In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmannna sátu Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadótti byggingarfulltrúi og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.
Lögð fram samþykkt bæjarráðs frá 7. apríl sl. um stofnun starfshóps um húsnæðisstefnu. Lögð fram drög að erindisbréfi starfsópsins.
Skipulags- og byggingarráð leggur áherslu á að hugað sé að efnahagslegum, umhverfislegum og samfélaglegum þáttum við gerð stefnunnar og þá ekki hvað síst skipulagsmálum, enda getur góð staðsetning við almenningssamgöngur, þjónustu og aðrar grunnstoðir bæjarins skipt sköpun er kemur að hagkvæmni búsetu. Mikilvægt er að huga að gæðum, efniskennd og séreinkennum bæjarins við uppbyggingu – hvort heldur í þéttri byggð eða í úthverfum og að ekki verði slakað á gæðakröfum, enda byggjum við bæinn okkar með framtíðina í huga.
Jafnframt er lagt er til að þéttingarskýrsla sem unnin var fyrir skipulags- og byggingarráð árið 2015 verði notuð sem innblástur og grunnur. Einnig þarf að skoða vel samningsmarkmið og hvernig tryggja má blöndun í byggð.
Á fundi bæjarráðs 7. apríl sl. var óskað eftir umsögn skipulags- og byggingarráðs um drög að samningi um hraðlest milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins.
Lagt fram. Skipulagsfulltrúa falið að gera drög að umsögn.
Deiliskipulagið Miðbær Hraun vestur tekið fyrir að nýju með hliðsjón af athugasemdum Skipulagsstofnunar við greinargerð með skipulaginu dags. 18. september 2015.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna drög að reglum um bílastæði sem taki mið af gjaldskrá Hafnarfjarðarbæjar og athugasemdum Skipulagsstofnunar.
Tekin fyrir að nýju tillaga umhverfis- og skipulagsþjónustu að lýsingu fyrir deiliskipulag svæðisins dags. 30.06.2015 sem frestað var á fundi rásins 19.02.2016.
Lagt fram.
Lagt fram ódags. erindi Guðrúnar B. Þórsdóttur þar sem sótt er um lóðarstækkun til að koma fyrir bílastæði inn á lóð.
Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt kynnt vinnu við enduskoðun á skipulagi svæðisins, gagnaöflun og skipulagslýsingu.
Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt mætti á fundinn vegna þessa máls.
Til upplýsinga.
Skipulagshöfundar mættu á fundinn og kynntu frumhugmyndir að vinnu við 2. áfanga.
Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna og felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að skoða sérstaklega umferðartenginu ofan við hverfið.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 23. febrúar að auglýsa breytingu á deiliskipulagi við Bæjarhraun samkvæmt 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsingatíma er lokið og barst ein athugasemd. Lögð fram umsögn vegna athugasemda.
Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt mætti á fundinn vegna þessa máls.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir framlagða umsögn vegna athugasemdanna og felur umhverfis- og skipulæagsþjónustu að ljúka máli skv. 41. gr. skipulagslag nr. 123/2010.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 6. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 13. apríl sl. Dagskrárlið 11 er vísað til skipulags- og byggingarráðs.