Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Umhverfis- og framkvæmdaráð

15. June 2020 08:15

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Meeting 356

Attended

  • Helga Ingólfsdóttir formaður
  • Árni Rúnar Árnason varaformaður
  • Skarphéðinn Orri Björnsson aðalmaður
  • Friðþjófur Helgi Karlsson aðalmaður
  • Helga Björg Arnardóttir áheyrnarfulltrúi
  • Þórey Svanfríður Þórisdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Kristinn Jónsson varamaður

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.

Secretary

  • Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.

  1. Almenn erindi

    • 1407063 – Norðurgarður, endurbygging

      Lögð fram bókun Hafnarstjórnar frá 3.6.2020 varðandi sjóvarnir við Norðurbakka. “Hafnarstjórn samþykkir að láta hanna útfærslu grjótvarnar við Norðurbakka og undirbúa útboð á verkinu. Verkið verði unnið í nánu samstarfi við framkvæmdasvið bæjarins.”

      Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fyrir sitt leiti fyrirhugaðar endurbætur á Norðurbakka sem felur í sér gerð sjóvarnargarðs við þil Norðurbakka.

    • 1402013 – Sorpa bs, gas- og jarðgerðarstöð

      Helgi Þ Ingason framkvæmdastjóri Sorpu mætir til fundarins og kynnir verkefnið.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna og felur sviðinu að undirbúa heimsókn í Gaia í ágúst.

    • 1809389 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025, endurskoðun

      Lögð fram til kynningar drög að skipulagslýsingu aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna endurskoðunar. Skipulags- og byggingarráð óskar umsagnar nefnda og ráða til umsagnar og kynningar á fundi sínum þann 19. maí síðastliðinn.

      Lagt fram.

    • 2004365 – Miðbær, endurnýjun á trjágróðri á miðbæjarhluta Strandgötu

      Lögð fram tillaga að gróðri.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagða tillögu um endurnýjun götutrjáa og gróðursetningu á gráreyni við Strandgötu 31-33.

    • 1901438 – Vatnsvernd höfuðborgarsvæðisins, fyrirspurn

      Tekið fyrir að nýju.

      Fyrir liggur beiðni um áhættumat á þeim hluta Bláfjallavegar sem nú sætir tímabundinni lokun og óskað er eftir að vinnu við það verði flýtt.
      Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar jafnframt eftir að Vegagerðin framkvæmi kostnaðarmat vegna endurbóta á þeim veghluta Bláfjallavegar sem samþykkt var að loka tímabundið vegna vatnsverndar og fyrirhugaðrar uppbyggingu á skíðasvæðinu í Bláfjöllum.
      Kostnaðarmatið taki mið af því að þessi hluti Bláfjallavegar verði endurbættur með sama verklagi og fyrirhugað er að gera á þeim hluta vegarins sem er opinn frá Suðurlandsvegi.
      Ennfremur að framkvæmt verði nýtt áhættumat sem taki mið af endurbættum vegarhluta með tilliti til vatnsverndar, nýtingar og almannavarna.

    • 1912239 – Samræmd viðbragðsáætlun til að draga úr loftmengun

      Tekið fyrir að nýju.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemdir við framlagða viðbragðsáætlun og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

    • 1712050 – Klukkuvellir, tímajöfnunarstöð Strætó bs, ónæði

      Lagt fram bréf Brynjars Þórs Þorsteinssonar fh. íbúa við Klukkuvelli vegna ónæðis sem tímajöfnunarstöð Strætó bs. við Klukkuvelli veldur.

      Lagt fram.

    • 2005478 – Ungmennaráð, tillögur 2020 - 1. Frítt í strætó

      Lagt fram kostnaðarmat sem gert var í aðdraganda fjárhagsáætlunar.

      Erindi frestað.

    • 2005479 – Ungmennaráð, tillögur 2020 - 2. Fjölgun og endurnýjun ruslatunna

      Kynnt staða á ruslatunnum í bænum.

      Erindi frestað.

    • 2006076 – Boð í Garðarölt hjá N4

      Lagt fram erindi N4 varðandi boð í Garðarölt sem væri tekið upp í Hafnarfirði.

      Erindi frestað.

    • 2006077 – Trjáræktunarstefna Hafnarfjarðarbæjar

      Tekin til umræðu bókun sem lögð var fram á fundi ráðsins þann 3.6.2020 þar sem lagt er til að Hafnarfjarðarbær móti skýra stefnu um bæjartré, staðsetningu trjáa í bæjarlandinu, hvaða tegundir henta á hverjum stað og forgangsröðun ræktunarsvæða. Bent var á stefnu Reykjavíkurborgar um trjárækt til hliðsjónar. Lagt var til að stefnan yrði hluti af Umhverfisstefnu Hafnarfjarðarbæjar, nr 6.7, við næstu endurskoðun hennar. Bent var á kosti trjáræktar í bæjum þar sem þau grípa svifryk, lækka umferðarhraða, auka skjól og bæta þannig veðurgæði.

      Erindi frestað.

    • 1803160 – Ærslabelgur

      Tekið til umræðu uppsetning á öryggismyndavél í þágu öryggis- og eignavörslu.

      Erindi frestað.

    • 2006115 – Hvaleyrarvatn, umsókn um leyfi til Kayak siglinga

      Lögð fram umsókn um leyfi til Kayak siglinga á Hvaleyrarvatni.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðinu að óska eftir umsögnum hagsmunaaðila.

    • 2003038 – Krýsuvíkurvegur, vetrarþjónusta

      Lagt fram svar Vegagerðarinnar varðandi vetrarþjónustu á Krýsuvíkurvegi.

      Lagt fram.

    • 1407049 – Fegrunarnefnd

      Tekið til umræðu viðurkenningar til íbúa og fyrirtækja um fallega og vel hirta garða, götur, opin svæði og stofnanalóðir.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðinu að óska eftir ábendingum um fallega og vel hirta garða, götur, opin svæði og stofnanalóðir vegna Snyrtileikinn 2020.

    Fundargerðir

Suggestion portal