Sumarstarfsmaður óskast til starfa í Geitungana

Apply for this job

Applications are open from: 27.02.2025

Applications are open to: 13.03.2025

Contact: Þórdís Rúríksdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan sumarstarfsmann í ört stækkandi starf Geitunganna sem er vinnu og virkni úrræði fyrir fatlað fólk. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Um er að ræða spennandi,lærdómsríkt og framsækið 50- 100% sumarrstarf með fjöbreyttum verkefnum.   

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Stuðla að virkni og félagslegri þátttöku fatlaðs fólk í samfélaginu
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til vinnu og ýmissa tómstunda
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og samviskusemi
  • Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum

 

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Rúriksdóttir, forstöðuþroskaþjálfi. thordisru@hafnarfjordur.is eða í síma: 565-5100 

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.

Umsóknarfrestur er til og með 13.mars 2025

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins

 

Other vacancies