Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Hafnarstjórn

25. August 2021 10:00

á hafnarskrifstofu

Meeting 1604

Attended

  • Kristín María Thoroddsen formaður
  • Magnús Ægir Magnússon aðalmaður
  • Jón Grétar Þórsson aðalmaður
  • Sigurður Þórður Ragnarsson aðalmaður
  • Guðmundur Fylkisson varamaður

Secretary

  • Lúðvík Geirsson hafnarstjóri
  1. Almenn erindi

    • 2108445 – Siglingafélagið Hafliði - bráðabirgðaaðstaða við Flensborgarhöfn

      Lagt fram bréf frá Siglingafélaginu Hafliða dags. 17. ágúst 2022 varðandi bráðabirgðaaðstöðu fyrir félagið við Flensborgarhöfn og aðgengi að setfláa.

      Hafnarstjórn bendir á að umrætt svæði er nú í vinnslu fyrir nýtt deiliskipulag Flensborgarhafnar og næsta umhverfis. Hafnarstjóra falið að fara nánar yfir málið með fulltrúa Siglingafélagsins.

    Kynningar

    • 2108219 – Fjárhags- og rekstraráætlun 2022

      Yfirferð og undirbúningsvinna fyrir gerð fjárhags- og rekstraráætlunar fyrir árið 2022. Jafnframt lagt fram minnisblað varðandi viðhalds- og framkvæmdaáætlun fyrir komandi ár.

    • 2108018 – Umhverfisuppgjör fyrir 2020

      Lagt fram umhverfisuppgjör fyrir Hafnarfjarðarhöfn vegna ársins 2020. Til fundarins mætti Kristinn Logi Auðunsson frá Klöppum.

    • 2103137 – Hafnafundur Hafnarfirði 2021

      Farið yfir stöðu undirbúnings vegna Hafnafundar í Hafnarfirði þann 3. september nk.

Suggestion portal