Félagsráðgjafi í ráðgjafar- og húsnæðisteymi

Apply for this job

Applications are open from: 17.01.2025

Applications are open to: 31.01.2025

Contact: Soffía Ólafsdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir félagsráðgjafa til starfa í fullt starf í ráðgjafar- og húsnæðisteymi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Fjölskyldu-og barnamálasvið ber ábyrgð á fjölbreyttri þjónustu við íbúa Hafnarfjarðar þar sem leitast er við að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi íbúanna. Áhersla er lögð á heildstæða félagslega þjónustu, þverfaglega samvinnu og snemmtæka íhlutun. Auk þess er lögð áhersla á samþætta þjónustu í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á metnaðarfullt og faglegt starf í þágu bæjarbúa.

Markmið starfsins er að veita félagslega ráðgjöf og veita einstaklingum og fjölskyldum þjónustu í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita félagslega ráðgjöf til einstaklinga og fjölskyldna.
  • Móttaka og greining/mat umsókna um þjónustu (almenn ráðgjöf og fjárhagsaðstoð) og úrvinnsla þeirra
  • Snemmtæk íhlutun í málefnum barna og fjölskyldna
  • Vinnur að faglegri stefnumótun og nýsköpun í málaflokknum hjá sveitarfélaginu
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Meistaragráðu í félagsráðgjöf.
  • Reynsla af starfi með börnum og fjölskyldum æskileg
  • Reynsla af meðferðarvinnu og vinnu í þverfaglegu teymi æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfileikar
  • Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti

Nánari upplýsingar veitir Soffía Ólafsdóttir, deildarstjóri ráðgjafar-og húsnæðisteymis, soffiao@hafnarfjordur.is  

Launkjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.  

Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2025.

Ferilskrá, kynningarbréf og starfsréttindi fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Other vacancies