Yfirþroskaþjálfi / deildarstjóri á skammtímadvöl fyrir fatlað fólk – Hnotuberg
Apply for this jobApplications are open from: 11.04.2025
Applications are open to: 25.04.2025
Contact: Hrönn Harðardóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan yfirþroskaþjálfa á skammtímadvöl fyrir fötluð ungmenni, staðsett í Setbergshverfi. Um er að ræða 90 til 100% fjölbreytt og skemmtilegt starf sem unnið er í vaktavinnu. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á réttindi fatlaðs fólks.
Við leitum að áhugasömum einstaklingi með góða færni í mannlegum samskiptum og brennur fyrir að veita frammúrskarandi þjónustu. Ráðning er frá og með 1. júní n.k.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Ber ábyrgð á skipulagningu, samhæfingu, áætlanagerð, skýrslugerð, upplýsingamiðlun, ráðgjöf og fræðslu
- Veitir starfsmönnum fræðslu og handleiðslu
- Framfylgir hlutverki og markmiðum starfsstöðvar
- Veitir fötluðu fólki stuðning og ráðgjöf við athafnir daglegs lífs
- Vera öðrum fyrirmynd
- Tekur virkan þátt í þróunarvinnu
- Er staðgengill forstöðumanns í hans fjarveru
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Hæfniskröfur:
- Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða BA/BS gráða á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda
- Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki
- Reynsla af skipulagi faglegs starfs á sviði þroskaþjálfunar
- Stjórnunarreynsla er kostur
- Reynsla og þekking af teymisvinnu er kostur
- Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Faglegur metnaður í starfi og áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Líkamleg geta til þess að sinna krefjandi verkefnum á vinnustað
- Íslenskukunnátta skilyrði
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrönn Harðardóttir, forstöðuþroskaþjálfi í síma 565-2545 netfang: hronnha@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og BHM
Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2025
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.