Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Menningar- og ferðamálanefnd

12. May 2021 09:00

í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6

Meeting 369

Attended

  • Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður
  • Þórey Anna Matthíasdóttir varaformaður
  • Sigurbjörg Anna Guðnadóttir aðalmaður

Einnig sat Sigurjón Ólafsson sviðsstjóri fundinn

Secretary

  • Andri Ómarsson verkefnastjóri

Einnig sat Sigurjón Ólafsson sviðsstjóri fundinn

  1. Almenn erindi

    • 2103163 – Áfanga- og markaðsstofa fyrir höfuðborgarsvæðið, ráðgjafahópur

      Samstarf um ferðamál og störf ráðgjafahóps um stofnun áfanga- og markaðsstofu fyrir höfuðborgarsvæðið kynnt

      Andri Ómarsson verkefnastjóri og fulltrúi Hafnarfjarðarbæjar í ráðgjafahóp um stofnun áfanga- og markaðsstofu fyrir höfuðborgarsvæðið kynnti störf hópsins.

    • 2009398 – Starfsáætlun menningar- og ferðamálanefndar 2021

      Lagt fram yfirlit yfir styrki sem söfn bæjarins hafa hlotið á árinu

      Menningar- og ferðamálanefnd fagnar þessum styrkveitingum sem eru mikilvægur liður í því að starfsemi safnanna geti blómstrað og þjónað samfélaginu með áhugaverðum verkefnum, jafnframt því að vera örvandi vettvangur listsköpunar og skapandi samtals.

    • 1811046 – Sönghátíð í Hafnarborg, samstarfssamningur

      Sönghátíð í Hafnarborg hlaut á dögunum Íslensku tónlistarverðlaunin 2021 í flokknum tónlistarviðburður ársins – hátíðir.

      Menningar- og ferðamálanefnd óskar Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur og Francisco Javier Jáuregui, stofnendum og stjórnendum Sönghátíðar í Hafnarborg, og starfsfólki Hafnarborgar innilega til hamingju!

    • 2104526 – Hellisgerði, Oddubær, umsjón

      Lögð fram tillaga varðandi umsóknir um aðstöðu í Oddubæ.

      Menningar- og ferðamálanefnd leggur til við umhverfis- og framkvæmdaráð að samið verði við Tinnu Bessadóttur.

    • 2101305 – Sumarviðburðir 2021

      Farið yfir stöðu viðburða í sumar.

      Andri Ómarsson verkefnastjóri fór yfir stöðu á viðburðahaldi í sumar. Fyrsti umsóknarfrestur um örstyrki á Björtum dögum rennur út 15. maí.

Suggestion portal