Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Skipulags- og byggingarráð

15. November 2011 08:15

í fundarherbergi framkvæmdasviðs, Norðurhellu 2

Meeting 286

Attended

  • Sigríður Björk Jónsdóttir formaður
  • Guðfinna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Sigurbergur Árnason aðalmaður
  • Rósa Guðbjartsdóttir aðalmaður
  • Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður

Secretary

  • Ólafur Helgi Árnason skrifstofustjóri
  1. Almenn erindi

    • SB040377 – Fundargerðir skipulags- og byggingarfulltrúa

      Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa dags. 02.11.11 og 09.11.11. A-liður afgreiddur af byggingarfulltrúa samkvæmt mannvirkjalögum nr.160/2010.

      Lagt fram.

    • 1009174 – Skipulagsreglugerð

      Lagt fram bréf umhverfisráðuneytisins dags. 03.11.11 þar sem vísað er til umsagnar tillögu að nýrri skipulagsreglugerð. Umsagnarfrestur er til 01.12.11.

      Skipulags- og byggingarráð felur sviðsstjóra að vinna drög að umsögn fyrir næsta fund.

    • 1110324 – Svæðisskipulag Suðurnesja 2008-2024, drög

      Tekið fyrir erindi frá Ásmundi Friðrikssyni f.h. Samvinnunefndar Svæðisskipulags Suðurnesja dags. 27.10.11 þar sem vísað er til umsagnar drögum að Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008 2024. Umsagnarfrestur er til 17.11.11. Lögð fram tillaga sviðsstjóra að umsögn. Stefán G thors VSÓ mætir á fundinn og kynnir tillöguna.

      Skipulags- og byggingarráð þakkar fyrir kynninguna. Skipulags- og byggingarráð felur sviðsstjóra að ganga frá umsögn í samræmi við umræður á fundinum.

    • 1009150 – Straumsvík, Gasfélagið, nýtt deiliskipulag

      Gasfélagið ehf leggur 14.09.10 fram tillögu að deiliskipulagi, samkvæmt teikningum verkfræðistofunar Mannvits dags.09.09.2010. Um er að ræða nýtt deiliskipulag á áður ódeiliskipulögðu svæði. Skipulags- og byggingarráð óskaði 21.09.10 eftir umhverfismati áætlunar ásamt fylgigögnum þ.m.t. áhættumati, umsögn Brunamálastofnunar og Slökkviðliðs Höfuðborgarsvæðisins og Vinnueftirlits. Skipulags- og byggingarfulltrúi sendi fyrirspurn um málsmeðferð til Skipulagsstofnunar varðandi umhverfismat áætlunar. Lagt fram svarbréf Skipulagsstofnunar dags. 07.10.10 þar sem fram kemur að gasstöð í Straumsvík falli ekki undir lög um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Með tilvísan í 5. mgr. 9. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 telur Skipulagsstofnun Hafnarfjarðarbæ þó í fullum rétti að fara fram á að gerð verði grein fyrir áhrifum deiliskipulagsáætlunarinnar á umhverfi. Áður lögð fram öryggisúttekt Mannvits ehf. Lögð fram greinargerð Mannvits ehf um áhrif á umhverfi dags. 27.10.11, ásamt umsögnum Vinnueftirlits ríkisins dags. 14.10.11, Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins dags. 21.10.11 og Mannvirkjastofnunar dags. 30.08.11. Frestað á síðasta fundi.

      Tillaga að deiliskipulagi er enn í vinnslu. Frestað.

    • 1109387 – Norðurbakki 13, 15 og 17, deiliskipulag og útisvæði.

      Tekin fyrir að nýju tillaga Sigurðar Gíslasonar arkitekts, Norðurbakka 15, að breytingu á deiliskipulagi og fyrirkomulagi útisvæðis við húsin Norðurbakka 13, 15 og 17.

      Skipulags- og byggingarráð telur mikilvægt að tryggja áframhaldandi aðgang að hafnarbakkanum en vill koma til móts við sjónarmið íbúa í nærliggjandi húsum, með því að loka tímabundið fyrir hringakstur um svæðið sem einnig endurspeglist í hönnun og frágangi á bílastæðum.

    • 1111113 – Skipalón 10, aflétting kvaðar

      Lagt fram bréf FM-húsa ehf dags. 03.11.11 þar sem óskað er eftir að Skipulags- og byggingarráð aflétti þeirri kvöð af húsinu Skipalón 10 að íbúar skuli vera 50 ára og eldri.

      Málinu frestað. $line$Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið en óskar eftir umsögn Framkvæmdasviðs og Fræðsluþjónustu varðandi álag á Hvaleyrarskóla, sem var forsenda kvaðarinnar.

    • 1012098 – Strandgata 55,fyrirspurn

      Fjörukráin leggur 09.12.10 inn breytta fyrirspurn um að byggja torfhús fyrir aftan Fjörukrána sjá meðfylgjandi blað. Ný tillaga ásamt gögnum og bréfi til skipulagsráðs bárust 09.08.2011. Skipulags- og byggingarráð afgreiddi fyrri fyrirspurn 01.02.2011. Bæjarstjórn hefur samþykkt lóðarstækkun.

      Skipulags- og byggingarráð heimilar lóðarhafa að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samráði við skipulags- og byggingarsvið.

    • 0704123 – Kaldársel, deiliskipulag

      Tekin til umræðu staða skipulags fyrir svæðið. Áður gerð grein fyrir viðræðum við forráðamenn Kaldársels. Þráni Haukssyni og Landslagi ehf hefur verið falið að hefja vinnu við skipulagið.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að vinna tillögu að breytingu á aðalskipulagi fyrir svæðið sem afmarkast af Kaldárhrauni og Gjánum til norðurs, vesturs og austurs og að rótum Undirhlíða til suðurs og fylgir þar vatnsbólsgirðingunni. Einnig að vinna verklýsingu fyrir skipulagið, kynna hana skv. 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og setja af stað fornleifaskráningu fyrir svæðið.$line$$line$Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: “Bæjarstjórn samþykkir að unnin verðin tillaga að breytingu á aðalskipulagi fyrir Kaldárselssvæðið í samræmi við 30. gr. laga nr. 123/2010 skipulagslaga.”

    • 1107116 – Landsskipulagsstefna, Reglugerð

      Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 25.10.11 þar sem greint er frá samráðsvettvangi fyrir gerð landsskipulagsstefnu 2012 – 2024. Frestur til að tilkynna þátttöku er til 15.11.11.

      Skipulags- og byggingarráð felur sviðsstjóra að taka þátt í samráðsvettvangi fyrir gerð landsskipulagsstefnu 2012 – 2014.

    • 1006284 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar heildarendurskoðun.

      Tekin til umræðu heildarendurskoðun á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar. Fyrir liggur samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar um að hefja vinnuna. Endurskoða skal uppdrætti og greinargerðir gildandi aðalskipulags og hafa niðurstöður úr rammaskipulögum Hamraness, Áslands og upplands Hafnarfjarðar til viðmiðunar. Áður lögð fram greinargerð með tillögunni af hálfu formanns.

      Skipulags- og byggingarráð felur sviðsstjóra að taka saman drög að verkefnislýsingu fyrir skipulagið.

    • 1111140 – Skipulagssaga Hafnarfjarðar

      Tekin til umræðu hugmynd um ritun skipulagssögu Hafnarfjarðar.

      Formaður kynnti hugmynd að ritun byggingarsögu í Hafnarfirði.

    • 11023144 – Endurskoðun lóðaverðs, starfshópur

      Lögð fram lokaskýrsla starfshóps um lóðaverð. Bæjarráð vísaði tillögum 5, 6, 7, 8, 10 og 15 til skipulags- og byggingarráðs til frekari úrvinnslu. Lögð fram umsögn sviðsstjóra skipulags- og byggingarsviðs og umhverfis- og framkvæmdasviðs.

      Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi umsögn:$line$tillaga 5 – tekur undir það sem fram kemur í tillögunni og frekari úrvinnslu vísað til útfærslu í deiliskipulagi.$line$Tillaga 6. tekur undir tillöguna í heild sinni.$line$Tillaga 7. tekur undir umsögn sviðsstjóra$line$Tillaga 8. vísað til endurskoðunar aðalskipulags.$line$Tillaga 10. tekur undir það en áréttað það sem kemur fram í umsögn sviðsstjóra um að aðeins skuli um tímabundnar ráðstöfun að ræða.$line$Tillaga 15. tekur undir tillöguna þar sem fram kemur að gert verði átak í skráningu húsnæðis, og vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.

Suggestion portal