Þróunarfulltrúi grunnskóla – Mennta- og lýðheilsusvið
Apply for this jobApplications are open from: 25.02.2025
Applications are open to: 17.03.2025
Contact: fanney@hafnarfjordur.is
Þróunarfulltrúi grunnskóla – spennandi tækifæri í menntamálum Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær leitar að kraftmiklum og faglega sterkum einstaklingi til að gegna stöðu þróunarfulltrúa grunnskóla. Ef þú hefur ástríðu fyrir skólaþróun, metnaðarfullri stefnumótun og faglegri leiðsögn skólastjórnenda, þá gæti þetta verið starfið fyrir þig!
Ef þú vilt hafa bein áhrif á þróun skólamála í Hafnarfirði, menntun og farsæld barna- og ungmenna þá gæti starfið hentað þér. Á Mennta – og lýðheilsusviði er unnið metnaðarfullt starf þar sem er tækifæri til símenntunar og faglegrar þróunar, sveigjanleiki og spennandi verkefni eru unnin.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Umsjón og stuðningur við skólaþróun
- Fagleg leiðsögn og stefnumótun grunnskólamála
- Ráðgjöf við skólastjórnendur í kennslufræðum og þróunarverkefnum
- Mat á skólastarfi og stuðningur við úrbætur
- Tengsl við innlenda og erlenda aðila til að efla faglegt samstarf og þróun skólastarfs
- Upplýsingaöflun og miðlun um skólamál til menntayfirvalda og bæjarbúa
- Umsjón með upplýsingatækni í skólastarfi, spjaldtölvunotkun og þróun kennsluforrita
- Þátttaka í áætlanagerð, skýrslugerð og stjórnsýslulegum verkefnum
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Framhaldsmenntun á sviði uppeldis- og menntunarfræða og/eða stjórnunar
- Reynsla af kennslu í grunnskóla
- Reynsla af stjórnun eða stjórnsýslu skólamála
- Þekking á lögum og regluverki grunnskóla
- Hæfni í ráðgjöf, verkefnastjórnun og stefnumótunarvinnu
- Mjög góð færni í íslensku í ræðu og riti, ásamt ensku og/eða öðru norrænu tungumáli
- Leikni í notkun skrifstofu- og upplýsingatækniforrita (Word, Excel o.fl.)
- Hæfni í samvinnu, samskiptum og jákvæðni í mannlegum samskiptum
Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2025.
Frekari upplýsingar veitir Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri Mennta- og lýðheilsusviðs á fanney@hafnarfjordur.is
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.