Kennari – Leikskólinn Hlíðarendi

Apply for this job

Applications are open from: 30.04.2024

Applications are open to: 14.05.2024

Contact: Bryndís Guðlaugsdóttir

Leikskólinn Hlíðarendi óskar eftir að ráða leikskólakennara í 100% stöðu.

Leikskólinn Hlíðarendi er fjögurra deilda og er staðsettur í útjaðri Setbergshverfis. Helstu áhersluþættir eru hreyfing, lífsleikni og umhverfismennt.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna
  • Færni í samskiptum og sveigjanleiki
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður
  • Góð íslenskukunnátta

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veita Bryndís Guðlaugsdóttir leikskólastjóri og Fjóla Kristjánsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555 1440. Fyrirspurnir má einnig senda á netfangið hlidarendi@hafnarfjordur.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitafélaga og KÍ v/Félags leikskólakennara.

Umsóknarfrestur er til 14. maí 2024

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.  

Fríðindi í starfi:

  • Menningarkort – bókasafnskort
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Sundkort
  • Afsláttur af leikskólagjöldum

Other vacancies