In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
á fjarfundi
Einnig sat Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri, fundinn.
Sviðsstjóri fer yfir stöðuna á sviðinu í ljósi Covid-19.
Brynjar Örn Svavarsson, starfsmaður ráðgjafar- og húsnæðisteymis mætir á fundinn og kynnir verkefnið Hefjum störf. Einnig liggur fyrir fundinum samningur milli Hafnarfjarðarkaupstaðar og Vinnumálastofnunar varðandi verkefnið.
Fjölskylduráð þakkar Brynjari fyrir góða kynningu. Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi samning og felur sviðsstjóra að ganga til samninga við Vinnumálastofnun.
Sviðsstjóri kynnir stöðuna á verkefninu Barnvænt samfélag.
Fjölskylduráð felur sviðsstjóra að leita eftir starfsmanni á ráðningastyrk til að koma inn í verkefnið með verkefnastjóra. Verkefnið er umfangsmikið og mikilvægt að standa vörð um þá vinnu sem er búin og efla enn frekar þá vinnu sem framundan er.
Soffía Ólafsdóttir, deildarstjóri ráðgjafar- og húsnæðismála mætir til fundarins og fer yfir stöðu málsins og umbeðna kostnaðargreiningu sem óskað var eftir á fundi fjölskylduráðs þann 12.mars s.l.
Fjölskylduráð þakkar Soffíu fyrir góða yfirferð. Minnisblað lagt fram. Fjölskylduráð samþykkir að taka í notkun 6 smáhýsi sem tímabundið búsetuúrræði fyrir einstaklinga með alvarlegan geð- og vímuefnavanda. Miðað verði við hugmyndafræði sem gengur undir heitinu „housing first“ skaðaminnkun og valdeflingu og lögð áhersla á að veita stuðning og virkniúrræði samhliða búsetuúrræði. Vísað í fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2022.
Lagt fram erindi frá NPA miðstöðinni varðandi kröfu um hækkun á framlögum til NPA samninga.
Núgildandi reglur Hafnarfjarðarbæjar um NPA þjónustuformið tóku gildi á síðasta ári. Nú stendur yfir yfirferð yfir innsend gögn frá notendum í samræmi við gildandi reglur og þegar þeirri yfirferð lýkur mun verða tekin afstaða til þess hvort núgildandi fyrirkomulag tímagjalds er í samræmi við samningsforsendur við notendur.
Fulltrúar Samfylkingarinnar og Bæjarlistans vísa í bókun sína frá 12. mars sl.
Lögð fram til upplýsinga umsókn um styrk vegna stuðnings við að rjúfa félagslega einangrun, viðhalda færni og auka vellíðan eldri borgara á tímum Covid-19.
Samstarfssamningur um heilsueflingar- og rannsóknarverkefnið Fjölþætt heilsuefling 65 í Hafnarfirði – Heilsuefling fyrir eldri aldurshópa.
Minnisblaði og samningi um heilsueflingu eldri borgara vísað til Innkauparáðs til umsagnar.
Umfjöllun um íþrótta- og tómstundastyrki eldri borgara.
Frístundastyrkur eldri borgara er tekjutengdur þannig að þeir einstaklingar sem eru með 391.000 kr. eða minna hafa rétt á frístundastyrk. Fjölskylduráð hefur fengið ábendingar um að þessi tekjuviðmið séu of lág. Fjölskylduráð felur sviðinu að endurskoða þessi tekjumið og koma með tillögu að rýmkun tekjuviðmiða þannig að fleiri geti sótt frístundastyrk.
Lögð fram umsókn frá Hjálparstarfi Kirkjunnar dags. 16.mars 2021, Skjólið-opið hús fyrir konur sem eru heimilislausar. Á fundi bæjarráðs þann 25.mars 2021 var erindinu vísað til umræðu og úrvinnslu í fjölskylduráði.
Hér er um að ræða styrkbeiðni til sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Sviðsstjóra falið að taka samtal um þessa styrkveitingu á vettvangi SSH og kanna hvað önnur sveitarfélög ætli að leggja í þetta verkefni.
Lögð fram fyrirspurn Miðflokksins varðandi kvartanir í félagslegu húsnæði.
Fyrirspurnir frá fulltrúa Miðflokksins vegna kvartana yfir íbúum í félagslegu húsnæði á vegum Hafnarfjarðarbæjar árin 2008 til og með 2020
1. Hver er heildarfjöldi félagslegra eigna í Hafnarfirði? 2. Hversu margar umkvartanir berast fjölskyldusviði vegna íbúa í félagslegu húsnæði á ári, talið frá árinu 2008 (flokkað eftir árum)? 3. Hversu mörgum íbúum í sama félagslega húsnæðinu hefur verið kvartað yfir einu eða tvisvar til fjölskyldusviðs? 4. Hversu mörgum íbúum í sama félagslega húsnæðinu hefur verið kvartað yfir þrisvar eða oftar til fjölskyldusviðs? 5. Hvaða verkferlar eru virkjaðir á fjölskyldusviði þegar umkvörtun berst vegna íbúa í félagslegu húsnæði? 6. Hvaða verkferlar eru virkjaðir á fjölskyldusviði þegar ítrekaðar umkvartanir berast vegna íbúa í félagslegu húsnæði? 7. Hversu mörg tilvik hafa leyst farsællega? 8. Hvað þarf að koma til svo að útburður eigi sér stað? 9. Hversu mörg tilvik sem tengjast umkvörtunum hafa endað með útburði (fjöldi og hlutföll) 10. Þegar útburður á sér stað, hversu langan tíma tekur það ferli að jafnaði frá því ákvörðun er tekin um útburð þar til viðkomandi er borinn út? 11. Geta íbúar í félagslegu húsnæði, sem ítrekað hefur verið kvartað undan, búið áfram í félagslegu eigninni enda þótt leigusamningur sé útrunninn og ekki endurnýjaður og uppsagnarfrestur liðinn? 12. Ef lögregla er kvödd á vettvang í þeim tilvikum sem íbúar í félagslegu húsnæði koma við sögu og varðar sambýli við nágranna fær þá fjölskyldusvið tilkynningu um slíkt? 13. Hvert er hlutfall lögregluskýrslna/ umkvartana frá íbúum vegna íbúa í félagslegu húsnæði? 14. Hversu langan tíma hefur sá sem lengst hefur ekki staðið í skilum með húsaleigu í félagslegu húsnæði ekki greitt leiguna og hvaða verkferill gildir þegar leiga er komin í vanskil?
Hafnarfjörður 8.apríl 2021 Sigurður Þórður Ragnarsson, fulltrúi Miðflokksins í fjölskylduráði og bæjarfulltrúi.
Lögð fram fundargerð 4.fundar starfshóps um endurskoðun húsnæðisáætlunar.
Lögð fram fundargerð starfshóp um félagslega heimaþjónustu.