Aðstoðarskólastjóri Lækjarskóla

Apply for this job

Applications are open from: 14.04.2025

Applications are open to: 28.04.2025

Contact: Þórunn Jóna Hauksdóttir

Lækjarskóli í Hafnarfirði leitar að árangursdrifnum stjórnanda í starf aðstoðarskólastjóra. Hér gefst kjörið tækifæri fyrir áhugasaman og metnaðarfullan einstakling sem vill taka virkan þátt í þróun og uppbyggingu skólastarfs í skapandi og faglegu umhverfi.

Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og  stendur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í hjarta Hafnarfjarðar. Skólinn starfar í björtu og rúmgóðu húsnæði sem tekið var í notkun árið 2002 og býður meðal annars upp á sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru um 430 í 1.–10. bekk.

Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á skólamálum, leggur sig fram um að byggja upp traust og samstarf og hefur áhuga á að taka þátt í spennandi vegferð með okkur.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Dagleg stjórnun og rekstur skólans í samstarfi við skólastjóra og annað starfsfólk
  • Er staðgengill skólastjóra
  • Þátttaka í stefnumótun á starfsemi skólans í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Viðbótarmenntun/framhaldsmenntun í stjórnun æskileg
  • Farsæl kennslu- og/eða stjórnunarreynsla
  • Þekking og/eða reynsla á SMT skólafærni æskileg
  • Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og góðir skipulagshæfileikar
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Stundvísi og samviskusemi 

Nánari upplýsingar veitir Þórunn Jóna Hauksdóttir, deildarstjóri grunnskólamála, á netfangið thorunnjona@hafnarfjordur.is

Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl nk.

Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn. Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og SÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Other vacancies