In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
á fjarfundi
Einnig sat Rannveig Einarsdóttir, sviðsstjóri, fundinn.
Sérfræðingar fjármálasviðs mæta á fundinn og fara yfir lykiltölur í þjónustu fjölskyldu- og barnamálasviðs.
Lagt fram. Umræður.
Guðmundur Sverrisson, frá fjármálasviði og Sjöfn Guðmundsdóttir, deildarstjóri stuðnings- og stoðþjónustu mæta á fundinn.
Lagðar fram upplýsingar um Jafnaðartaxta NPA samninga, kjarasamning NPA Efling o.fl.
Lagt fram. Umræður. Fjölskylduráð óskar eftir útreikningum á NPA gjaldskrá Hafnarfjarðar þegar búið er að taka tillit til styttingu vinnuvikunnar og fjölgunar álagsþrepa í launatöflu sem tekur gildi 1. maí 2022.
Fulltrúar Samfylkingar og Bæjarlista vísa í fyrri bókanir sínar um málið. Hafnarfjörður er eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem fylgir ekki þeim töxtum sem NPA miðstöðin hefur reiknað út og byggja á kjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið. Þetta þýðir að notendur NPA í Hafnarfirði búa við lakari kjör en notendur í nágrannasveitarfélögunum. Það er óásættanlegt.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar og óháðra vilja árétta að unnið er að fagmennsku við að þróa og móta umgjörð NPA samninga í Hafnarfirði í samræmi við áherslur endurskoðenda bæjarins. Það er ekki rétt að notendur NPA þjónustunnar í Hafnarfirði búi við lakari kjör en notendur í nágrannasveitarfélögum og áfram verður unnið í samráði við notendur að því að efla og þróa þetta þjónustuform í Hafnarfirði.
Arnbjörg Jónsdóttir og Hlín Pétursdóttir, ráðgjafar kynna stafrænar umsóknir um fjárhagsaðstoð.
Lagt fram til kynningar. Umræður. Fjölskylduráð þakkar Arnbjörgu Jónsdóttur og Hlín Pétursdóttur fyrir góða kynningu.
Lagðar fram upplýsingar um búsetubiðlista í málefnum fatlaðs fólks.
Lagt fram. Umræður. Búið er að samþykkja búsetukjarna fyrir fatlað fólk að Smyrlahrauni 41a skv. deiliskipulagi. Mikilvægt að byrja að undirbúa þetta verkefni sem fyrst þar sem nokkur fjöldi einstaklinga er á biðlista eftir húsnæði.
Brynjar Örn Svavarsson, virkniráðgjafi mætir á fundinn og fer yfir upplýsingar um virkni- og atvinnuúrræði sveitarfélagsins.
Lagt fram. Umræður. Fjölskylduráð þakkar Brynjari Erni Svavarssyni fyrir góða kynningu.
Sviðsstjóri fer yfir stöðuna í þjónustu fjölskyldu- og barnamálasviðs í ljósi Covid-19.
Lagt fram erindi Umboðsmanns barna varðandi mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn og rétt þeirra til þátttöku og ákvarðana.
Margrét Vala Marteinsdóttir, forstöðumaður Stuðlaskarðs mætir á fundinn og kynnir stöðu verkefnisins.
Fjölskylduráð þakkar Margréti Völu Marteinsdóttur fyrir góða kynningu.
Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju sinni með það að þessir sex einstaklingar sem koma til með að búa í íbúðarkjarnanum Stuðlaskarði geti loksins flutt inn á eigið heimili og óskar þeim til hamingju með þennan mikla og stóra áfanga. Einnig er mikið fagnaðarefni hversu margir sóttu um starf í íbúðarkjarnanum.
Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í máli nr. 1/2022-2/2022. Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar.
Lagður fram einn úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála.