Sumarstarf – Lundur

Apply for this job

Applications are open from: 27.02.2025

Applications are open to: 13.03.2025

Contact: Þórdís Rúriksdóttir

Sumarstarf

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í sumarstarf  á heimili fyrir fatlaðan einstakling, sem staðsett er í Setberginu. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi 60-90% starf í vaktavinnu, unnið er kvöld, dag og nætur.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita íbúa stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja íbúa til ýmissa tómstunda
  • Sinna heimilisstörfum
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum kostur
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi

 

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður í síma: 565-5100, netfang: thordisru@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.

Umsóknarfrestur 13.mars  2025 

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins

Other vacancies