In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn Helga Stefánsdóttir forstöðumaður og Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri.
Fjárhagsáætlun 2019-2022 tekin til umræðu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagða rekstrar og fjárfestingaráætlun sviðsins og vísar til afgreiðslu bæjarráðs. Fulltrúi Samfylkingar, Friðþjófur Helgi Karlsson, situr hjá við atkvæðagreiðslu og óskar eftir því að eftirfarandi sé fært til bókar:
Ég sit hjá m.a. vegna þess að mér finnst sú forgangsröðun sem birtist í henni ekki vera ásættanleg. Það er nauðsynlegt að mínu mati að forgangsraðað sé með skýrari hætti t.d. í þágu viðhalds á fasteignum bæjarins, eflingar á þjónustugetu þjónustumiðstöðvar, umhverfismála og uppbyggingu á grunnþjónustu s.s. eins og á leikskólarýmum í þeim hverfum þar sem vöntun er á slíku. Hvorki sú rekstraráætlun né fjárfestingaráætlun sem liggja hér fyrir sem hluti af fjárhagsáætlun endurspegla þær áherslur nægjanlega vel og þar eru m.a. áætlaðar háar fjárhæðir til framkvæmda í bæjarfélaginu sem ekki teljast til grunnþjónustu. Vil einnig ítreka athugasemdir mínar um það hversu seint gögn eru að berast ráðsmönnum og hversu lítið samráð hefur verið við vinnuna. Drög að fjárfestingaráætlun kom fyrst fyrir augu ráðsmanna síðastliðinn miðvikudag. Það er óásættanlegt og gerir ráðsmönnum erfitt með að setja sig inn í mál og taka afstöðu til þeirra svo vel sé. Fyrri umræða um fjárhagsáætlun fer fram á fundi bæjarstjórnar næstkomandi miðvikudag þannig að tíminn fyrir fulltrúa minnihlutans til að fara yfir fjárhagsáætlunina hefur verið mjög naumur.
Fulltrúar Bæjarlistans, Hulda Sólveig Jóhannsdóttir, og Viðreisnar, Þórey Svanfríður Þórisdóttir, harma það að bærinn sé hér með að falla frá þeirri stefnu sem mörkuð var á síðasta kjörtímabili, að bærinn byggi og eigi íþróttamannvirkin sín sjálfur. Við hörmum það einnig að hluti þeirra greiðslna til FH skuli hafa farið fram án þess að viðaukinn hafi fengið gildi. Einnig finnst okkur það fráleitt að haldið skuli áfram með málið á meðan kæruferli er í gangi. Er þessi leið, sem núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og óháðra hefur kosið að fara; að greiða FH fyrir eignarhluti, sem virðast vera á reiki hverjir eru, á meðan að virði húsnæðisins sem fjárfesta á í er ekki á hreinu, finnst okkur vítavert kæruleysi með fjármuni bæjarbúa.