In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
Welcome to Hafnarfjörður’s recruitment website!
Hafnarfjörður Township is the third largest municipality in Iceland, employing around 2,000 people.
Emphasis is placed on that the town employs people who can provide the best service available with knowledge, responsibility, and ambition. We emphasise hiring the most qualified people at all times and follow high-quality administrative practices when hiring.
Was this content useful?
Open for applications from: 13.03.2026
Open for applications until: 25.03.2026
Contact: Andri Berg Haraldsson
Share this vacancy
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða sumarstarfsmann á fjármálasvið til ýmissa starfa innan reikningshalds- og uppgjörsdeildar, fjárreiðudeildar og hagdeildar. Við leitum að aðila sem er talnaglöggur og vel tölvufær. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Starfið hentar vel fyrir nema í viðskiptafræði, hagfræði eða sambærilegu námi.
Fjármálasvið er eitt af stoðsviðum sveitarfélagsins og starfa 20 manns á sviðinu. Sviðinu er skipt í fjárreiðudeild, reikningshalds- og uppgjörsdeild, hagdeild, innkaupadeild og launadeild.
Um er að ræða 100% sumarstarf.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar veitir Andri Berg Haraldsson deildarstjóri reikningshalds- og uppgjörsdeildar andrih@hafnarfjordur.is og Þórey Hallbergsdóttir deildarstjóri fjárreiðudeildar thoreyh@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2026.
Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og STH.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Open for applications from: 10.03.2026
Open for applications until: 24.03.2026
Contact: Hildur Arnar Bjargardóttir
Heilsuleikskólinn Hamravellir óskar eftir að ráða kennara í 100% starf.
Í Heilsuleikskólanum Hamravöllum er hópur faglegra og skemmtilegra starfsmanna sem óskar eftir liðsauka.
Hamravellir er staðsettur innarlega á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Hamravellir er heilsuleikskóli þar sem áhersla er lögð á hollt mataræði, útiveru, hreyfingu og sköpun. Einkunnarorð leikskólans eru hreyfing, sköpun og vellíðan. Gildi leikskólans eru leikur og umhyggja.
Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Fríðindi í starfi:
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2026
Nánari upplýsingar um störfin veitir Hildur Arnar Bjargardóttir leikskólastjóri, hildurarnar@hafnarfjordur.is eða í síma 464-4640.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Open for applications from: 09.03.2026
Open for applications until: 23.03.2026
Contact: Ingibjörg Magnúsdóttir
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum tónmenntarkennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur í 70% starf. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.
Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Nú eru um 530 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði. Í haust hefst öflugt samstarfsverkefni milli leik, grunn og tónlistarskóla.
Hæfniskröfur:
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veita Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 og Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861
Umsóknarfrestur er til og með 23. mars. 2026
Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Open for applications from: 06.03.2026
Open for applications until: 22.03.2026
Contact: Hrönn Harðardóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða þroskaþjálfa til starfa á skammtímadvöl fyrir fötluð ungmenni, staðsett í Setbergshverfi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. maí n.k. eða eftir samkomulagi
Starfshlutfall er 80% – 90% og er unnið í vaktavinnu, viðkomandi þarf að geta unnið á morgun, kvöld- og helgarvöktum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Harðardóttir forstöðuþroskaþjálfi í síma: 565-2545, netfang: hronnha@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2026
Umsókn fylgi greinagóð ferilskrá ásamt leyfisbréfi.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands.
Open for applications from: 05.03.2026
Open for applications until: 19.03.2026
Ertu að leita þér að skemmtilegu og fjölbreyttu starfi í sumar? Þá ættir þú að skoða þessa auglýsingu !
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga og áhugasama starfsmenn til sumarafleysinga á skammtímadvöl fyrir fötluð ungmenn, staðsett í Setbergshverfi.
Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80%-90%, eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi í síma 565-2545 netfang: hronnha@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Umsóknarfrestur er til og með 19. mars 2026
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá
Open for applications from: 04.03.2026
Contact: Kristín Anna Th. Jensdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn til sumarafleysinga í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Berjahlíð. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Spennandi og skemmtilegt starf með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Starfshlutfall er 60-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Anna Th. Jensdóttir forstöðumaður í síma 585-5761 eða á netfanginu kristinj@hafnarfjordur.is
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Open for applications from: 27.02.2026
Open for applications until: 16.03.2026
Contact: ingibjorgo@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan deildarstjóra í lærdómsríkt starf við þjónustu á heimili fatlaðs fólks í utan- og innankjarna Um er að ræða 100% dagvinnu. Við óskum eftir einstaklingi sem hefur drífandi áhuga á starfi sínu og er öðrum starfsmönnum góð fyrirmynd. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á réttindi fatlaðs fólks.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi á netfangið ingibjorgo@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5765.
Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2026. Ráðið er í stöðuna frá 13.apríl 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
Open for applications until: 13.03.2026
Contact: maria@setbergsskoli.is
Skrifstofustjóri vinnur náið með stjórnendum að fjölbreyttum verkefnum í krefjandi og metnaðarfullu starfsumhverfi. Skrifstofustjóri starfar sem aðstoðarmaður skólastjóra um almennan rekstur skólans og starfar náið með stjórnendateymi skólans.
Setbergsskóli var stofnaður árið 1989 og eru nemendur um 430 talsins auk þess sem við skólann er starfrækt sérdeild fyrir börn með einhverfu.
Góður starfsandi og jákvæð samskipti einkenna starfmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi. Við skólann er unnið metnaðarfullt starf með sérstakri áherslu á fjölbreytt námsumhverfi, læsi, sköpun, lýðræði og uppbyggjandi endurgjöf.
Einkunnarorð skólans eru virðing, víðsýni og vellíðan og grundvallast starf skólans á þeim gildum. Nánari upplýsingar um skólann og það öfluga starf sem þar er unnið er að finna á heimasíðu skólans.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Gerð er krafa um hreint sakavottorð.
Greinargóð ferliskrá fylgi umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Pálmadóttir, skólastjóri Setbergsskóla, í síma 664-5880, maria@setbergsskoli.is.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Open for applications from: 02.03.2026
Contact: robertg@setbergsskoli.is
Setbergsskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliðum með fjölbreytta hæfni og áhuga á að vinna með börnum á frístundaheimilinu Krakkabergi skólaárið 2025 – 2026. Starfshlutfall er 30-50%. Vinnutími er frá kl 13:00-16:36, alla virka daga.
Frístundaheimilið er fyrir nemendur í 1. – 4. bekk Setbergsskóla. Þar gefst færi á að lengja viðveru barna eftir að skólastarfi lýkur.
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veita Róbert Gíslason, deildarstjóri tómstundastarfs Setbergsskóla, robertg@setbergsskoli.is og María Pálmadóttir, skólastjóri, maria@setbergsskoli.is.
Umsóknarfrestur er til og með 16. mars.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Contact: hildurarnar@hafnarfjordur.is
Heilsuleikskólinn Hamravellir óskar eftir að ráða metnaðarfullan starfsmann í fullt starf.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Arnar Bjargardóttir, leikskólastjóri, hildurarnar@hafnarfjordur.is eða í síma 424-4640.
Fáist faglærður kennari til starfa, nýtur hann forgangs í starfið á grundvelli laga nr. 95/2019. Við hvetjum kennara til að sækja um. Leyfisbréf kennara fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf, eða KÍ ef kennaramenntaður einstaklingur sækir um starfið.
Open for applications until: 10.04.2026
Contact: Elín Ósk Baldursdóttir
Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsfólk í stuðningsþjónustu í sumarafleysingar.
Starfshlutfall er allt að 100% og bæði vantar í dagvinnu sem og vaktavinnu á kvöldin og um helgar. Um er að ræða sumarafleysingar.
Stuðningsþjónustan ber ábyrgð á fjölbreyttri þjónustu við íbúa Hafnarfjarðar. Leitast er við að veita einstaklingsmiðaða þjónustu.
Helstu verkefni:
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2026.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Verkalýðsfélagsins Hlífar.
Nánari upplýsingar veitir Elín Ósk Baldursdóttir deildarstjóri elinob@hafnarfjordur.is eða í síma 585 5500.
Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsfólk í stuðningsþjónustu í sumarafleysingar. Starfshlutfall er 100%
Open for applications until: 06.04.2026
Contact: Margrét Halldórsdóttir
Engidalsskóli óskar eftir umsjónarkennara í 80-100% starf á miðstigi, tímabundin ráðning til eins árs.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026
Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk. Í næsta vetur verða nemendur um 200.
Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymisvinnu og velferð og vellíðan nemenda og starfsmanna. Skólinn er heilsueflandi, flaggar Grænfána og er í innleiðingu á leiðsagnarnámi.Skólinn starfar samkæmt Uppeldi til ábyrgðar. Við leggjum mikla áherslu á lestarnám og er lestur eina heimanám nemenda. Við skólann er einstaklega skemmtileg skólalóð sem býður upp á fjölbreytta möguleika til leikja og útikennslu. Góður starfsandi og jákvæð samskipti eru meðal allra sem í skólanum starfa. Við leitum að fólki sem vill taka þátt í að byggja upp öflugt skólastarf með okkur
Leiðarljós skólans eru: Ábyrgð – Virðing – Vellíðan
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri, margreth@engidalsskoli.is í síma 555-4433.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2026.
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn. Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Engidalsskóli óskar eftir umsjónarkennara í 100% starf á miðstigi.
Open for applications from: 12.03.2026
Open for applications until: 30.03.2026
Contact: Fanney Dóróthe Halldórsdóttir
Laus er til umsóknar staða skólastjóra Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Ráðið verður í stöðuna frá 15. júlí næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi.
Víðistaðaskóli er heildstæður grunnskóli með um 520 nemendur í 1. – 10. bekk. Í skólanum er starfrækt frístundaheimilið Hraunkot fyrir nemendur í 1.-4. bekk og félagsmiðstöð fyrir eldri nemendur.
Leitað er að metnaðarfullum leiðtoga sem býr yfir víðtækri þekkingu á skólastarfi, hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu námsumhverfi og getu til að leiða skólann áfram undir einkunnarorðum hans; ábyrgð – virðing – vinátta. Viðkomandi mun þróa áfram jákvæðan skólabrag sem stuðlar að vellíðan, samvinnu, fjölbreytileika og sköpun í samræmi við menntastefnu Hafnarfjarðar.
Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir árangursdrifinn og hugmyndaríkan einstakling til að byggja upp eftirsóknarverðan vinnustað.
Hafnarfjarðarbær vinnur samkvæmt verklagi um snemmtækan stuðning við leik- og grunnskólabörn, þar sem megináhersla er lögð á samþætta þjónustu við börn og fjölskyldur á fyrri stigum, aukið samstarf í nærumhverfi barnsins og framkvæmd í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars nk.
Umsókn um starfið þarf að fylgja greinargóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, fyrri störfum, menntun, stjórnunarreynslu og hæfni til að sinna starfi grunnskólastjóra ásamt afriti af prófskírteinum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs, í síma 585-5800, fanney@hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Open for applications until: 26.03.2026
Contact: Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er í Svöluási í Áslandshverfi. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun- kvöld-, helgar og næturvaktir.
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hreint sakavottorð er skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir, forstöðukona í síma 565-0301, netfang: birgittar@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2026.
Contact: Svanhildur Birkisdóttir
Leikskólinn Víðivellir óskar eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan kennara í tímabundna afleysingu til 15.maí. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Leikskólinn Víðivellir er fyrsti leikskólinn sem Hafnarfjarðarbær rekur og tók til starfa árið 1977. Víðivellir er fjögurra deilda leikskóli. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á inngildandi leikskólastarf og í skólanum er góð aðstaða og sérþekking á að mæta þörfum margbreytilegs barnahóps. Einnig er lögð sérstök áhersla á vinnu með orðaforðanámskrá leikskólans, tákn með tali og skipulagða hreyfingu.
Lagt er mikið upp úr því að hvert barn fái að njóta sín á sínum forsendum í barnahópnum og að börn og fjölskyldur þeirra fái öfluga og samþætta þjónustu þegar á þarf að halda.
Menntunar- og hæfniskröfur
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 26.mars 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veita Svanhildur Birkisdóttir, svanhildurbi@hafnarfjordur.is leikskólastjóri og Eyrún Edvardsdóttir, eyrune@hafnarfjordur.is, aðstoðarleikskólastjóri s.5553599
Open for applications from: 11.03.2026
Contact: Berglind Kristjánsdóttir og Katrín Hildur Jónasdóttir
Skarðshlíðarleikskóli auglýsir eftir að ráða leikskólakennara í 100% starf.
Skarðshlíðarleikskóli er nýlegur fjögurra deilda leikskóli sem uppfyllir nútímakröfur leikskólastarfs. Hann er staðsettur að Hádegisskarði 1. í einungis 4 mínútna fjarlægð frá Reykjanesbraut um Kaldárselsveg.
Hugmyndafræðilegur grunnur skólans tekur mið af lærdómssamfélagi (e. Professional Learning Community) þar sem allir læra saman og er áhersla lögð á virka þátttöku við að þróa öflugt skólastarf. Við leggjum áherslu á lýðræði, frumkvæði og lífsgleði í daglegum samskiptum og að auka leikni og færni barna í gegnum leikinn. Við viljum skapa góðan starfsanda þar sem allir fá að njóta sín og leggja sitt af mörkum. Stefna skólans tekur mið af Fjölgreindarkenningu Howards Gardners og Uppeldi til ábyrgðar.
Einkunnarorð leikskólans eru virðing, umhyggja og gleði.
Leikskólinn deilir húsnæði með grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttahúsi og bókasafni sem býður upp á mikla og spennandi möguleika á samstarfi sem er í stöðugri þróun.
Ferilskrá og leyfisbréf kennara fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Kristjánsdóttir berglindkrist@hafnarfjordur.is eða í síma 527 7380
Umsóknarfrestur er til 25. mars 2026
Contact: Brynja Rut Vilhjálmsdóttir
Leitað er að metnaðarfullum og áhugasömum einstakling í sumarstarf og tilfallandi tímavinnu. Lækur er athvarf fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir. Markmið Lækjar er að draga úr félagslegri einangrun og auka lífsgæði. Í boði er spennandi og lærdómsríkt starf með fjölbreyttum verkefnum. Óskað er eftir sumarafleysingu í 80% dagvinnu fyrir tímabilið 1. júlí -15. ágúst.
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð
Upplýsingar um starfið veitir Brynja Rut Vilhjálmsdóttir, sími: 664-5746 eða 585-5770, eða í gegnum tölvupóst: brynjarut@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar (STH).
Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2026.
Open for applications until: 31.03.2026
Contact: Áslaug Erla Hansdóttir
Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsfólk í afleysingar í sértækri stuðningsþjónustu.
Um tímabundna ráðningu er að ræða frá vori og út nóvember 2026. Æskilegt að starfsmaður geti byrjað sem fyrst.
Starfsmaður aðstoðar þjónustuþega með miklar og flókar þjónustuþarfir og vinnur eftir stefnu Hafnarfjarðar í málefnum heimilislausra og veitir einstaklingsmiðaða þjónustu sem er skipulögð með tilliti til þarfa einstaklingsins.Tekið er mið af skaðaminnkandi hugmyndafræði og batamiðaðri nálgun. Vinnutími er frá hádegi og fram á kvöld alla daga vikunnar, unnið í vaktavinnu.
Einstaklingurinn þarf að hafa bílpróf og bíl til umráða.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf.
Nánari upplýsingar veitir Áslaug Erla Hansdóttir teymisstjóri sértækrar heimaþjónustu aslaugh@hafnarfjordur.is eða í síma 585 5500.
Contact: Guðrún Halldórsdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða glaðlynda og áhugasama starfsmenn í skammtímadvöl fyrir fötluð börn. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, nætur og helgarvaktir. Við erum að leita að starfsfólki í tímabundið starf í sumar. Við leitum eftir starsfólki sem getur hafið störf í kringum 1. júní. Starfshlutfall eftir samkomulagi.
Unnið er eftir hugmyndafræðinni þjónandi leiðsögn.
Skammtímadvöl er fyrir fötluð börn og ungmenni og er misjafnt hvað þau dvelja lengi í senn. Hlutverk með skammtímadvöl er að veita börnum og fjölskyldum þeirra stuðning. Á meðan á dvöl stendur fá börnin og ungmennin aðstoð við sín daglegu verkefni, njóta umönnunar og afþreyingar.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Halldórsdóttir forstöðumaður í síma: 585-5768, netfang: gudrunha@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2026
Contact: Harpa Kolbeinsdóttir
Leikskólinn Stekkjarás auglýsir eftir kennara í 100% starf.
Leikskólinn Stekkjarás er átta deilda og er staðsettur í Áslandshverfinu. Leikskólinn starfar eftir aðferðum Reggio Emilia og einkunnarorð leikskólans eru “Hugmyndir barnsins – verkefni dagsins”
Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Harpa Kolbeinsdóttir leikskólastjóri, harpako@hafnarfjordur.is eða í síma 517-5920 og Michelle Sonia Horne, aðstoðarleikskólastjóri, michelleho@hafnarfjordur.is
Contact: Bjarnveig Dagsdóttir
Lækjarskóli óskar eftir að ráða drífandi og kraftmikinn aðstoðardeildarstjóra í 100% starf í tómstundastarf skólans.
Markmið tómstundamiðstöðvarinnar er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Aðstoðardeildarstjóri tekur þátt í að stýra daglegri starfsemi félagsmiðstöðvar og frístundarheimilis og sjá til þess að uppeldisleg og fagleg vinnubrögð séu ráðandi í öllu starfi deildarinnar.
Menntunar og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarnveig Dagsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar í gegnum netfangið bjarnveig@laekjarskoli.is eða Björgvin Sigurbjörnsson aðstoðarskólastjóri í gegnum netfangið bjorgvin@laekjarskoli.is
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM.
Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2026.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Ráðið er í stöðuna frá 1. apríl
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika
Open for applications until: 20.03.2026
Contact: Ragna Dögg Magnúsdóttir
Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk – Blikaás
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga og áhugasama starfsmenn til sumarafleysinga á á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er í Blikaási í Hafnarfirði.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.
Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragna Dögg Magnúsdóttir forstöðumaður í síma 585-5762 eða á netfanginu ragnadogg@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2025
Open for applications until: 17.03.2026
Leikskólinn Stekkjarás leitar að sérkennara eða þroskaþjálfa í fullt starf.
Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum einstakling sem hefur reynslu af vinnu með börnum. Leikskólinn Stekkjarás er átta deilda og er staðsettur í Áslandshverfinu. Leikskólinn starfar eftir aðferðum Reggio Emilia og einkunnarorð leikskólans eru “Hugmyndir barnsins – verkefni dagsins”. Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fríðindi í starfi
Nánari upplýsingar veitir um starfið veitir Harpa Kolbeinsdóttir, leikskólastjóri, harpako@hafnarfjordur.is, eða í síma 517-5920.
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 17. mars 2026.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara eða Þroskaþjálfafélagi Íslands.
Open for applications from: 28.02.2026
Contact: Berglind Brynjarsdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett á Völlunum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, nætur og helgarvaktir. Við erum að leita að starfsfólki í tímabundið starf í sumar, með möguleika á fastráðningu í haust. Við leitum eftir starfsfólki sem getur hafið störf um miðjan maí. Starfshlutfall er 80 – 100 % starf í vaktavinnu.
Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðukona í síma: 544-2360, netfang: berglindbr@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 13.mars 2026.
Samkvæmt jafnréttisstefnu Hafnarfjarðar eru karlar jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið.
Open for applications from: 23.02.2026
Contact: Lúðvík Geirsson
Hafnarfjarðarhöfn óskar eftir að ráða til starfa hafnsögumann/skipstjóra í 100% starf. Starfið felst í leið- og hafnsögu skipa, skipstjórn og annarri hafnarþjónustu, móttöku og þjónustu skipa í Hafnarfjarðarhöfn og Straumsvík. Daglegur vinnutími er frá 07.30 – 15.30 virka daga, auk þess sem unnið er á bakvöktum, kvöld, nætur og helgar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Félag skipstjórnarmanna. Nánari upplýsingar veita Lúðvík Geirsson hafnarstjóri, ludvik@hafnarfjordur.is og Ágúst Ingi Sigurðsson yfirhafnsögumaður í síma 414-2300.
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 13. mars 2026.
Þar sem í gildi eru ákvæði laga um hafnarvernd á hafnarsvæði Hafnarfjarðarhafnar þarf sakavottorð að fylgja með umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.
Open for applications until: 18.03.2026
Contact: Lars Jóhann Imsland Hilmarsson
Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna tilfallandi og/eða fastri forfallakennslu á yngsta, mið- og unglingastigi og við sérdeildir skólans.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Mennunar- og hæfniskröfur:
Starfshlutfall er eftir samkomulagi. Óskað er eftir að starfsmaður hefji störf sem fyrst í tilfallandi forföll.
Nánari upplýsingar um starfið veita Lars Jóhann Imsland skólastjóri í síma 590 2800, lars@hraunvallaskoli.is og Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri adalbjorgs@hraunvallaskoli.is
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 18. mars 2026.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Open for applications from: 17.02.2026
Open for applications until: 29.03.2026
Contact: Bryndís Steina Friðgeirsdóttir
Í sumar býðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára (fæddir 2001-2008) að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Einstaklingar og hópar fá tækifæri til að starfa í sumar við að sinna skapandi verkefnum og kynna þau fyrir bæjarbúum og gestum yfir sumartímann. Skapandi sumarstörf, sem rekin eru sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar og Nýsköpunarseturs, er ætlað sem stökkpallur fyrir ungt listafólk til að þróa sig áfram í sinni list, þjálfa sig í að vinna sjálfstætt og koma listsköpun sinni á framfæri.
Umsækjendur þurfa að vera á aldrinum 18-25 ára. Við val á verkefnum verður meðal annars tekið tillit til raunhæfni og frumleika verkefnisins, fjárhagsáætlunar, fjölbreytni verkefna, kynjahlutfalli umsækjenda og gæði umsókna. Gerður verður samningur um fyrirkomulag verkefnis við viðkomandi umsækjendur sem valdir verða. Hægt er að fá aðstoð við skrif umsóknar hjá starfsmönnum Nýsköpunarseturs í gegnum netfangið nyskopunarsetur@hafnarfjordur.is.
Helstu verkefni og ábyrgð er að:
Senda þarf neðangreindar upplýsingar og fylgigögn með sem viðhengi með umsókn:
Umsóknir sem vantar þessar upplýsingar eru ekki metnar sem gildar og koma því ekki til greina þegar unnið er úr umsóknum. Sniðmát af umbeðnum skjölum má finna hér.
Umsóknarferli og vinnutímabil
Umsóknarferli
17. febrúar– umsóknir opna
29. mars- umsóknir lokast
13-17. apríl– farið er yfir umsóknir og umsækjendur með gildar umsóknir boðið í viðtal
Lok apríl og byrjun maí– svör berast
Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2026.
Vinnutímabil stendur yfir frá júní til júlí. Starfsfólk byrjar vinnutímabil á undirbúningi fyrir þátttöku í 17.júní og vinnur síðan sjálfstætt samkvæmt vinnuáætlun að verki þar til undirbúningur fyrir lokahófi- og sýningu á verki tekur við.
Heildartímafjöldi eru 208 tímar og gert ráð fyrir að verkefnið sé unnið í 7 vikur á tímabilinu júní-júlí.
Athugið að aðeins er um laun að ræða en ekki önnur fjármögnun á verkefninu. Verkefni standa straum af öllum tilfallandi framleiðslukostnaði sjálf.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Hlíf stéttarfélag.
Gerður verður samningur um fyrirkomulag verkefnis við viðkomandi umsækjendur sem valdir verða. Umsjónarmaður Vinnuskóla Hafnarfjarðar, forstöðumaður Nýsköpunarseturs og starfsmenn Nýsköpunarseturs sitja í valnefnd sem skilar niðurstöðum fyrir 17. apríl 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bryndís Steina Friðgeirsdóttir, forstöðumaður Nýsköpunarseturs, í gegnum tölvupóstinn bryndisf@hafnarfjordur.is, eða Þorbjörg Signý Ágústsson, umsjónarmann Skapandi Sumarstarfa, í gegnum tölvupóstinn thorbjorgag@hafnarfjordur.is.
Open for applications from: 13.02.2026
Contact: Auður Björk Kvaran
Hafnarfjarðarbær óskar eftir jákvæðum og metnaðarfullum sumarstarfsmanni í Klettinn. Kletturinn er frístunda, – og virkniúrræði fyrir fötluð börn og ungmenni á aldrinum 10–20 ára. Um er að ræða 100% starf í aldursskiptum hópum þar sem boðið er upp á fjölbreytta afþreyingu og stuðning við ungmenni í atvinnutengdum virkniúrræðum.
Sumarstarfið hentar einstaklega vel þeim sem vilja starfa með börnum og ungmennum og taka þátt í skapandi og líflegu starfi. Markmiðið með starfinu er að þátttakendur fái tækifæri til að kynnast nýjum tómstundum, taki þátt í fjölbreyttum vinnuverkefnum og eflist félagslega.
Vinnutími er alla virka daga frá kl. 8:00–16:00 eða 08:30-16:30.
Helstu verkefni og ábyrgð • Vera jákvæð fyrirmynd og hafa uppbyggileg áhrif á börn og ungmenni í daglegu lífi. • Taka þátt í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd fjölbreytts tómstundastarfs í samstarfi við starfsfólk og þátttakendur. • Skapa öruggt, virðingarfullt og jákvætt andrúmsloft, byggt á lýðræðislegum vinnubrögðum. • Veita þátttakendum stuðning við athafnir daglegs lífs, eftir þörfum hvers og eins. • Stuðla að sjálfstæði, félagsfærni og vellíðan einstaklinga í starfinu. • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu eða eftir beiðni yfirmanns.
Menntunar- og hæfniskröfur • Reynsla af starfi með börnum og unglingum. • Æskilegt er að hafa reynslu af starfi með fötluðum börnum eða ungmennum. • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. • Góð samskipta- og samstarfshæfni. • Frumkvæði og jákvætt viðmót. • Íslenskukunnátta er skilyrði.
Skilyrði • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. • Hreint sakavottorð er skilyrði.
Launakjör Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar.
Frekari upplýsingar um starfið veita: Auður Björk Kvaran, audurk@hafnarfjordur.is Sandra Björk Halldórsdóttir, sandrabjork@hafnarfjordur.is Erna Sóley Stefánsdóttir, ernas@hafnarfjordur.is Sími: 565-5100
Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2026. Umsókn skal fylgja ferilskrá.
Vakinn er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsin
Open for applications from: 12.01.2026
Open for applications until: 31.05.2026
Contact: ernaar@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem starfsmaður í einstaklingsstuðningi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur. Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára.
Meginmarkmið með einstaklingsstuðningi er að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun í og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi.
Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf við þjónustu á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði sem best.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Um er að ræða 60%- 70% starf og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.
Æskilegt er að hafa náð 20 ára aldri, en skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.
Contact: kristino@hafnarfjordur.is
Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk – Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum starfsmönnum til sumarafleysinga á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið helgar, morgun, kvöld og næturvaktir. Starfshlutfall 60-90% eða eftir samkomulagi.
· Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
· Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði
· Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
· Styðja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
· Almenn heimilisstörf
· Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
· Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
· Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
· Þjónustulund og jákvæðni í starfi
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
· Framtakssemi og samviskusemi
· Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
· Bílpróf
· Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað
Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristín Ólafsdóttir forstöðumaður, í síma 664-5730, netfang: kristino@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars. 2026
Með umsókn skal fylgja kynningarbréf ásamt greinargóðri ferilskrá.
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum kennurum á yngsta stigi til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 525 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.
Nánari upplýsingar veita Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861.
Umsóknarfrestur er til og með 13. mars. 2026
Open for applications from: 01.03.2026
Open for applications until: 31.08.2026
Contact: mannaudur@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is
Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.
Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.
Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum textílkennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Nú eru um 525 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði. Í haust hefst öflugt samstarfsverkefni milli leik, grunn og tónlistarskóla.
Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2026
Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum íþróttakennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur!
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 525 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði. .
Nánari upplýsingar gefa Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861.
Contact: ingibjorg@skardshlidarskoli.is
Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum heimilisfræðikennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk, í vetur eru um 525 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.
Menntunar – og hæfnikröfur:
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861.
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum kennurum á miðstigi til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja. Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Ráðið er í stöðuna frá 1.ágúst 2026.
Open for applications from: 18.02.2026
Contact: arorab@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga og áhugasama starfsmenn til sumarafleysinga á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er á Arnarhrauni í Hafnarfirði
Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Áróra Huld Bjarnadóttir forstöðumaður í síma 585-5769 eða á netfanginu arorab@hafnarfjordur.is