Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Umhverfis- og framkvæmdaráð

27. June 2018 08:15

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Meeting 310

Attended

  • Helga Ingólfsdóttir formaður
  • Árni Rúnar Árnason varaformaður
  • Friðþjófur Helgi Karlsson aðalmaður
  • Helga Björg Arnardóttir aðalmaður
  • Þórey Svanfríður Þórisdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Arnhildur Ásdís Kolbeins áheyrnarfulltrúi
  • Tinna Hallbergsdóttir varamaður

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Helga Stefánsdóttir aðstoðarsviðsstjóri fundinn.

Secretary

  • Jóna Ósk Guðjónsdóttir

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Helga Stefánsdóttir aðstoðarsviðsstjóri fundinn.

  1. Almenn erindi

    • 1806149 – Ráð og nefndir 2018-2022, kosningar

      Kosning bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á fulltrúum í umhverfis- og framkvæmdaráð lögð fram til kynningar.
      Aðalmenn:
      Helga Ingólfsdóttir, Brekkugötu 26, formaður
      Árni Rúnar Árnason, Garðstíg 1, varaformaður
      Skarphéðinn Orri Björnsson, Kvistavöllum 29,
      Friðþjófur Helgi Karlsson, Norðurbakka 5a
      Helga Björg Arnardóttir, Álfaskeiði 1

      Þórey S. Þórisdóttir, Þúfubarði 9, áheyrnarfulltrúi
      Arnhildur Ásdís Kolbeins, Gauksás 57, áheyrnarfulltrúi

      Varamenn:
      Tinna Hallbergsdóttir, Blikaási 25
      Garðar Smári Gunnarsson, Álfaskeið 84,
      Lára Janusdóttir, Teigabyggð 8
      Sverrir Jörstad Sverrisson, Sunnuvegi 11
      Hulda Sólveig Jóhannsdóttir, Glitvöllum 5

      Ingvar Sigurðsson, Miðvangi 107, varaáheyrnarfulltrú
      Ásta Rut Jónasdóttir, Hraunbrún 35, varaáheyrnarfulltrúi

      Lagt fram til kynningar.

    • 1706086 – Skólahreystibraut

      Tekin fyrir að nýju ósk um skólahreystibraut á Víðistaðatúni og breytt tillaga að nýrri staðsetningu.
      Lögð fram umbeðin umsögn Fræðsluráðs.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir að skipulags- og byggingarráð skoði nánari útfærslu á staðsetningu brautarinnar við Ásvallalaug.

    • 1710052 – Kaldárselsvegur, gatnagerð

      Lagðar fram niðurstöður útboðs í gatnagerð og veituframkvæmdi við Kaldárselsveg, tvö tilboð bárust.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar umhverfis- og skipulagsþjónustu að leita eftir samningum við lægstbjóðanda Háfell ehf.

    • 1706368 – Götugögn, uppsögn samnings

      Lagður fram framhaldssamningur, dags. 13.6.2018, við AFA JCDECAUX Ísland um biðskýli í Hafnarfirði.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1710158 – Reykjanesbraut í Kaplakrika - endurbætur

      Framhald umræðu um endurbætur á Reykjanesbraut við Kaplakrika. Verkið var boðið út en engin tilboð bárust.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð áréttar mikilvægi þess að verkið komist í framkvæmd og leggur áherslu á að Vegagerðin bjóði verkefnið út að nýju sem fyrst.

    • 1607216 – Vellir, stofnræsi

      Lagt fram hönnunarrýni Verkís hf. á Vallaræsi dags 4. maí 2018.
      Skipulagsferlið er enn óafgreitt.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1706369 – Hestamannafélagið Sörli, reiðhöll

      Tekið fyrir að nýju erindi Hestamannafélagsins Sörla dags 20. apríl sl þar sem óskað er eftir fulltrúa frá ráðinu til samstarfs við forhönnun á nýrri reiðhöll á athafnasvæði félagsins. Afgreiðslu var frestað á fundi ráðsins 16.5. s.l.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að óska eftir frekari gögnum varðandi fyrirhugaða uppbyggingu.

    • 1704460 – Kaldárselsvegur, framkvæmdir við stíg

      Framkvæmdir við göngu og hjólastíg meðfram Kaldársselsvegi teknar til umfjöllunar.
      Lagður fram tölvupóstur Hestamannafélagsins Sörla dags. 18.6. 2018 varðandi umferðaröryggi á stígnum.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð synjar erindi hestamannafélagsins er varðar rof á göngu- og hjólastígnum en felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að leita leiða til að tryggja umferðaröryggi allra sem um stíginn fara.

    • 1006286 – Umhverfis- og auðlindastefna.

      Lögð fram samþykkt umhverfis- og auðlindastefna Hafnarfjarðarbæjar.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1801408 – Umhverfis- og auðlindastefna, aðgerðaráætlun 2018

      Lögð fram verkáætlun 2018 vegna umhverfis- og auðlindastefnunnar.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fara í vinnu við forgangsröðun verkefna á næsta fundi ráðsins 15. ágúst n.k.

    • 1805015 – Gönguleiðir í leiðsagnarappi fyrir snjallsíma

      Möguleiki á að Hafnarfjarðarbær bjóði uppá aðgengi að gönguleiðum í landi bæjarins í gegnum leiðsagnarapp tekinn til umfjöllunar á ný en á fundi ráðsins 2.5. s.l. var umhverfis- og skipulagsþjónustu falið að kanna málið.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að kaupa aðgang að einni leið, Hvaleyrarvatni, í tilraunaskyni í 1 ár.

    • 1806309 – Hamarinn, grisjun trjáa.

      Lagt fram erindi Ásdísar G. Konráðsdóttur sent í tölvupósti 1.6. 2018 varðandi grisjun trjáa við Hamarinn.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar erindið og tekur undir mikilvægi þess að Hamarinn sem friðlýst náttúruvætti verði aftur sýnilegur með grisjun trjáa.

    Fundargerðir

Suggestion portal