Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Endurskoðun á deiliskipulagi Vesturbæjar

Hugmyndavinna varðandi deiliskipulag Vesturbæjar var kynnt til íbúa í upphafi árs 2020. Annars vegar fer fram húsakönnun og hins vegar fornleifaskoðun, sem Minjastofnun síðan samþykkir. Byggðasafn Hafnarfjarðar og Gláma·Kím arkitektar hafa unnið að húsakönnun fyrir Vesturbæinn þar sem öll hús innan skipulagssvæðisins eru skráð. Húsakönnunin verður gerð aðgengileg fyrir íbúa þegar þar að kemur.

Verndarsvæði í byggð

Í Vesturbænum eru nú þegar fjöldi húsa sem falla undir lög um menningarminjar. Stefnt er að því að hluti skipulagssvæðisins verði að Verndarsvæði í byggð í samræmi við lög nr. 87/2015. Markmiðið er að stuðla að vernd og varðveislu byggðar sem hefur sögulegt gildi. Verndarsvæði í byggð gerir ríkar kröfur til húseigenda en skuldbindur jafnframt sveitarfélagið til þess að vanda frágang á götum, gangstígum, leiksvæðum, grænum svæðum og öðrum bæjarrýmum.

Markmiðið er að gefa út eins konar handbók húseigandans þar verður auðvelt að leita ráða og fá leiðbeiningar þegar á að breyta eða bæta. 

 

Kort sem sýnir byggingarár allra húsa í Vesturbæ

Friðun húsa

Hvort sem hús er byggt árið 1880 eða 2000 þarf alltaf að fá leyfi til að breyta. Þrír flokkar varða hús í Vesturbænum.

  • Hús byggð 1925 og fyrr eru umsagnarskyld. Minjastofnun Íslands (MÍ) veitir leiðbeinandi umsögn.
  • Hús sem hafa náð 100 ára aldri eru friðuð og ekki er heimilt að samþykkja breytingar á þeim nema með samþykki MÍ.
  • Öll hús sem voru friðuð fyrir gildistöku nýrra laga árið 2013 eru friðlýst. Friðlýst hús eru óháð aldri en hafa ef til vill sögulegt gildi eða teljast hátt skrifuð út frá byggingarlist.

Stundum er litið á friðun húsa sem eitthvað slæmt en í raun setur friðun húsa þau á ákveðinn stall. Þar sem slíkum húsum er vel við haldið hefur það haft áhrif á söluverð hússins og jafnvel verð annarra eigna í sömu götu. Um það eru til ýmsar skýrslur erlendis frá sem sýna fram á gildi byggingararfsins. (Realdania; værdien af bygningsarven mars 2015).

Töluvert er um að fólk vilji breyta húsum á þessu svæði, til dæmis stækka pínulítil timburhús þegar nútíma-heimilistæki komast ekki inn í rýmin. Það er líka húsvernd að koma slíku í farveg þar sem húsvernd getur líka falist í því að húsin eru í notkun. Við endurskoðun deiliskipulags þarf meðal annars að skoða þessa þætti, hvar sé mögulegt að byggja við og með hvaða hætti. Síðan þarf deiliskipulagið og Verndarsvæði í byggð að haldast í hendur.

Mynd af húsi þar sem útliti hefur verið breytt í stíl við upprunaleg stíleinkenni hússins

 

Suggestion portal