In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri.
Fulltrúar Vegagerðarinnar og Eflu mæta til fundarins og kynna framkvæmdina.
Lagt fram til kynningar.
Fulltrúar Eflu mæta til fundarins og kynna framkvæmdina.
Fulltrúar VSB mæta til fundarins og kynna framkvæmdina.
Tekin fyrir að nýju fyrirspurn til stjórnsýslu sem lögð var fram á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs 10. október sl.; „Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir upplýsingum um með hvaða hætti stjórnsýslan hefur unnið samkvæmt bókun bæjarstjórnar frá 25. maí 2016 um að veita skuli hættu á mansali sérstaka athygli.“ Svar stjórnsýslu barst 22.10.2018.
Umhverfis- og framkvæmdaráð óskaði á fundi sínum þann 10. október 2018 eftir uppslýsingum um með hvaða hætti stjórnsýslan hefur unnið samkvæmt bókun bæjarstjórnar frá 25. maí 2016 um að veita skuli hættu á mansali sérstaka athygli.“
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti þann 25. maí 2016 eftirfarandi ályktun:
1. 1605488 – Ályktun gegn mansali Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að bæjarfélagið skuli veita hættunni á mansali sérstaka athygli. Farið verður yfir alla ferla hjá bænum með það að markmiði að vernda þá sem eru í viðkvæmri stöðu gagnvart mansali. Allir innkaupaferlar og útboðsskilmálar verða yfirfarnir með tilliti til þess. Þá mun Hafnarfjarðarbær tryggja að starfsfólk og eftirlitsaðilar á vegum bæjarins fái fræðslu um hvernig bera megi kennsl á mansal.
Samkvæmt svari frá sviðstjóra stjórnsýslusviðs hefur eftirfarandi texti verið settur í öll útboð og samninga sem gerðir eru af sveitarfélaginu þar sem það á við:
„Bjóðandi mun tryggja að allir starfsmenn sem koma munu að verkinu, hvort sem er sem starfsmenn bjóðanda eða undirverktaka, fái laun og starfskjör í samræmi við gildandi kjarasamninga hverju sinni og aðstæður þeirra séu í samræmi við löggjöf á sviði vinnuverndar. Hvenær sem er á samningstíma mun bjóðandi geta sýnt verkkaupa fram á að öll réttindi og skyldur gagnvart þessum starfsmönnum séu uppfyllt. Bjóðandi samþykkir að ef hann getur ekki framvísað gögnum eða sýnt eftirlitsmanni verksins fram á að samningsskyldur séu uppfylltar innan 5 daga frá því ósk um slíkt er borin fram af verkkaupa getur verkkaupi rift verksamningi án frekari fyrirvara eða ákveðið að beita dagsektum sem nemur 0,1% af samningsupphæð fyrir hvern dag sem umbeðnar upplýsingar skortir. Beiting þessara vanefndaúrræða hefur ekki áhrif á gildi verktryggingar.“
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar framkomin svör og leggur áherslu á að áfram verði unnið að því að tryggja réttindi verkafólks og sporna gegn mögulegri misnotkun á vinnuafli.
Tekið til umræðu.
Sigurður Sverrir Gunnarsson og Stefán Eiríkur Stefánsson verkefnastjórar mættu til fundar við afgreiðslu 5 dagskrárliðar.
Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir umsögn fræðslu og frístundaþjónustu varðandi tímasetningu á endurbótum sem standa fyrir dyrum á sundlaugargólfi Ásvallalaugar, sem áætlað er að taki að minnsta kosti fjóra mánuði, þannig að skóla og íþróttastarf raskist sem minnst.
Tekið fyrir að nýju.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir uppsetningu löggæslumyndavéla í samráði við fagaðila og forsendur fjárhagsáætlunar.
Undirbúningsvinnu við grisjun grenitrjáa á Hamrinum er lokið. Minnisblað garðyrkjustjóra varðandi næstu skref lagt fram.
Ingibjörg Sigurðardóttir garðyrkjustjóri mætti til fundar við afgreiðslu 7 dagskrárliðar.
Lagt fram minnisblað garðyrkjustjóra. Afgreiðslu frestað milli funda.
Tekin til umræðu námuvinnsla í Óbrinnishólum.
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt mætti til fundar við afgreiðslu 8 dagskrárliðar.
Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við áframhaldandi vinnslu og að unnið sé eftir samþykktri frágangsáætlun.
Erindi móttekið 7. nóvember 2019 frá Þjóðskrá Íslands þar sem óskað er eftir landfræðilegum gögnum sveitarfélagsins. 5048 landeignir eru skráðar í fasteignaskrá innan Hafnarfjarðarkaupstaðar þar af eru 1009 landeignir afmarkaðar í landeignaskrá Þjóðskrár Íslands sem er um 20% allra landeigna. Eru það vonir Þjóðskrár að við það að fá gögn frá sveitarfélaginu þá muni þetta hlutfall hækka til muna.
Umhverfis- og framkvæmdarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að svara erindinu.
Lögð fram fundargerð nr. 297.
Lögð fram fundargerð nr. 402.