In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 27.04.11 og 04.05.11. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.

Lagt fram.

Tekin fyrir lóðin Óseyrarbraut 1b. Hafnarstjórn lagði til við skipulags- og byggingaráð á fundi 22.12.10 að lóðinni Óseyrarbraut 1b verði skipt upp og sameinuð lóðunum Óseyrarbraut 1 og Hvaleyrarbraut 2 í samræmi við tillögu 2, sjá tillögur í málinu. Skipulags- og byggingarráð heimilaði 18. janúar 2011 að erindið yrði grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010. Grenndarkynningu er lokið, athugasemdir bárust. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 13.04.2011, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að ræða við aðila málsins.

Frestað.

Gunnar Hjaltalín óskaði í bréfi dags. 10. janúar 2010 til skipulags- og byggingarsviðs annars vegar að heimilað yrði að byggja tveggja hæða hús á lóð nr. 5 við Hellubraut skv. skilmálum og innan þeirra lóðamarka sem skipulagið segir til um. Skipulags- og byggingarfulltrúi tók neikvætt í byggingu tveggja hæða húss þar sem það samræmist ekki skipulagi svæðisins. Skipulags- og byggingarráð óskaði eftir frekari gögnum, skýringar hafa borist.$line$Hins vegar að að heimilað verði að rífa niður eða flytja hús á lóð nr. 7 við Hellubraut. Skipulags- og byggingarráð óskaði eftir umsögn Húsafriðunar ríkisins. Neikvæð umsögn hefur borist, dags. 09.03.11.

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að vinna greinargerð um erindið að því er varðar lóð nr. 5.

Skipulags- og byggingarráð getur ekki metið hvort erindið er varðar lóð nr. 7 er í samræmi við gildandi skipulag nema nákvæmar upplýsingar liggi fyrir um fyrirhugaða gerð þess húss sem ætti að koma í staðinn.

Tekin fyrir að nýju greinargerð Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar dags. 2011 vegna aðstöðu til akstursæfinga. Fulltrúar Akstursíþróttafélagsins mæta á fundinn.

Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna.

Tekið fyrir að nýju erindi Hjallastefnunnar sem óskar eftir að breyta deiliskipulagi lóðar við Hjallabraut 55 þannig að þar verði byggingarreitur fyrir kennslustofur.

Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið, en óskar eftir nánari útfærslu á umferðarmálum og aðkomu sem unnin verði í samráði við skipulags- og byggingarsvið og framkvæmdasvið.

Tekin fyrir tillaga Arkis að deiliskipulagi gatnamótanna dags. 04.04.2011.

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillagan verði send í auglýsingu skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:

”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að deiliskipulagi gatnamóta Reykjanesbrautar við Straumsvík dags. 04.04.2011 verði send í auglýsingu skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010.”

Lögð fram fundargerð umhverfisnefndar/Staðardagskrár 21 frá 04.05.11.

Lagt fram.

Tekið fyrir að nýju erindi frá fundi bæjarráðs þann 14.04.11, þar sem samþykkt var að visa tillögu átakshóps í atvinnumálum, merkt C2 til umsagnar hjá skipulags- og byggingarráði. Lögð fram tillaga sviðsstjóra að umsögn.

Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn sviðsstjóra.

Tekið fyrir að nýju erindi Ingvars Þórs Gunnlaugssonar forstöðumanns tæknideildar Grindavíkurbæjar dags. 29.03.11, þar sem óskað er umsagnar Hafnarfjarðarbæjar um tillögu að Aðalskipulagi Grindavíkur 2010 – 2030. Lögð fram tillaga sviðsstjóra að umsögn.
Lagðar fram til kynningar tillögur starfshóps samgönguráðs um grunn net almenningssamgangna og hjólreiðastíga.

Lagt fram.

Tekin til umræðu tillaga vinnuhóps vegna endurskoðunar skipulagsins.