In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Fundargerð ritaði Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri. Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt, Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt, Helga Stefánsdóttir forstöðumaður og Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslu.
Skipulagshöfundar, Arkibúllan arkitektar, leggja fram til kynningar mögulega uppbyggingu við Hjallabraut.
Kynning.
Arkibúllan arkitektar kynna þá vinnu sem farið hefur fram vegna deiliskipulagsbreytinga við Hrauntungu 5 vegna mögulegra uppbyggingu íbúðarhúsa á lóðinni.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að halda íbúafund vegna deiliskipulags 12. september næstkomandi.
Bjarni Freyr Þórðarson aðstoðarfélagsforingi hjá Hraunbúum óskar eftir í tölvupósti dags. 21. júní 2018 að halda árlegt vormót félagsins í Seldal við Hvaleyrarvatn næsta vor. Einnig er óskað eftir því að fá svæðið til úthlutunar til uppbyggingar á útilífsmiðstöð Hraunbúa til framtíðar. Lögð fram umsögn Skógræktarfélags Hafnarfjarðar dags. 20. ágúst 2018.
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að ræða við forsvarsmenn Hraunbúa og skógræktarfélagsins varðandi erindið.
Tekið fyrir að nýju óheimilt niðurrif skúra utan lóðamarka við Herjólfsgöti 32-34 sem eru innan afmarkaðs svæðis Hleina Langeyrarmala sem voru friðlýstir sem fólkvangur árið 2009. Þetta var ákveðið á húsfundi húsfélagsins að Herjólfsgötu 32-34. Markmið friðlýsingar er að vernda búsetulandslag og menningarminjar en um er að ræða gamla reykkofa. Umsögn Umhverfisstofnunnar dags. 22. júní sl. vegna niðurrifs íbúa við Herjólfsgötu nr. 32-34 lögð fram.
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að senda íbúum Herjólfsgötu 32-34 áminningu um að aðgerðin var óheimil ásamt umsögn Umhverfisstofnunar.
Skipulagshöfundar, Gláma Kím arkitektar, kynna stöðu á vinnu sinni vegna nýs deiliskipulags fyrir Vesturbæ. Skoðað hefur verið hvernig bættar almenningssamgöngur um Reykjavíkurveg geti haft áhrif á uppbyggingu og mótun hverfisins.
Með tölvupósti dags. 03.07.2018 óskaði Hjalti Steinþórsson lögmaður eftir því að koma á framfæri andmælum við umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20.06.2018. Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum 10.0.72018 að verða við beiðninni. Andmæli Hjalta Steinþórssonar, dags. 25.07.2018 lögð fram.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum andmælum.
Deiliskipulagsbreytingar vegna Skarðshlíð 3. áfanga hafa verið auglýstar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Engar athugsemdir bárust á auglýsingartíma.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða tillögu að breytingu á Skarðshlíð 3. áfanga og að málinu verði lokið í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga 123/2010.
Lögð fram niðurstaða úr kæru nr. 75/2018 til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna niðurrifs á Hellubraut 7. Kærumálinu var vísað frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála þar sem kærendur eru ekki taldir eiga kæruaðild í skilningi 3. mgr. 4.gr. laga nr. 130/2011.
Lagt fram til kynningar.
Lögð fram til kynningar niðurstaða úr kæru nr. 102/2018 til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna breytinga á skipulagi vegna bátaskýla við Lónsbraut. Kærumálinu var vísað frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála þar sem kæra barst að liðnum kærufresti skv. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og undantekningarákvæði eiga ekki við.
Tekið fyrir að nýju erindi Þrastarverks ehf. þar sem þeir leggja fram fyrirspurn um að byggja fjölbýlishús á lóðinni Brenniskarð 1-3. Skipulags- og byggingarráð fól skipulagsfulltrúa að taka saman greinargerð um skipulagsskilmála varðandi bílakjallara og bílastæði á fundi sínum þann 14.08.2018. Lögð fram greinargerð skipulagsfulltrúa dags. 24.08.2018.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir greinargerð skipulagsfulltrúa dags. 24.08.2018 og synjar erindinu eins og það liggur fyrir.
Lögð fram að nýju greinargerð starfshóps bæjarráðs um mótun framtíðarstefnu á uppbyggingu ferðaþjónustu.
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að vinna að tillögum vegna úrvinnslu umsókna um gistiheimili.
Lögð fram fyrirspurn frá K16 ehf. dags. 21.8.2018 vegna útlitsbreytinga á Íshellu 1.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í uppbyggingu innan lóðarinnar. Reynist verða frávik frá skilmálum deiliskipulagsins vegna uppbyggingar skal sækja um þau sérstaklega til skipulagsfulltrúa Hafnarfjarðar sem metur umfang breytinganna.
Erindi Friðriks Þórs Friðrikssonar frá 05.05.2018 sem vísað var til skipulags- og byggingarráðs frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þar sem krafist er stöðvunar framkvæmda á lóðinni við Erluás 31 tekið til afgreiðslu.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir greinargerð skipulagsfulltrúa og felur honum að svara erindinu.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 718 frá 15.08.2018.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 717 frá 08.08.2018.