Myndmenntakennari, afleysing í eitt ár– Lækjarskóli

Apply for this job

Applications are open from: 16.04.2024

Applications are open to: 30.04.2024

Contact: Dögg Gunnarsdóttir

Lækjarskóli auglýsir eftir myndmenntakennara í 80% starf haustið 2024 – afleysing í eitt ár.

Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.  

 

Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag. 

Lækjarskóli hefur verið í innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984).  UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda. 

Við auglýsum nú eftir kennara á yngsta stigi sem jafnframt er tilbúinn til að taka þátt í metnaðarfullri þróun starfsins í Lækjarskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu í myndmennt í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra
  • Gerð námsáætlana til nánari útfærslu námskrár fyrir sína námsgrein
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna eftir stefnu skólans í eineltis- og forvarnarmálum
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar – og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (Leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Fagleg þekking á sviði myndmenntakennslu
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa með börnum og ungmennum í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Hafðu samband við Dögg Gunnarsdóttur, skólastjóra í síma 6645877 dogg@laekjarskoli.is eða Örnu B. Arnardóttur, aðstoðarskólastjóri, arna@laekjarskoli.is .

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.

Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2024.

Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

 

Other vacancies