Skóla- og frístundaliði – Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot – stuðningur við barn

Apply for this job

Applications are open from: 18.02.2026

Applications are open to: 04.03.2026

Contact: Margrét Halldórsdóttir

Engidalsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í hlutastarf á frístundaheimilið Álfakot í 40% í stuðning með barni

Í Engidalsskóla er starfrækt frístundaheimili fyrir 6 – 9 ára börn. Markmið frístundastarfs er að gefa börnum og ungmennum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.

Starfið felur í sér stuðning við barn í frístundastarfi skólans. Vinnutími er á bilinu 13:00-16:00.

Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, nemendur eru um 200. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð – Virðing – Vellíðan

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Starfa á frístundaheimili fyrir yngri nemendur
  • Stuðningur við barn
  • Starfa með fjölbreyttum nemendahópi
  • Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
  • Fylgjast með og aðstoða börn í leik og starfi
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu skóla- og frístundaliða og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur
  • Áhugi á faglegu starfi með börnum
  • Góð íslenskukunnátta
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Arnheidur Gudmundsdóttir deildarstjóri frístundastarfs í netfangið arnheidurg@engidalsskoli.is eða í síma 555-4434.

Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitafélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.

Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2026.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn. 

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Other vacancies