In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason lögmaður stjórnsýslu fundinn.[line][line]Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri sat fundinn undir dagskrárliðum 1-5.
Skipulagsstofnun gerði athugasemd vegna málsmeðferð deiliskipulagsins og bendir á að gera þurfi aðalskipulagsbreytingu samhliða. Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi dags. 27. október 2017 ásamt tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Ásvallabraut og breytingar fyrir Ásland 3 og Hlíðarþúfur.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 skv. 1. mgr. 31. gr. sbr.36. gr. skipulagslaga 123/2010. Fyrirhuguð skipulagsbreyting gerir í ráð fyrir að í stað tveggja tengibrauta sunnan núverandi byggðar við Ásvelli 3, verði ein braut, Ásvallabraut. Lega hennar breytist þannig að hún tengist Kaldárseelsvegi og Elliðavatnsvegi með hringtorgi neðan Hlíðarþúfna en tenging við Ásland 3 verði felld út. Lega Kaldaárselsvegar breytist lítillega sem og tenging hans við íbúðarsvæðið við Mosahlíð.
Einnig er samþykkt að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi ásamt breytingum skv. 1. mgr. 41. gr skipulagslaga 123/2010 og að deiliskipulagið verði auglýst aftur samhliða framangreindri aðalskipulagsbreytingu.
Gerir skipulags- og byggingarráð því eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar:
“Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 í samræmi við 1. mgr. 31. gr. sbr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, samhliða tillögum að breyttu deiliskipulagi, sbr. 1. mgr. 41.gr. skipulagslaga 123/2010”
Stekkur ehf sækir um breytt aðgengi að lóðinni með umsókn dags. 17.1.2017, útbúa nýtt inn- og útkeyrsluhlið og girða lóðina með 2 m hárri girðingu skv. uppdráttum Úti og Inni arkitekta dags. 15.10.2017.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að heimila lóðarhafa vinna óverulega breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar á sinn kostnað og að málsmeðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagið Miðbær Hraun vestur tekið fyrir að nýju með hliðsjón af athugasemdum Skipulagsstofnunar við greinargerð með skipulaginu dags. 18. september 2015. Lagt er til að deiliskipulagið verði auglýst á á ný samanber 2. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að endurauglýsa deiliskipulag Miðbæjar Hrauns með vísan til 2. mgr. 42. gr. og 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Fulltrúar Skeljar ehf fasteignafélags mættu til fundarins og kynntu hugmyndir sínar um uppbyggingu á tilteknum reit með lóðum í þeirra eigu á skipulagssvæðinu – svo sem Hjallahraun 2 og við Reykjavíkurveg.
Skipulagshöfundar mættu einnig til fundarins og kynntu framvindu verkefnisins.
Til kynningar.
Tekin fyrir á ný fyrirspurn Hagtaks hf um byggingaráform á lóðinni skv. tillögu ASK arkitekta um hótel á lóðinni Hvaleyrarbraut 30. Tillagan var kynnt í Hafnarstjórn í september síðastliðnum. Skipulags- og byggingarráð óskaði þann 17 okt. s.l. eftir umsögn skipulagsfulltrúa um tillöguna og áframhaldand vinnu við skipulagsbreytinguna. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30.10.2017.
Borghildur Sturludóttir mætti til fundarins kl. 08:40 Gert var stutt fundarhlé.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir með 3 atkvæðum framlagða umsögn skipulagsfulltrúa.
Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar óska eftir umsögn hafnarstjórnar um tillögu skipulagsfulltrúa að aðalskipulagsbreytingu um breytt landnotkun. Jafnframt að teknar verði saman upplýsingar er varða friðlýsingu Hvaleyrarlóns og stöðu þess.
Endurskoðun deiliskipulags Miðbæjarins tekin til umfjöllunar á ný. Skipulagsfulltrúa var falið að hefja vinnu við skipulagslýsingu samanber 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa dags. 30.10.2017.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagt minnisblað skipulagsfulltrúa um verklag þar sem þremur hönnunarteymum er boðið að koma með skissuhugmyndir að þróun miðbæjar Hafnarfjarðar.
Lögð fram fyrirspurm VHE ehf. um hvort leyft yrði að byggja fjölbýlishús samkvæmt uppdráttum Úti og Inni dags. 10.10. 2017. Með vísan til gr. 4.1 í skilmálum eru þessir fyrirspurnar uppdrættir lagðir fyrir skipulags- og byggingarráð.
Skipulags- og byggingarráð óskar eftir umsögn skipulagshöfunda um fyrirliggjandi fyrirspurn.
Lögð fram fyrirspurn VHE ehf. dags. 17.10.2017 þar sem óskað er eftir að reisa 10 íbúða fjölbýlishús á 3-5.hæðum samkvæmt teikningum Orra Árnasonar dagsettar 16.10.2017. Með vísan til gr. 4.1 í skilmálum eru þessir fyrirspurnar uppdrættir lagðir fyrir skipulags- og byggingarráð.
Lögð fram fyrirspurn VHE ehf. dags. 17.10.2017 þar sem óskað er eftir að reisa 22ja íbúða fjölbýlishús á 3-5 hæðum samkvæmt teikningum Orra Árnasonar dagsettar 16.10.2017. Með vísan til g.r. 4.1 í skilmálum eru þessir fyrirspurnar uppdrættir lagðir fyrir skipulags- og byggingarráð.
Lögð fram fyrirspurn Þrastarverks ehf. dags. 12.09.2017 til skipulags- og byggingarráðs ásamt bréfi dags. 09.09.2017 um að bifreiðageymslu í kjallara verði sleppt. Með vísan til g.r. 4.1 í skilmálum eru þessir fyrirspurnar uppdrættir lagðir fyrir skipulags- og byggingarráð.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulags- og byggingarfulltrúa frá 11.10. s.l.
Lagt fram til kynningar.