Sumarstarfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Öldugata

Apply for this job

Applications are open from: 26.02.2025

Applications are open to: 12.03.2025

Contact: Ásdís Auðunsdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er á Öldugötu í Hafnarfirði. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í 80 -100 % starfshlutfalli, sem unnið er í vaktavinnu, morgun-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir.

Helstu verkefni og ábyrgð

·        Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs

·         Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum

·         Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Áhugi á málefnum fatlaðs fólks

·         Íslenskukunnátta skilyrði

·         Þjónustulund og jákvæðni í starfi

·         Hæfni í mannlegum samskiptum

·         Frumkvæði og samviskusemi

·         Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ásdís Auðunsdóttir í síma: 585-5763 / 664-5727 netfang: asdisa@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til 21. mars 2025

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Other vacancies