In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason lögmaður stjórnsýslu fundinn.
Skipulagshöfundar, Ydda arkitektar, mættu til fundarins og kynntu framvindu verksins.
Kynning.
Drög að reglum um umgegni og þrifnað á svæðinu teknar fyrir að nýju. Deiliskipulag svæðisins tekið til umfjöllunar í tengslum við umgegni á svæðinu.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að endurskoða deilskipulag Suðurhafnar fyrir bátaskýli til samræmis við drög að reglum um umgengni og þrifnað á svæðinu.
Arkibúllan arkitektar kynntu áframhald vinnu við nýja byggð við Hrauntungu með tilliti til umhverfisins og þá byggð sem fyrir er.
Arkibúllan arkitektastofa kynntu áframhald vinnu um uppbyggingu svæðisins. Skipulags- og byggingarráð samþykkti fyrir sitt leyti að unnið yrði að breyttri landnotkun fyrir svæðið á fundi þann 24.05.2017.
Pétur Óskarsson vék af fundi kl. 10:04 að lokinni umfjöllun þessa dagskrárliðar.
Arkitektastofurnar Krads og Tripólí kynntu áframhald vinnu varðandi uppbyggingu á svæðinu og tillögu að deiliskipulagi Lækjargötu 2, Dvergsreits.
Krads og Teiknistofa Arkitekta Gylfi Guðjónssonar og félagar kynntu stöðu deiliskipulagsvinnunar fyrir svæðið Hraun vestur.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum að grenndarkynna nýja tillögu dags. 30.05.2017 að breyttu deiliskipulagi á lóð við Hamarsbraut 5 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða breytingu á lóð fyrir einbýlishús í lóð fyrir tvíbýlishús og færslu á bílastæðum á lóð. Breytt tillaga var grenndarkynnt frá 29.06.2017-10.08.2017. Athugasemdir bárust frá 10 aðilum.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 22.11. s.l. að vísa málinu aftur til skipulags- og byggingarráðs. Skipulags- og byggingarráð frestar afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 28.11.2017 og fól skipulagsfulltrúa að taka saman greinargerð varðandi umferðar- og skólamál. Lögð fram greingerð skipulagsfulltrúa dags. 08.01.2018.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir með 2 atkvæðum fyrir sitt leyti greinargerð skipulagsfulltrúa dags. 8.1. 2018 og ítrekar samþykkt sína frá 24.8.2017 á fyrirliggjandi breytingu á deiliskipulagi dags.30.5.2017 og vísar málinu aftur til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs þann 04.10.2017 var samþykkt að fara í framkvæmdir við stofnræsi við Grísanes. Gera þarf breytingar á deiliskpulagi viðkomandi reita miðað við legu stofnræsis.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti með 2 atkvæðum að unnið verði að breytingum á aðalskipulagi og deiliskipulagi reita sem lega stofnræsis varðar í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og leggur til við bæjarstjórn: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að unnið verði að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar vegna legu stofnræsis Valla í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.”
Tekið að nýju erindi Önnu Gyðu Pétursdóttur dags. 2.6.2017 um nýtt deiliskipulag vegna Austurgötu 36. Húsið var dæmt ónýtt í apríl 2017 vegna veggjatítlu og myglu. Eigendur hyggjast reisa nýtt hús á lóðinn úr steini, stærra en fyrra hús en sem samræmist umhverfi á sem bestan hátt.
Tillagan var auglýst, grenndarkynnt og frá 01.11. til 13.12. 2017. Athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa á fundi sínum þann 09.01.2018 s.l. að gefa umsögn um þær athugasemdir sem borist hafa. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19.01.2018.
Skipulags- og byggignarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að umsögn um fyrirliggjandi athugasemdir og í samræmi við umsögn sína dags. 19.1.2018.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti 1.12. 2017 að auglýsa tillögu að breyttu deilskipulagi lóðanna við Íshellu 1,3, og 3a í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010. Tillagan var auglýst frá 05.12.2017-16.01.2018. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir erindið og að afgreiðslu verði lokið skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Lóðir fyrir djúpgáma í 2. áfanga Skarðshlíðar teknar til umfjöllunar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga að unnin verði breyting á skilmálum 2. áfanga Skarðahlíðar er varða meðferð sorps og djúpgámalóðir.
Tekin fyrir á ný lokadrög skýrslu starfshóps um umhverfis- og auðlindastefnu en umhverfis- og framkvæmdaráð óskaði eftir umsögn um skýrsluna á fundi sínum 1.11. s.l.
Skipulags- og byggingarráð lýsir yfir ánægju með þær áherslur sem koma fram í drögum að umhverfis- og auðlindastefnu Hafnarfjarðarbæjar og leggur áherslu á að í umhverfis- og auðlindarstefnu Hafnarfjarðarbæjar þurfi að bæta við ákvæði um kolefnisspor byggingarefna, umhverfisvænt og endurnýtt efnisval, sjálfbært skipulag þéttbýlis og sjálfbærni og vistvænni hugsun í allri hönnun á ferli skipulags. Skipulags- og byggingarráð bendir einnig á stefnumótun sem kemur fram í Landsskipulagsstefnu 2015-2026.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 10. janúar s.l.
Lagt fram til kynningar.