.

    • 1806346 – Félagslegar íbúðir, gæludýrahald

      Á fundi bæjarstjórnar þann 20.júní 2018 var eftirfarandi tillögu vísað til frekari umfjöllunar í fjölskylduráði.

      “Gæludýrahald í félagslegum íbúðum
      Fulltrúar Samfylkingar leggja til að farið verði að dæmi Kópavogs um breytingar á reglum um gæludýrahald í félagslegum íbúðum háð ákveðnum skilyrðum.”

      Fjölskylduráð felur sviðsstjóra að leggja fram tillögu að breytingum á reglum um gæludýrahald í félagslegum íbúðum sveitarfélagsins til samræmis við lög um fjöleignarhús. Jafnframt er óskað eftir umsögn frá Umhverfis- og framkvæmdarráði.

    • 1806356 – Fjölgun úrræða fyrir fólk með heilabilun

      Á fundi bæjarstjórnar þann 20. júní s.l. var eftirfarandi tillögu frá fulltrúa Bæjarlistans vísað til fjölskylduráðs.

      “Fjölgun úrræða fyrir fólk með heilabilun
      Óskað verði eftir samstarfi við félagasamtök (Alzheimersamtökin) um opnun nýrrar dagdvalar fyrir fólk með heilabilun, til viðbótar við þá þjónustu sem veitt er í Drafnarhúsi og í þeim sama anda. Horft verði til þjónustukjarna við Sólvang varðandi staðsetningu.”

      Sviðsstjóra er falið að vinna áfram í málinu og er óskað eftir kynniningu í ráðinu á stöðu málaflokksins.

    • 1806357 – NPA samningar, fjölgun

      Á fundi bæjarsjórnar þann 20. júní s.l. var eftirfarandi tillögu fulltrúa Bæjarlistans vísað til fjölskylduráðs.

      “NPA samningar, fjölgun
      Þegar í stað verði opnað fyrir fjölgun NPA samninga á vegum félagsþjónustunnar í Hafnarfirði, í samráði við notendur. Þjónustuformið NPA (notendastýrð persónuleg aðstoð) sem hingað til hefur verið rekið sem tilraunaverkefni hefur nú fengið stoð í lögum og hugmyndafræðin um sjálfstætt líf verið innleidd í öll ákvæði laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Jafn réttur íbúa bæjarins til að stjórna eigin lífi er forsenda þess að þjónusta bæjarins standist ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks um ,,að fatlað fólk hafi tækifæri til þess að velja sér búsetustað og hvar og með hverjum það býr, til jafns við aðra, og að því sé ekki gert að eiga heima þar sem tiltekið búsetuform ríkir.”

      Fjölskylduráð óskar eftir kynningu á þessum málaflokki og hvernig sveitarfélagið hefur staðið að málum.

    • 1806358 – Stefnumótun í búsetumálum fatlaðra

      Á fundi bæjarstjórnar þann 20. júní s.l. var eftirfarandi tillögu fulltrúa Bæjarlistans vísað til fjölskylduráðs.

      “Stefnumótun í búsetumálum fatlaðra
      Farið verði í heildstæða stefnumótun í samráði við notendur um framtíðarfyrirkomulag búsetumála fatlaðs fólks í sveitarfélaginu, meðal annars með tilliti til þjónustu í eigin húsnæði. Farið verði yfir kosti og galla ólíkra búsetuúrræða og þarfagreining gerð á hverju úrræði fyrir sig. Niðurstöður vinnunnar verði hluti af húsnæðisstefnu Hafnarfjarðarbæjar, sem nú er í vinnslu.”

      Sviðsstjóra er falið að fylgja tillögunni eftir í samræmi við húsnæðisstefnu Hafnarfjarðarbæjar.

    • 1806359 – Atvinnumál fatlaðra

      Á fundi bæjarstjórnar þann 20. júní s.l. var eftirfarandi tillögu fulltrúa Bæjarlistans vísað til fjölskylduráðs.

      “Atvinnumál fatlaðs fólks
      Aukinn verði stuðningur við atvinnumál fatlaðra í bænum, þannig að hjá Hafnarfirði sem vinnustað verði störfin fleiri og fjölbreyttari og á öllum sviðum starfseminnar. Gert verði tilraunaverkefni með kaffihús í anda GÆS í anddyri Ásvallalaugar, þar sem aðgengi er eins og best verður á kosið og aðstaða fyrir veitingasölu hefur verið til staðar frá opnun, en ekki verið tekin í notkun sem slík.”

      Málið verður tekið fyrir við fjárhagsáætlunargerð fyrir næsta ár. Sviðinu falið að skoða möguleika á að koma tillögunni um kaffihús í anda GÆS í framkvæmd.

    • 1704017 – Aldraðir, heilsuefling

      Fjölskylduráð þakkar fyrir kynninguna og lýsir ánægju sinni með hversu vel hefur tekist til með verkefnið fram að þessu.

    • 1704040 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2018 og 2019-2021

      Lagt fram til kynningar.

Suggestion portal