In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi og Ívar Bragason lögmaður stjórnsýslu fundinn.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 16.05.2017 að heimila lóðarhafa að láta vinna tillögu að breyttu deiliskipulagi á sinn kostnað og að auglýsa hana í samræmi við 1.mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst frá 07.07. til 18. 08. 2017. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Grandatraðar 12 og að málinu verði lokið í samræmi við 42. gr. skipulagslaga 123/2010.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 21.02.2017 að heimila auglýsingu á breyttu deiliskipulagi lóðarinnar Einhella 6 í samræmi við 1.mgr. 43 gr. Tillaga að breyttu deiliskipulagi var auglýst frá 22.06.2017-03.08.2017. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Einhellu 6 og að málinu verði lokið í samræmi við 42. gr. skipulagslaga 123/2010.
Strókur ehf (kt. 580788-1739) óskar þann 5.7. 2017 eftir heimild til að breyta deiliskipulagi lóðanna að Einhellu 3-5 samanber deiliskipulagstillögu Zeppelin arkitekta dags. 17.08.2017.
Skipulags- og byggingarráð heimilar lóðarhafa að vinna breytingartillögu að deiliskipulagi lóðanna Einhella 3 og Einhella 5 á sinn kostnað. Málsmeðferð tillögunar verður í samræmi við 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga 123/2010.
Lagt fram bréf Örnefnanefndar dags. 25.07.2017, varðandi sjónarmið um götuheiti í Skarðshlíð 2. Erindinu var vísað til skoðunar umhverfis- og skipulagsþjónustu á fundi bæjarráðs þann 10.08. s.l.
Skipulagsfulltrúa falið að svara bréfi Örnefnanefndar frá 25.07.2017.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir á fundi sínum þann 15.02.2017 tillögu að deiliskipulagi Ásvallabrautar og tengingu Valla og Áslands. Tillagan var auglýst frá 06.04. 2017-18.05.2017. Samhliða breytast mörk deiliskipulags fyrir Ásland 3 og Hlíðarþúfur eins og meðfylgjandi uppdrættir sýna. Lagðar fram fjórar athugasemdir, ásamt umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu dags. 22. ágúst 2017, sem bárust en 1 átti við annað deiliskipulag og er því ekki tekin með í þesari umfjöllun.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu dags. 22. ágúst 2017 og deiliskipulag Ásvallabrautar og tengingu Valla og Áslands fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir deiliskipulag Ásvallabrautar og tengingu Valla og Áslands og að málinu verði lokið í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010”.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum að grenndarkynna nýja tillögu dags. 30.05.2017 að breyttu deiliskipulagi á lóð við Hamarsbraut 5 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða breytingu á lóð fyrir einbýlishús í lóð fyrir tvíbýlishús og færslu á bílastæðum á lóð. Breytt tillaga var grenndarkynnt frá 29.06.2017-10.08.2017. Athugasemdir bárust frá 10 aðilum. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir ódags. umsögn skipulagsfulltrúa og fyrir sitt leyti fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Hamarsbrautar 5 og að málinu verði lokið í samræmi við 41. gr. skipulagslaga 123/2010. og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar:
“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að deilskipulagi Hamarsbrautar 5 og að málinu verði lokið í samræmi við 3. mgr. 41.gr. laga 123/2010.”
Lagt fram bréf íbúa við Brekkuhvamm og Lindarhvamm dags. 14.08.2017 þar sem óskað er eftir að ráðist verði í framkvæmdir við Óla Run tún í samræmi við Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025 sem samþykkt var 1. maí 2014. Erindið var til umfjöllunar í umhverfis- og framkvæmdaráði 23.8.2017.
Lagt fram til kynningar.
Strókur ehf sækir um lóðina Álfhella 2 með bréfi og skissum dags. 27.07.2017, fyrirvara um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar, m.a. að lóðin yrði skilgreind sem verslunar- og þjónustulóð. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16.08.2017.
Skipulags- og byggingarráð vísar erindinu og umsögninni til bæjarráðs.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti 24.05. s.l. að unnið yrði að breyttri landnotkun fyrir svæðið í samræmi við 1. mgr. 36.gr. skipulagslaga. Tillaga að breyttu aðalskipulagi og deiliskipulagi kynnt.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti breytta landnotkun og deiliskipulagi fyrir Suðurgötu 40-44 og leggur til við bæjarstjórn: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á landnotkun í aðalskipulagi Hafnarfjarðar í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykki bæjarstjórn breytt deiliskipulag fyrir Suðugötu 40-44 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.”
Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna vísa til bókunar fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna í bæjarstjórn 24.5. 2017 varðandi þetta mál.
Arkibúllan arkitektar kynntu möguleika nýrra byggðar við Hrauntunug með tilliti til umhverfisins og þá byggð sem fyrir er.
Lagt fram.
Tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Sörlasvæðið. Ný gögn bárust í tölvupósti þann 15. ágúst sl. þar sem stjórn Skógræktarfélag Hafnarfjarðar gerir ekki athugasemd við nýja tillögu sem er dags. 16. ágúst 2017.
Skipulags- og byggingarráð heimilar lóðarhafa að vinna að breyttu deiliskipulagi reitsins á sinn kostnað. Málsmeðferð tillögunar verður í samræmi við 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga 123/2010.
Kynntar forteikningar Batterísins arkitektar dags. 09.08.2017 að uppbyggingu að Fornubúðum 5.
Til kynningar.
Skipulags- og byggingarráð óskar eftir að fá hönnuði á næsta fund ráðsins.
Kynnt vinna við deiliskipulag Lækjargötu 2, Dvergsreit. Lagt fram erindi íbúa við Brekkugötu dags. 22.8. 2017 varðandi uppbyggingu á svæðinu og bílastæðavanda við Brekkugötu.
Til kynningar. Skipulags- og byggingarráð vísar erindi íbúa við Brekkugötu í áframhaldandi vinnu við deiliskipulag reitsins.
Kynnt vinna við skipulag Hraun-vestur. Lagðar fram athugasemdir eiganda Flatahrauns 5b dags. 23. maí 2017.
Lagt fram og kynnt.
Lagt fram erindi Bjargs íbúðarfélags dags. 18.08.2017 þar sem óskað eftir því að fá velja hagkvæmari klæðningar á veggi og þök húsa.
Lagt fram bréf svæðisskipulagsstjóra höfuðborgarsvæðisins dags. 18.08.2017 varandi breytingar á svæðisskipulagi sem lúta að vaxtarmörkum í landi Mosfellsbæjar.
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar tekur undir og samþykkir bókun svæðisskipulagsnefndar.
Lögð fram tillaga að breyttu deilskipulagi svæðis Straumsvíkurhafnar sem gerir ráð fyrir þremur nýjum lóðum á svæðinu samanber samþykkt Hafnarstjórnar frá 07.06.2017.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytta tillögu að deiliskipulagi lóða á svæði Staumsvíkurhafnar og að málsmeðferð tillögunar verður í samræmi við 1. mgr. 43 gr. skipulagslaga 123/2010.
Ás styrktarfélag sótti 13.07.2017 um að byggja búsetukjarna með 6 íbúðum og starfsmannaaðstöðu á ofangreindri lóð samkvæmt teikningum Önnu Margrétar Hauksdóttur dags. 12.07.2017. Erindinu var frestað á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 23. ágúst s.l. og vísað til ráðsins m.t.t. deilsikipulags.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að endurskoða gildandi deiliskipulag m.t.t. lóðarstærðar, aðkomu og staðsettningu húss í lóð. Jafnframt er samþykkt að deiliskipulagsbreytingin verði unnin í samræmi við 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga 123/2010.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 2. ágúst s.l.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 9. ágúst s.l.