Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Menningar- og ferðamálanefnd

10. March 2008 08:30

á Vesturgötu 8

Meeting 102

Secretary

  • Marín Hrafnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi
  1. Almenn erindi

    • 0801209 – Styrkir nefndar 2008

      Styrkir til húsverndar.

      Nefndin samþykkti óformlega á síðasta fundi styrkveitingar til húsverndar þar sem yfirferð Húsafriðunarnefndar ríkisins hafði ekki farið fram. Nefndin samþykkir nú fyrri niðurstöðu sína og hljóta eigendur eftirtalinna húseigna vilyrði um húsverndarstyrki: Lækjargata 10b, Hverfisgata 52b, Brekkugata 11, Norðurbraut 25b, Suðurgata 38, Smyrlahraun 5 og Skerseyrarvegur 3.%0D

    • 0803068 – Þjónustuhús tjaldstæðis á Víðistaðatúni

      Teikningar af þjónustuhúsi á tjaldstæðinu á Víðistaðatúni lagðar fram til kynningar.

      Menningar- og ferðamálanefnd leggur áherslu á að þjónustuhúsið verði tilbúið áður en aðal ferðamannatíminn hefst.

    • 0801221 – Afmælisár, viðburðir.

      Lagt fram svar frá sviðsstjóra fjölskyldusviðs við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í bókun frá 13. febrúar sl.

    • 0801210 – Ferðamál, stefnumótun

      Lagðar fram sundurliðaðar tillögur fjárhagsáætlunar ferðamála 2008.

      Fjárhagsáætlunartillögur samþykktar.%0DFulltrúi Sjálfstæðisflokks óskar eftir að ferðamálafulltrúi taki saman upplýsingar um fjölda ferðamanna sem heimsóttu upplýsingamiðstöð ferðamanna 2007, skipt niður eftir mánuðum og þjóðerni. Ennfremur er óskað eftir upplýsingum um fjölda gistinátta í Hafnarfirði 2007.

    • 0710071 – Jólaþorpið í Hafnarfirði

      Rætt um þróun og stefnu.

      „Menningar- og ferðamálanefnd leggur til við fjölskylduráð að skipaður verði starfshópur til að skoða þróun og stefnu Jólaþorps. Starfshópurinn hefur það verkefni að skoða hvernig hægt sé að tengja Jólaþorpið enn betur við mannlíf og verslun í miðbæ Hafnarfjarðar og endurskoða skipulagningu og framkvæmd þess með tilliti til framangreindra atriða. Starfshópurinn skilar tillögum í formi skýrslu eigi síðar en 1. júní nk.%0D%0DLagt er til að í starfshópnum sitji fulltrúar meirihluta og fulltrúar minnihluta í menningar- og ferðamálanefnd og fjölskylduráði, starfsmaður á skipulags- og byggingarsviði sem kemur að hönnun Jólaþorpsins, fulltrúi frá Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar, fulltrúi miðbæjarsamtakanna, og starfsmenn skrifstofu menningar- og ferðamála. Menningar- og ferðamálafulltrúi er ritari starfshópsins.“%0D%0DÓlafur Kolbeinn Guðmundsson (sign)%0DMaría Kristín Gylfadóttir (sign)%0D

Suggestion portal