In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
Applications are open from: 19.03.2026
Applications are open to: 30.03.2026
Contact: thordisru@hafnarfjordur.is
Share this vacancy
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf í Miðstöðina sem er ný sameinuð vinnu og virknimiðstöð fyrir fatlað fólk. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða spennandi, lærdómsríkt og framsækið 100% framtíðarstarf með fjölbreyttum verkefnum. Hefðbundin dagvinna frá 8- 16 eða 8:30-16:30.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Hæfniskröfur:
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Rúriksdóttir, forstöðuþroskaþjálfi. thordisru@hafnarfjordur.is eða í síma: 565-5100
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Open for applications from: 18.02.2026
Open for applications until: 22.03.2026
Contact: arorab@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga og áhugasama starfsmenn til sumarafleysinga á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er á Arnarhrauni í Hafnarfirði
Í boði er fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Áróra Huld Bjarnadóttir forstöðumaður í síma 585-5769 eða á netfanginu arorab@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2026
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
Open for applications from: 16.03.2026
Open for applications until: 30.03.2026
Contact: ingibjorg@skardshlidarskoli.is
Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum heimilisfræðikennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.
Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk, í vetur eru um 525 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.
Menntunar – og hæfnikröfur:
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er til og með 30. mars 2026
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Open for applications until: 06.04.2026
Contact: ludvik@hafnarfjordur.is
Sumarstarfsmaður hjá Hafnarfjarðarhöfn í ferðaþjónustu
Hafnarfjarðarhöfn, í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ, leitar að öflugum sumarstarfsmanni til að sinna verkefnum tengdum þjónustu við skemmtiferðaskip og upplýsingamiðlun ferðamála í Hafnarfirði. Leitað er eftir sumarstarfsmanni sem hefur þekkingu og áhuga á ferðaþjónustu.
Auk þess mun starfsmaðurinn sinn almennri upplýsingagjöf um áfangastaðinn Hafnarfjörð og öðrum tilfallandi verkefnum eins og við á.
Hafnarfjarðarhöfn er ein elsta höfn landsins en starfsemi hennar er í dag ákaflega mikil og fjölbreytt.
Um er að ræða 100% starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Nánari upplýsingar veitir Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri Hafnarfjarðarhafnar, ludvik@hafnarfjordur.is og Sunna Magnúsdóttir, verkefnastjóri menningar- og ferðamála á Þjónustu- og þróunarsviði, sunnam@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur til og með 6. apríl 2026.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og STH.
Contact: Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er í Svöluási í Áslandshverfi. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun- kvöld-, helgar og næturvaktir.
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir, forstöðukona í síma 565-0301 netfang: birgittar@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Open for applications from: 13.03.2026
Open for applications until: 25.03.2026
Contact: Andri Berg Haraldsson
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða sumarstarfsmann á fjármálasvið til ýmissa starfa innan reikningshalds- og uppgjörsdeildar, fjárreiðudeildar og hagdeildar. Við leitum að aðila sem er talnaglöggur og vel tölvufær. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur. Starfið hentar vel fyrir nema í viðskiptafræði, hagfræði eða sambærilegu námi.
Fjármálasvið er eitt af stoðsviðum sveitarfélagsins og starfa 20 manns á sviðinu. Sviðinu er skipt í fjárreiðudeild, reikningshalds- og uppgjörsdeild, hagdeild, innkaupadeild og launadeild.
Um er að ræða 100% sumarstarf.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar veitir Andri Berg Haraldsson deildarstjóri reikningshalds- og uppgjörsdeildar andrih@hafnarfjordur.is og Þórey Hallbergsdóttir deildarstjóri fjárreiðudeildar thoreyh@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2026.
Greinagóð ferilskrá fylgi umsókn.
Contact: Margrét Halldórsdóttir
Engidalsskóli óskar eftir umsjónarkennara í 80-100% starf á miðstigi, tímabundin ráðning til eins árs.
Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk. Í næsta vetur verða nemendur um 200.
Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymisvinnu og velferð og vellíðan nemenda og starfsmanna. Skólinn er heilsueflandi, flaggar Grænfána og er í innleiðingu á leiðsagnarnámi.Skólinn starfar samkæmt Uppeldi til ábyrgðar. Við leggjum mikla áherslu á lestarnám og er lestur eina heimanám nemenda. Við skólann er einstaklega skemmtileg skólalóð sem býður upp á fjölbreytta möguleika til leikja og útikennslu. Góður starfsandi og jákvæð samskipti eru meðal allra sem í skólanum starfa. Við leitum að fólki sem vill taka þátt í að byggja upp öflugt skólastarf með okkur
Leiðarljós skólans eru: Ábyrgð – Virðing – Vellíðan
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri, margreth@engidalsskoli.is í síma 555-4433.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 6. apríl 2026.
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn. Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Engidalsskóli óskar eftir umsjónarkennara í 100% starf á miðstigi.
Open for applications from: 12.03.2026
Contact: Fanney Dóróthe Halldórsdóttir
Laus er til umsóknar staða skólastjóra Víðistaðaskóla í Hafnarfirði. Ráðið verður í stöðuna frá 15. júlí næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi.
Víðistaðaskóli er heildstæður grunnskóli með um 520 nemendur í 1. – 10. bekk. Í skólanum er starfrækt frístundaheimilið Hraunkot fyrir nemendur í 1.-4. bekk og félagsmiðstöð fyrir eldri nemendur.
Leitað er að metnaðarfullum leiðtoga sem býr yfir víðtækri þekkingu á skólastarfi, hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu námsumhverfi og getu til að leiða skólann áfram undir einkunnarorðum hans; ábyrgð – virðing – vinátta. Viðkomandi mun þróa áfram jákvæðan skólabrag sem stuðlar að vellíðan, samvinnu, fjölbreytileika og sköpun í samræmi við menntastefnu Hafnarfjarðar.
Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir árangursdrifinn og hugmyndaríkan einstakling til að byggja upp eftirsóknarverðan vinnustað.
Hafnarfjarðarbær vinnur samkvæmt verklagi um snemmtækan stuðning við leik- og grunnskólabörn, þar sem megináhersla er lögð á samþætta þjónustu við börn og fjölskyldur á fyrri stigum, aukið samstarf í nærumhverfi barnsins og framkvæmd í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars nk.
Umsókn um starfið þarf að fylgja greinargóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, fyrri störfum, menntun, stjórnunarreynslu og hæfni til að sinna starfi grunnskólastjóra ásamt afriti af prófskírteinum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs, í síma 585-5800, fanney@hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynja í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Open for applications until: 26.03.2026
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er í Svöluási í Áslandshverfi. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hreint sakavottorð er skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir, forstöðukona í síma 565-0301, netfang: birgittar@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2026.
Open for applications from: 17.03.2026
Open for applications until: 07.04.2026
Contact: Hildur Arnar Bjargardóttir
Heilsuleikskólinn Hamravellir óskar eftir að ráða metnaðarfullan og öflugan sérkennslustjóra. Ráðið er í stöðuna tímabundið til áramóta með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Í Heilsuleikskólanum Hamravöllum er hópur faglegra og skemmtilegra starfsmanna sem óskar eftir liðsauka.
Heilsuleikskólinn Hamravellir er staðsettur innarlega á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Hamravellir er heilsuleikskóli þar sem áhersla er lögð á hollt mataræði, útiveru, hreyfingu og sköpun. Einkunnarorð leikskólans eru hreyfing, sköpun og vellíðan og gildi leikskólans eru leikur og umhyggja.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða þroskaþjálfa með starfsréttindi sem slíkur sem hefur reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Hildur Arnar Bjargardóttir, leikskólastjóri, hildurarnar@hafnarfjordur.is eða í síma 664-5832
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara eða Þroskaþjálfafélag Íslands.
Fríðindi í starfi:
Open for applications until: 31.03.2026
Contact: ingibjorgo@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga sumarstarfsmenn í lærdómsríkt starf við þjónustu á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði sem best.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Um er að ræða 70%-100% starf eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.
Æskilegt er að hafa náð 20 ára aldri, en skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi á netfangið ingibjorgo@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5765.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 31 mars 2026.
Open for applications from: 19.03.2026
Open for applications until: 02.04.2026
Contact: Lars J. Imsland
Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna umsjónar- og fagreinakennslu á unglingastigi skólaárið 2026-2027. Starfshlutfall er 100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf í 1. ágúst 2026.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum.
Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og Aðalbjörg Sigurðardóttir, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 2. apríl 2026
Contact: lars@hraunvallaskoli.is
Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna umsjónarkennslu á yngsta eða miðstigi skólaárið 2026-2027.
Starfshlutfall er 80-100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og Aðalbjörg Sigurðardóttir, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er til 2. apríl 2026.
Contact: Lars Jóhann Imsland
Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara í Fjölgreinadeild skólans fyrir skólaárið 2026-2027.
Í Fjölgreinadeild eru nemendur sem á grundvelli fjölþætts vanda geta ekki nýtt alfarið þau námstilboð sem bjóðast í þeirra heimaskóla. Starfsstöð umsjónarkennara er við Fléttuvelli á skólalóð Hraunvallskóla og er skipuð fjórum til fimm starfsmönnum.
Umsækjandi þarf að hafa jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers eins til breytinga og þróunar þar sem leitast er við að byggja á styrk hvers og eins. Einnig þarf viðkomandi hafa góða leiðtogahæfileika, víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, og Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2026
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá og kynningarbréf.
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Hraunvallaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara í Hraunborg – deild fyrir börn með einhverfu – skólaárið 2026-2027.
Starfshlutfall er 100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf sem fyrst.
Við erum að byggja upp nýja einhverfudeild sem leggur áherslu á einstaklingsmiðaða þjónustu, virðingu og jákvætt umhverfi fyrir börn með einhverfu og fjölskyldur þeirra. Markmið okkar er að skapa öflugt teymi starfsfólks sem vinnur saman að því að styðja hvert barn til þátttöku, þroska og vellíðunar. Deildin vinnur út frá styrkleikum barnanna og leggur áherslu á fjölbreyttar leiðir til að efla félagsfærni, nám og sjálfstæði. Við leitum að starfsfólki sem deilir okkar sýn og hefur brennandi áhuga á að taka þátt í að móta nýja starfsemi þar sem velferð og mannréttindi barnanna eru í forgrunni.
Umsækjandi þarf að hafa jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers og eins til breytinga og þróunar þar sem leitast er við að byggja á styrk hvers og eins.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is í síma 590-2800.
Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2026.
Contact: Pálína Hildur Sigurðardóttir
Hraunvallaleikskóli óskar eftir að ráða kennara í 100% starf.
Hraunvallaleikskóli er staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði í sama húsnæði og Hraunvallaskóli sem stuðlar að samþættu námi barnanna frá því þau stíga sín fyrstu skref í leikskóla að sextán ára aldri. Gildi skólans endurspegla allt starf og eru vinátta, samvinna og ábyrgð. í Hraunvallaleikskóla er unnið eftir hugmyndafræði John Dewey um virka þátttöku barnsins í námi með áherslu á leik og samfélagslega þátttöku barna. Í skólanum er unnið með SMT-skólafærni þar sem æskilegri hegðun er veitt aukin athygli með markvissu hrósi og umbun. Skýr fyrirmæli eru höfð að leiðarljósi og rækt lögð við góð samskipti.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Upplýsingar um starfið veitir Pálína Hildur Sigurðardóttir leikskólastjóri palinas@hraunvallaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2026
Contact: Margrét Heiða Magnúsdóttir
Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 50% starf í frístundaheimilið Holtasel.
Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Holtaseli eftir hádegi alla virka daga. Eftir að hefðbundnum skóla lýkur geta nemendur í 1. – 4. bekk farið í frístundaheimilið Holtasel. Starfsemi Holtasels er í skólanum. Holtasel býður upp á fjölbreytt tómstundastarf til kl. 16:30, alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Heiða Magnúsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, í síma 664-5778 eða í gegnum netfangið margretm@hvaleyrarskoli.is eða Kristinn Guðlaugsson skólastjóri í síma 664-5833 eða í gegnum netfangið kristinn@hvaleyrarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 2.apríl 2026.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Contact: Þórdís Rúriksdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í sumarstarf á heimili fyrir fatlaðan einstakling, sem staðsett er í Setberginu. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf, í boði er 60-90% starf. Starfið er vaktavinna þar sem unnið er dagvaktir, kvöldvaktir og helgarvaktir.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður í síma: 565-5100, netfang: thordisru@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026.
Contact: Svanhildur Birkisdóttir
Leikskólinn Víðivellir óskar eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan kennara í tímabundna afleysingu til 15.maí. Þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Leikskólinn Víðivellir er fyrsti leikskólinn sem Hafnarfjarðarbær rekur og tók til starfa árið 1977. Víðivellir er fjögurra deilda leikskóli. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á inngildandi leikskólastarf og í skólanum er góð aðstaða og sérþekking á að mæta þörfum margbreytilegs barnahóps. Einnig er lögð sérstök áhersla á vinnu með orðaforðanámskrá leikskólans, tákn með tali og skipulagða hreyfingu.
Lagt er mikið upp úr því að hvert barn fái að njóta sín á sínum forsendum í barnahópnum og að börn og fjölskyldur þeirra fái öfluga og samþætta þjónustu þegar á þarf að halda.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til og með 26.mars 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veita Svanhildur Birkisdóttir, svanhildurbi@hafnarfjordur.is leikskólastjóri og Eyrún Edvardsdóttir, eyrune@hafnarfjordur.is, aðstoðarleikskólastjóri s.5553599
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Open for applications from: 11.03.2026
Contact: Berglind Kristjánsdóttir og Katrín Hildur Jónasdóttir
Skarðshlíðarleikskóli auglýsir eftir að ráða leikskólakennara í 100% starf.
Skarðshlíðarleikskóli er nýlegur fjögurra deilda leikskóli sem uppfyllir nútímakröfur leikskólastarfs. Hann er staðsettur að Hádegisskarði 1. í einungis 4 mínútna fjarlægð frá Reykjanesbraut um Kaldárselsveg.
Hugmyndafræðilegur grunnur skólans tekur mið af lærdómssamfélagi (e. Professional Learning Community) þar sem allir læra saman og er áhersla lögð á virka þátttöku við að þróa öflugt skólastarf. Við leggjum áherslu á lýðræði, frumkvæði og lífsgleði í daglegum samskiptum og að auka leikni og færni barna í gegnum leikinn. Við viljum skapa góðan starfsanda þar sem allir fá að njóta sín og leggja sitt af mörkum. Stefna skólans tekur mið af Fjölgreindarkenningu Howards Gardners og Uppeldi til ábyrgðar.
Einkunnarorð leikskólans eru virðing, umhyggja og gleði.
Leikskólinn deilir húsnæði með grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttahúsi og bókasafni sem býður upp á mikla og spennandi möguleika á samstarfi sem er í stöðugri þróun.
Ferilskrá og leyfisbréf kennara fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Kristjánsdóttir berglindkrist@hafnarfjordur.is eða í síma 527 7380
Umsóknarfrestur er til 25. mars 2026
Open for applications from: 01.03.2026
Open for applications until: 31.08.2026
Contact: mannaudur@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.
Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is
Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.
Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Open for applications from: 27.02.2026
Open for applications until: 20.03.2026
Contact: kristino@hafnarfjordur.is
Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk – Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum starfsmönnum til sumarafleysinga á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið helgar, morgun, kvöld og næturvaktir. Starfshlutfall 60-90% eða eftir samkomulagi.
· Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
· Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði
· Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
· Styðja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
· Almenn heimilisstörf
· Samskipti við ýmsa þjónustuaðila
· Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
· Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
· Þjónustulund og jákvæðni í starfi
· Hæfni í mannlegum samskiptum
· Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
· Framtakssemi og samviskusemi
· Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
· Bílpróf
· Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað
Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristín Ólafsdóttir forstöðumaður, í síma 664-5730, netfang: kristino@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars. 2026
Með umsókn skal fylgja kynningarbréf ásamt greinargóðri ferilskrá.
Contact: Ragna Dögg Magnúsdóttir
Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk – Blikaás
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga og áhugasama starfsmenn til sumarafleysinga á á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er í Blikaási í Hafnarfirði.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.
Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragna Dögg Magnúsdóttir forstöðumaður í síma 585-5762 eða á netfanginu ragnadogg@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 20. mars 2025
Open for applications from: 18.03.2026
Open for applications until: 01.04.2026
Við óskum eftir glöðum og jákvæðum starfsmönnum í sumarafleysingar í leikskólum Hafnarfjarðarbæjar.
Ráðningartíminn getur verið misjafn, að jafnaði frá miðjum maí fram í seinni hluta ágúst. Leikskólar Hafnarfjarðabæjar verða lokaðir frá 13. júlí til og með 3. ágúst.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð og sé 18 ára eða eldri.
Nánari upplýsingar um störfin veita leikskólastjórar í hverjum leikskóla.
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2026
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Fáist faglærður kennari til starfa, nýtur hann forgangs í starfið á grundvelli laga nr. 95/2019. Við hvetjum kennara til að sækja um. Leyfisbréf kennara fylgi umsókn.
Open for applications from: 17.02.2026
Open for applications until: 29.03.2026
Contact: Bryndís Steina Friðgeirsdóttir
Í sumar býðst einstaklingum og hópum á aldrinum 18-25 ára (fæddir 2001-2008) að koma með hugmyndir að skapandi verkefnum í Hafnarfirði. Einstaklingar og hópar fá tækifæri til að starfa í sumar við að sinna skapandi verkefnum og kynna þau fyrir bæjarbúum og gestum yfir sumartímann. Skapandi sumarstörf, sem rekin eru sem hluti af Vinnuskóla Hafnarfjarðar og Nýsköpunarseturs, er ætlað sem stökkpallur fyrir ungt listafólk til að þróa sig áfram í sinni list, þjálfa sig í að vinna sjálfstætt og koma listsköpun sinni á framfæri.
Umsækjendur þurfa að vera á aldrinum 18-25 ára. Við val á verkefnum verður meðal annars tekið tillit til raunhæfni og frumleika verkefnisins, fjárhagsáætlunar, fjölbreytni verkefna, kynjahlutfalli umsækjenda og gæði umsókna. Gerður verður samningur um fyrirkomulag verkefnis við viðkomandi umsækjendur sem valdir verða. Hægt er að fá aðstoð við skrif umsóknar hjá starfsmönnum Nýsköpunarseturs í gegnum netfangið nyskopunarsetur@hafnarfjordur.is.
Helstu verkefni og ábyrgð er að:
Senda þarf neðangreindar upplýsingar og fylgigögn með sem viðhengi með umsókn:
Umsóknir sem vantar þessar upplýsingar eru ekki metnar sem gildar og koma því ekki til greina þegar unnið er úr umsóknum. Sniðmát af umbeðnum skjölum má finna hér.
Umsóknarferli og vinnutímabil
Umsóknarferli
17. febrúar– umsóknir opna
29. mars- umsóknir lokast
13-17. apríl– farið er yfir umsóknir og umsækjendur með gildar umsóknir boðið í viðtal
Lok apríl og byrjun maí– svör berast
Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2026.
Vinnutímabil stendur yfir frá júní til júlí. Starfsfólk byrjar vinnutímabil á undirbúningi fyrir þátttöku í 17.júní og vinnur síðan sjálfstætt samkvæmt vinnuáætlun að verki þar til undirbúningur fyrir lokahófi- og sýningu á verki tekur við.
Heildartímafjöldi eru 208 tímar og gert ráð fyrir að verkefnið sé unnið í 7 vikur á tímabilinu júní-júlí.
Athugið að aðeins er um laun að ræða en ekki önnur fjármögnun á verkefninu. Verkefni standa straum af öllum tilfallandi framleiðslukostnaði sjálf.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Hlíf stéttarfélag.
Gerður verður samningur um fyrirkomulag verkefnis við viðkomandi umsækjendur sem valdir verða. Umsjónarmaður Vinnuskóla Hafnarfjarðar, forstöðumaður Nýsköpunarseturs og starfsmenn Nýsköpunarseturs sitja í valnefnd sem skilar niðurstöðum fyrir 17. apríl 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bryndís Steina Friðgeirsdóttir, forstöðumaður Nýsköpunarseturs, í gegnum tölvupóstinn bryndisf@hafnarfjordur.is, eða Þorbjörg Signý Ágústsson, umsjónarmann Skapandi Sumarstarfa, í gegnum tölvupóstinn thorbjorgag@hafnarfjordur.is.
Open for applications from: 12.01.2026
Open for applications until: 31.05.2026
Contact: ernaar@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem starfsmaður í einstaklingsstuðningi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur. Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára.
Meginmarkmið með einstaklingsstuðningi er að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun í og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi.
Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Open for applications from: 04.03.2026
Contact: Kristín Anna Th. Jensdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn til sumarafleysinga í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Berjahlíð. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Spennandi og skemmtilegt starf með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Starfshlutfall er 60-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Anna Th. Jensdóttir forstöðumaður í síma 585-5761 eða á netfanginu kristinj@hafnarfjordur.is
Open for applications from: 10.03.2026
Open for applications until: 24.03.2026
Contact: Brynja Rut Vilhjálmsdóttir
Leitað er að metnaðarfullum og áhugasömum einstakling í sumarstarf og tilfallandi tímavinnu. Lækur er athvarf fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir. Markmið Lækjar er að draga úr félagslegri einangrun og auka lífsgæði. Í boði er spennandi og lærdómsríkt starf með fjölbreyttum verkefnum. Óskað er eftir sumarafleysingu í 80% dagvinnu fyrir tímabilið 1. júlí -15. ágúst.
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð
Upplýsingar um starfið veitir Brynja Rut Vilhjálmsdóttir, sími: 664-5746 eða 585-5770, eða í gegnum tölvupóst: brynjarut@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar (STH).
Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2026.
Contact: Áslaug Erla Hansdóttir
Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsfólk í afleysingar í sértækri stuðningsþjónustu.
Um tímabundna ráðningu er að ræða frá vori og út nóvember 2026. Æskilegt að starfsmaður geti byrjað sem fyrst.
Starfsmaður aðstoðar þjónustuþega með miklar og flókar þjónustuþarfir og vinnur eftir stefnu Hafnarfjarðar í málefnum heimilislausra og veitir einstaklingsmiðaða þjónustu sem er skipulögð með tilliti til þarfa einstaklingsins.Tekið er mið af skaðaminnkandi hugmyndafræði og batamiðaðri nálgun. Vinnutími er frá hádegi og fram á kvöld alla daga vikunnar, unnið í vaktavinnu.
Einstaklingurinn þarf að hafa bílpróf og bíl til umráða.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf.
Nánari upplýsingar veitir Áslaug Erla Hansdóttir teymisstjóri sértækrar heimaþjónustu aslaugh@hafnarfjordur.is eða í síma 585 5500.
Open for applications until: 10.04.2026
Contact: Elín Ósk Baldursdóttir
Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsfólk í stuðningsþjónustu í sumarafleysingar. Starfshlutfall er 100%
Stuðningsþjónustan ber ábyrgð á fjölbreyttri þjónustu við íbúa Hafnarfjarðar. Leitast er við að veita einstaklingsmiðaða þjónustu.
Helstu verkefni:
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2026.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Verkalýðsfélagsins Hlífar.
Nánari upplýsingar veitir Elín Ósk Baldursdóttir deildarstjóri elinob@hafnarfjordur.is eða í síma 585 5500.
Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar óskar eftir að ráða starfsfólk í stuðningsþjónustu í sumarafleysingar.
Starfshlutfall er allt að 100% og bæði vantar í dagvinnu sem og vaktavinnu á kvöldin og um helgar. Um er að ræða sumarafleysingar.
Contact: hildurarnar@hafnarfjordur.is
Heilsuleikskólinn Hamravellir óskar eftir að ráða metnaðarfullan starfsmann í fullt starf.
Hamravellir er staðsettur innarlega á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Hamravellir er heilsuleikskóli þar sem áhersla er lögð á hollt mataræði, útiveru, hreyfingu og sköpun. Einkunnarorð leikskólans eru hreyfing, sköpun og vellíðan. Gildi leikskólans eru leikur og umhyggja.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Arnar Bjargardóttir, leikskólastjóri, hildurarnar@hafnarfjordur.is eða í síma 424-4640.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf, eða KÍ ef kennaramenntaður einstaklingur sækir um starfið.
Heilsuleikskólinn Hamravellir óskar eftir að ráða kennara í 100% starf.
Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Umsóknarfrestur er til og með 24. mars 2026
Nánari upplýsingar um störfin veitir Hildur Arnar Bjargardóttir leikskólastjóri, hildurarnar@hafnarfjordur.is eða í síma 464-4640.
Open for applications from: 09.03.2026
Open for applications until: 23.03.2026
Contact: Ingibjörg Magnúsdóttir
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum tónmenntarkennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur í 70% starf. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Nú eru um 530 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði. Í haust hefst öflugt samstarfsverkefni milli leik, grunn og tónlistarskóla.
Nánari upplýsingar veita Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 og Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861
Umsóknarfrestur er til og með 23. mars. 2026
Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Open for applications from: 06.03.2026
Contact: Hrönn Harðardóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða þroskaþjálfa til starfa á skammtímadvöl fyrir fötluð ungmenni, staðsett í Setbergshverfi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 15. maí n.k. eða eftir samkomulagi
Starfshlutfall er 80% – 90% og er unnið í vaktavinnu, viðkomandi þarf að geta unnið á morgun, kvöld- og helgarvöktum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Harðardóttir forstöðuþroskaþjálfi í síma: 565-2545, netfang: hronnha@hafnarfjordur.is
Umsókn fylgi greinagóð ferilskrá ásamt leyfisbréfi.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands.
Hraunvallaskóli auglýsir eftir sérkennara til að sinna sérkennslu skólaárið 2026-2027
Skólinn hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Segja má að nemendur hefji skólagöngu sína átján mánaða í Hraunvallaskóla og ljúki henni við sextán ára aldur. Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennsla er miðuð við að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem læra að skipuleggja nám sitt sjálfir og meta árangur sinn. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.
Sérkennari er hluti af sérkennsluteymi skólans og vinnur í nánu samstarfi við umsjónarkennara að námi barna með sérþarfir.
Umsóknarfrestur er til 2. apríl 2026. Um er að ræða 50-100% starf