Félagsráðgjafi – Barnavernd

Apply for this job

Applications are open from: 24.02.2025

Applications are open to: 10.03.2025

Contact: Kolbrún Þorkelsdóttir

Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða félagsráðgjafa til starfa innan barnaverndar. Um er að ræða 100% stöðugildi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Félagsráðgjafi í barnavernd vinnur að verkefnum sem krefjast sérfræðiþekkingar á meðferð barnaverndarmála og í þverfaglegum teymum. 

Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á metnaðarfullt og faglegt starf í þágu bæjarbúa.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Móttaka barnaverndartilkynninga og vinnsla barnaverndarmála í samræmi við barnaverndarlög
  • Samskipti og samvinna við börn og foreldra
  • Þverfagleg teymisvinna við vinnslu barnaverndarmála og mála sem unnin eru samkvæmt lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna
  • Samskipti og ráðgjöf við helstu stofnanir sem að málefnum barna og fjölskyldu koma
  • Þátttaka í stefnumótun, mótun verkferla, starfsáætlana og endurskoðun á reglum í málaflokknum
  • Bakvaktir 
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Gerð er krafa um meistaragráðu MA/MS í félagsráðgjöf 
  • Þekking á SES, PMTO foreldrafærni eða öðrum námskeiðum sem nýtast í starfi er kostur 
  • Reynsla af vinnu í þverfaglegu teymi
  • Samskipta- og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

Nánari upplýsingar veitir Kolbrún Þorkelsdóttir, deildarstjóri barnaverndar Hafnarfjarðar

kolbrunt@hafnarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2025.

Ferilskrá, kynningarbréf og starfsréttindi fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Other vacancies