Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Uppbygging í grónu hverfi við íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum

Um er að ræða einstaka fjölbýlishúsalóð á Ásvöllum 3 í Hafnarfirði. Á lóðinni er heimilt að byggja fjölbýlishús á 2-5 hæðum, alls 100-110 íbúðir. Bílastæði má hafa að hluta í bílkjallara á einni hæð. Um er að ræða einstaka og vel staðsetta lóð í grónu hverfi við íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum gengt Ásvallalaug og við friðland Ástjarnar. Stutt er í alla verslun, þjónustu og menningu. Vellirnir í Hafnarfirði eru vinsælt og fjölskylduvænt hverfi með fjölbreyttum möguleikum til afþreyingar og útivistar.

Ásvellir 3 séð frá Ásvallalaug

Ásvellir 3 séð frá Ásvallalaug

Suggestion portal