In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 05.01.11 og 12.01.11. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum.

Lagt fram.

Lagður fram tölvupóstur Sverris Pálmasonar hdl þar sem þess er óskað að Hafnarfjarðarbær rökstyðji ákvörðun sína um að afturkalla ekki byggingarleyfið, en veiti eigendum Nönnustígs 2 þess í stað tækifæri á því að endurnýja byggingarleyfið. Lögð fram tillaga skipulags- og byggingarsviðs að rökstuðningi.

Skipulags- og byggingarráð tekur undir og gerir að sínu svar skipulags- og byggingarsviðs.

Tekin fyrir lóðin Fornubúðir 1a/Óseyrarbraut 1b. Hafnarstjórn lagði til við skipulags- og byggingaráð á fundi 22.12.10 að lóðinni Fornubúðir 1A/Óseyrarbraut 1b verði skipt upp og sameinuð lóðunum Óseyrarbraut 1 og Hvaleyrarbraut 2 í samræmi við tillögu 2, sjá tillögur í málinu.

Skipulags- og byggingarráð ákveður að heimilt sé að grenndarkynna deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar, vegna lóðarinnar Fornubúiða 1A/Óseyrarbrautar 1b, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010.

Lögð fram umsókn Þyts siglingaklúbbs, um lóðina Strandgötu 86, dagsett 16. desember 2010, undirritað af stjórn siglingaklúbbsins. Hafnarstjórn vísaði erindinu 22.12.10 til umsagnar skipulags- og byggingaráðs og óskar eftir því að vinna við skipulag svæðisins, sem lóðin er á, verði tekin upp að nýju.

Skipulags- og byggingarráð leggur til að Þyt siglingaklúbb verði veitt tímabundin leiguafnot af lóðinni. Skilyrði sé að þar verði engin varanleg mannvirki reist enda liggur endanlegt skipulag svæðisins ekki fyrir.

Charlotta Oddsdóttir sækir 22.11.2010 um breytingu á deiliskipulagi við norðurbraut 1, samkvæmt teikningum Ólafar Flygenring dagsettar 12.11.2010. Breytingin var grenndarkynnt, engar athugasemdir bárust á athugasemdatíma og var skipulagið samþykkt á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa. Athugasemd barst eftir að athugasemdatíma lauk.

Skipulags- og byggingarráð bendir á að breytingin hafi farið lögformlega leið og er nú til meðferðar hjá Skipulagsstofnun. Heimilt er að kæra ákvörðun skipulags- og byggingarfulltrúa til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála í mánuð frá því að ákvörðun var tekin eða kynnt.

Tekið fyrir að nýju deiliskipulag svæðisins Miðbær Hraun, sem afmarkast af Flatahrauni, Álfaskeiði, Arnarhrauni og Reykjavíkurvegi dags. 06.05.10. Áður lögð fram samantekt á athugasemdum sem bárust eftir forstigskynningarfund sem haldinn var 17.03.2010. Í endurbættri tillögu eftir þann fund var komið er til móts við athugasemdir. Tillagan var auglýst skv. 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og er athugasemdatíma lokið. Athugasemdir bárust. Kynningarfundur var haldinn á auglýsingatíma. Áður lögð fram samantekt skipulags- og byggingarsviðs á innkomnum athugasemdum og tillaga að svörum, sem var samþykkt með áorðnun breytingum. Skipulags- og byggingarráð samþykkti skipulagið á síðasta fundi.

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:

”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir deiliskipulag svæðisins Miðbær-Hraun dags. 06.05.2010 og að afgreiðslu verði lokið skv. 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.”

Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 20.05.2010 að deiliskipulaginu Suðurgata-Hamarsbraut, fyrir reit sem afmarkast af klettum norðan húsa norðan Hellubrautar/Hamarsbrautar, Suðurgötu, Mýrargötu og Strandgötu. Áður lögð fram fornleifaskráning Byggðasafns Hafnafjarðar fyrir svæðið dags. 2009, umsögn Húsafriðunarnefndar varðandi Hellubraut 7 dags. 05.05.2009, minnispunktar og svör við athugasemdum frá forstigskynningarfundi 25.05.2009, minnispunktar skipulags- og byggingarsviðs varðandi hverfisvernd, tillaga Teiknistofunnar ehf að fyrirkomulagi á lóðinni Hellubraut 7, gögn dags. 10. janúar 2009 og gögn frá skipulags- og byggingarsviði dags. 08.10.2009. Tillagan var auglýst skv. 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og er athugasemdatíma lokið. Athugasemdir bárust. Kynningarfundur var haldinn á auglýsingatíma. Lögð fram samantekt skipulags- og byggingarsviðs á innkomnum athugasemdum.

Farið yfir gatnahönnun og aðrar athugasemdir. Endanlegri afgreiðslu frestað til næsta fundar.

Gunnar Hjaltalín fer þess á leit í bréfi dags. 10. janúar 2010 við skipulags- og byggingarsvið að heimilað verði að rífa niður eða flytja hús á lóð nr. 7 við Hellubraut. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 12.01.2011, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.

Frestað þar til endanlegt skipulag hefur verið afgreidd.

Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Mjósundi, Austurgötu, Gunnarssundi og efri lóðamörkum húsa við Hverfisgötu 31-49. Skipulags- og byggingarsvið gerði áður grein fyrir athugun á aðkomu að vitanum bak við lóðina Hverfisgata 41 og fundi með íbúum umhverfis vitann 08.04.2010. Lögð fram athugun skipulags- og byggingarsviðs á nýtingarmöguleikum Hverfisgötu 41.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

Tekin fyrir að nýju tillaga Formu ehf að deiliskipulagi opins svæðis til sérstakra nota við Hamranes og Vatnshlíðarhnúk dags. 23.04.2010 ásamt skilmálum og skýringaruppdráttum. Tillagan var auglýst skv. 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og er athugasemdatíma lokið. Engar athugasemdir bárust.

Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagið og að afgreiðslu verði lokið í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.73/1997.

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:

”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir deiliskipulag opins svæðis til sérstakra nota við Hamranes og Vatnshlíðarhnúk dags. 23.04.2010 ásamt skilmálum og skýringaruppdráttum og að afgreiðslu verði lokið samkvæmt 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.73/1997.”

Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að skiltasamþykkt fyrir Hafnarfjörð. Frestað á síðasta fundi.

Skipulags- og byggingarráð samþykkir tillögu skipulags- og byggingarsviðs að samþykkt dags. janúar 2011 fyrir skilti í Hafnarfirði.

Lagt fram erindi GT Verktaka ehf sent í tölvupósti 8.12. sl. þar sem óskað er eftir leyfi til efnistöku úr námu í Undirhlíðum. Bæjarráð óskaði 16.12.10 eftir umsögn skipulags- og byggingarráðs, umhverfisnefndar/Staðardagskrár 21 og framkvæmdaráðs.

Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn Staðardagskrárfulltrúa og Umhverfisnefndar og gerir að sinni.

Lögð fram fundargerð umhverfisnefndar/Staðardagskrár 21 frá 12.01.11.

Lagt fram.

Lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd nr. 44/1999 með síðari breytingum. Umsagnarfrestur er til 21. janúar.

Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn Staðardagskrárfulltrúa.

Lögð fram og kynnt skýrsla Tryggva Þórðarsons dags í okt 2010 varðandi varðveislu grunnvatns við Ástjörn.

Skipulags- og byggingarráð tekur undir bókun Umhverfisnefndar varðandi skýrslu Tryggva Þórðarsonar.

Gísli Hermannsson leggur inn fyrirspurn þann 03.01.2011 um að breyta 270 fm raðhúsi í tvær íbúðir í stað einnar. Sjá meðfylgjandi skýringarblað auk samþykkis meðeigenda. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 05.01.2011, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.

Skipulags- og byggingarráð tekur neikvætt í fyrirspurnina enda samræmist hún ekki skipulagi svæðisins.

Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að endurgerð deiliskipulags fyrir Norðurbæ Hafnarfjarðar, sem samþykkt var í fjárhagsáætlun 2009 og 2010 og unnin er á skipulags- og byggingarsviði.

Skipulags- og byggingarráð ályktar að haldinn verði forstigskynningarfundur í samræmi við ný skipulagslög.

Sviðsstjóri gerir grein fyrir lögum um mannvirki og breytingu á lögum um brunavarnir.
Sviðsstjóri gerir grein fyrir nokkrum breytingum samkvæmt nýjum skipulagslögum.
Sviðsstjóri og verkefnisstjóri gera grein fyrir stöðu verkefnisins og framhaldi þess. Lagðar fram tillögur að verksamningi við Furu ehf. um framkvæmd verksins.

Skipulags- og byggingarráð felur sviðsstjóra að ljúka framlögðum verksamningum við Furu ehf.

Sviðsstjóri leggur fram yfirlit yfir uppsetta byggingarkrana í Hafnarfirði, frágang þeirra og notkun.

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að hefja aðgerðir þar sem kranar skapa hættu.

Bergþór Jónsson f.h. Mótáss hf sótti með tölvupósti dags. 10.09.2010 um að fá að staðsetja byggingarkrana á lóðinni í nokkra mánuði til að raða efni á lóðinni. Skipulags- og byggingarráð benti 21.09.10 á að uppsögn kranans sé ekki í tengslum við neina framkvæmdir og ber því að fjarlægja kranann innan tveggja mánaða. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 17.11.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs sem bókaði eftirfarandi á fundi 30.1102010: “Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda kranans skylt að fjarlægja hann innan tveggja vikna. Verði ekki brugðist við því verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.”%0DLagt fram bréf Gylfa Matthíassonar lóðarhafa Hvaleyrarbrautar 28 dags. 11.01.11.

Skipulags- og byggingarráð felur sviðsstjóra að leggja fram tillögu um dagsektir á næsta fundi ráðsins.