In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
Applications are open from: 05.06.2026
Applications are open to: 19.06.2026
Contact: Unnur Elfa Guðmundsdóttir
Share this vacancy
Verkefnastjóri í félagsmiðstöð – Áslandsskóli – Ásinn
Áslandsskóli óskar eftir að ráða verkefnastjóra í spennandi starf með börnum og unglingum í félagsmiðstöðina Ásinn sem er hluti af tómstundamiðstöð skólans. Félagsmiðstöðin býður börnum og unglingum á aldrinum 5.-10.bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóla lýkur.
Félagsmiðstöðin Ásinn býður nemendum í 5.-10 bekk upp á skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna.
Markmið starfsins er að gefa börnum og unglingum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli og að skapa vettvang þar sem börn og unglingar fá tækifæri til að efla sjálfstraust sitt og félagsfærni. Verkefnastjóri í félagsmiðstöð ber ábyrgð á að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við börn og unglinga sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni.
Um er að ræða 50% starf. Vinnutími er að hluta til á kvöldin á virkum dögum og dagvinna að hluta. Fjölbreyttur vinnutími í boði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 19.júní 2026.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eva Björk Jónsdóttir, deildarstjóri tómstundarmiðstöðvar evabjork@aslandsskoli.is , Unnur Elfa Guðmundsdóttir, skólastjóri unnur@aslandsskoli.is og Hálfdan Þorsteinsson aðstoðarskólastjóri, halfdanth@aslandsskoli.is
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Open for applications from: 01.03.2026
Open for applications until: 31.08.2026
Contact: mannaudur@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.
Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.
Hæfniskröfur:
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is
Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.
Open for applications from: 02.06.2026
Open for applications until: 16.06.2026
Contact: Margrét Sverrisdóttir, Áslaug Hreiðarsdóttir
Öldutúnsskóli auglýsir eftir dönskukennara á unglingastigi.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Í Öldutúnsskóla eru um 590 nemendur í 1. – 10. bekk.
Í Öldutúnsskóla stunda um 590 nemendur nám í 1.–10. bekk. Við skólann er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem leitast er við að gera námið bæði áhugavert og skemmtilegt. Mikil áhersla er lögð á jákvæðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti, öfluga teymisvinnu og markvissa teymiskennslu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og endurspeglast þau í öllu starfi hans. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og Olweusaráætlun gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Jafnframt er lögð rík áhersla á umhverfismál og sjálfbærni.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir skólastjóri, í síma 664-5894, og Áslaug Hreiðarsdóttir aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5895
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http:www.oldutunsskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 16. júní 2026
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Open for applications until: 12.06.2026
Contact: Eiríkur Stephensen
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar auglýsir eftir rytmískum söngkennara, um hlutastarf (35% starf) er að ræða. Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2026.
Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti.
Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar eru um 600 nemendur og 56 kennarar.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Stephensen, skólastjóri, í síma 664-5882 og í gegnum tölvupóst eirikur@tonhaf.is og Stefán Ómar Jakobsson, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5884 og í gegnum tölvupóst stefanj@tonhaf.is
Umsóknarfrestur er til og með 12. júní 2026
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FT/FÍH.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Open for applications until: 26.06.2026
Contact: Harpa Kolbeinsdóttir
Leikskólinn Stekkjarás leitar að sérkennara eða þroskaþjálfa í leikskóla í fullt starf.
Við leitum að áhugasömum og metnaðarfullum einstakling sem hefur reynslu af vinnu með börnum. Leikskólinn Stekkjarás er átta deilda og er staðsettur í Áslandshverfinu. Leikskólinn starfar eftir aðferðum Reggio Emilia og einkunnarorð leikskólans eru “Hugmyndir barnsins – verkefni dagsins”. Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Fríðindi í starfi
Nánari upplýsingar veitir um starfið veitir Harpa Kolbeinsdóttir, leikskólastjóri, harpako@hafnarfjordur.is, eða í síma 517-5920 og Michelle Sonia Horne, aðstoðarleikskólastjóri, michelleho@hafnarfjordur.is eða í síma 517-5920.
Umsóknarfrestur er til og með 26. júní 2026.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara eða Þroskaþjálfafélagi Íslands.
Contact: Margrét Rebekka Valgarðsdóttir
Viltu fá reynslu í verkefnastjórn í félagsmiðstöð?
Víðistaðaskóli óskar eftir að ráða í spennandi starf með börnum og unglingum í félagsmiðstöðina Hraunið sem er hluti af tómstundamiðstöð skólans. Félagsmiðstöðin býður börnum og unglingum á aldrinum 10-16 ára vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Auglýst er eftir verkefnisstjóra í félagsmiðstöðinni Hrauninu í 75% starf, með möguleika á 100% starfi ef viðkomandi tekur auka vaktir í félagsmiðstöð eða frístund.
Skemmtilegt og gefandi starf með börnum og unglingum í félagsmiðstöðinni Hrauninu.
Starf verkefnastjóra er fjölbreytt og skemmtilegt. Verkefnastjóri ber ábyrgð á að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá í samstarfi við börn og unglinga sem tekur mið af áhugamálum þeirra hverju sinni. Verkefnastjóri ber ábyrgð á öryggi og vellíðan barna og starfsfólks, skapar andrúmsloft sem einkennist af gagnkvæmri virðingu, jákvæðum samskiptum og lýðræðislegum vinnubrögðum. Verkefnastjóri vinnur náið með deildarstjóra tómstundamiðstöðvar.
Um er að ræða 75% starf með möguleika á hærra starfshlutfalli. Vinnutími er að hluta til á kvöldin á virkum dögum og dagvinna að hluta. Fjölbreyttur vinnutími í boði.
Umsóknarfrestur er til og með 12. júní 2026.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir skólastjóri, gudbjorgn@hafnarfjordur.is. eða Margrét Rebekka Valgarðsdóttir, deildarstjóri tómstundastarfs í Víðistaðaskóla, margretr@vidistadaskoli.is.
Open for applications from: 03.06.2026
Open for applications until: 17.06.2026
Contact: Ingibjörg Magnúsdóttir
Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum umsjónarkennara fyrir 5.bekk til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi. Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja. Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 525 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.
Ráðið er í stöðuna frá 1.ágúst 2026.
Nánari upplýsingar gefa Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða Margrét Lilja Pálsdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645861.
Umsóknarfrestur er til og með 17. júní. 2026
Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Open for applications from: 04.06.2026
Open for applications until: 21.06.2026
Contact: Sverrir Jörstad Sverrisson
Leikskólinn Hörðurvellir óskar eftir að ráða deildarstjóra í fullt starf,
Leikskólinn Hörðuvellir er fjögurra deilda leikskóli með um 75 börn á aldrinum ca 18 mán – 6 ára. Hörðuvellir eru á fallegum útsýnisstað í hjarta bæjarins. Umhverfis lóðina eru Lækurinn og hraunið með fallegum lautum sem kjörið er til vettvangsferða og náttúruskoðunar.
Einkunnarorð leikskólans er: LEIKUR-REYNSLA -ÞEKKING, hinn frjálsi leikur er helsta námsleið barnanna í gegnum hann öðlast börnin reynslu og þekkingin eykst með árunum. Einnig er unnið að sameiginlegu átaki innan Hafnarfjarðar sem ber heitið“ Lestur er lífsins leikur.“
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Fríðindi í starfi:
Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Starfið er laust frá 1. ágúst 2026
Upplýsingar um starfið veitir Sverrir Jörstad Sverrisson sverrirs@hafnarfjordur.is sími 5550721.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitafélaga og KÍ v/Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 21. júní 2026
Leikskólinn Stekkjarás auglýsir eftir kennara í 100% starf.
Leikskólinn Stekkjarás er átta deilda og er staðsettur í Áslandshverfinu. Leikskólinn starfar eftir aðferðum Reggio Emilia og einkunnarorð leikskólans eru “Hugmyndir barnsins – verkefni dagsins”
Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Harpa Kolbeinsdóttir leikskólastjóri, harpako@hafnarfjordur.is eða í síma 517-5920 og Michelle Sonia Horne, aðstoðarleikskólastjóri, michelleho@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 26. júní 2026
Open for applications from: 05.06.2026
Open for applications until: 18.06.2026
Contact: Guðrún Halldórsdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða glaðlynda og áhugasama starfsmenn í skammtímadvöl fyrir fötluð börn. Starfshlutfall er 30% í vaktavinnu og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur- og helgarvaktir. Unnið er aðra hvora helgi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf fyrir 1. september næstkomandi.
Unnið er eftir hugmyndafræðinni þjónandi leiðsögn.
Skammtímadvöl er fyrir fötluð börn og ungmenni og er misjafnt hvað þau dvelja lengi í senn. Hlutverk með skammtímadvöl er að veita börnum og fjölskyldum þeirra stuðning. Á meðan á dvöl stendur fá börnin og ungmennin aðstoð við sín daglegu verkefni, njóta umönnunar og afþreyingar.
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Halldórsdóttir forstöðumaður í síma: 585-5768, netfang: gudrunha@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2026
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Open for applications until: 19.06.2026
Contact: Eva Björk Jónsdóttir
Skóla- og frístundaliði – Áslandsskóli
Áslandsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 50%-100% starf á frístundaheimilið Tröllaheima.
Um er að ræða hlutastarf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í 1. – 4. bekk í frístundaheimilinu Tröllaheimum
Tröllaheimar býður upp á fjölbreytt tómstundarstarf þar sem áhersla er lögð á að bjóða upp á skipulagðar tómstundir við hæfi hvers og eins. Á skipulagsdögum skólans og virkum dögum í jóla- og páskafríi er frístundaheimilið opið frá kl. 8:00 til kl. 16:30.
Áslandsskóli var stofnaður árið 2001 og eru um 420 nemendur í skólanum. Einkunnarorð skólans eru samvinna, ábyrgð, tillitsemi og traust. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun gaum, styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda og skapa jákvæðan skólabrag.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veita Eva Björk Jónsdóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar evabjork@aslandsskoli.is eða í síma 664-5785 og Unnur Elfa Guðmundsdóttir skólastjóri, unnur@aslandsskoli.is, Hálfdan Þorsteinsson aðstoðarskólastjóri halfdanth@aslandsskoli.is eða í síma 585-4600.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 19.júní 2026
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins
Contact: Lind Einarsdóttir
Langar þig að starfa í framsækinni mannauðs- og launadeild? Deildin tilheyrir stjórnsýslusviði og og er næsti yfirmaður mannauðsstjóri. Þessi flotta deild samanstendur af 11 manna teymi sem tekst á við fjölbreytt verkefni alla daga og vinna sameiginlega að því að veita góða þjónustu tengt mannauðs- og launamálum. Núna vantar okkur kjararáðgjafa í teymið okkar og leitum við að aðila sem er talnaglöggur og hefur unnið við launavinnslu. Mikill kostur er ef þú hefur gaman af gagnagreiningu og finnst spennandi að þróa áfram með okkur t.d. PowerBI skýrslur og fleiri tól sem við erum að nýta okkur í dag.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri, linde@hafnarfjordur.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Visku.
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 2026.
Greinargóð ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Open for applications from: 08.06.2026
Open for applications until: 22.06.2026
Contact: Bjarnveig Dagsdóttir
Lækjarskóli óskar eftir að ráða tómstundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina Vitann. Ráðið er í stöðuna frá 24. ágúst 2026.Félagsmiðstöðin Vitinn býður börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Vitinn er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.
Starfið er ca. 25% og hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu, vinnutíminn er utan hefðbundins vinnutíma.
Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2026.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Lækjarskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 40 – 50% til lok skólaársins í frístundaheimilið Lækjarsel.
Ráðið er í stöðuna frá ágúst 2026.
Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Lækjarseli eftir hádegi alla virka daga. Eftir að hefðbundnum skóla lýkur geta nemendur í 1.- 4. bekk farið í frístundaheimilið Lækjarsel. Starfsemi Lækjarsels er í skólanum. Lækjarsel býður upp á fjölbreytt tómstundastarf og útiveru til klukkan 16:30, alla virka daga, óháð getu, þroska eða fötlun barna. Sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við alla hópa.
Möguleiki er á starfi á leikjarnámskeiði næsta sumar.
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Skilyrði við ráðningur er að viðkomandi sé með hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur til og með 22. júní 2026
Nánari upplýsingar fást hjá Bjarnveigu deildarstjóra tómstundamiðstöðvarinnar bjarnveig@laekjarskoli.is
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.
Contact: ernaar@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem starfsmaður í einstaklingsstuðningi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur. Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára.
Meginmarkmið með einstaklingsstuðningi er að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun í og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi. Athugið að ekki er ráðið í einungis sumarstarf.
Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.
Contact: Lars Jóhann Imsland Hilmarsson
Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða skólaárið 2026-2027.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hraunvallaskoli.is
Starfshlutfall ráðningar er 50% -70% en möguleiki er á aukningu í starfshlutfalli með því að vinna einnig í frístundaheimilinu Hraunsel/Drekasel eftir hádegi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, og Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er til og með 22. juní 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika
Hraunvallaskóli auglýsir eftir þroskaþjálfa í Fjölgreinadeild skólans
Um er að ræða 80-100% starf skólaárið 2026-2027 og ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026.
Í Fjölgreinadeild eru nemendur sem á grundvelli fjölþætts vanda geta ekki nýtt alfarið þau námstilboð sem bjóðast í þeirra heimaskóla. Starfsstöð umsjónarkennara er við Fléttuvelli á skólalóð Hraunvallskóla og er skipuð fjórum til fimm starfsmönnum.
Umsækjandi þarf að hafa jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers eins til breytinga og þróunar þar sem leitast er við að byggja á styrk hvers og eins. Einnig þarf viðkomandi hafa góða leiðtogahæfileika, víðtæka þekkingu á skólastarfi og metnaðarfulla skólasýn.
Við ráðningu er gerð krafa um hreint sakavottorð.
Launakjör eru samkvæmt samningi sambands íslenskra sveitarfélaga við ÞÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2026
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og Aðalbjörg Sigurðardóttir, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800.
Open for applications from: 01.06.2026
Open for applications until: 15.06.2026
Contact: Elísabet Karlsdóttir
Leikskólinn Bjarkalundur auglýsir eftir kennara í fullt starf.
Leikskólinn Bjarkalundur er staðsettur á Völlunum og er fjögurra deilda leikskóli sem opnaði haustið 2016. Leikskólinn lítur til starfsaðferða Reggio Emilia. Áherslur leikskólans eru snemmtæk íhlutun í starfi með börnum ásamt læsi og flæði. Unnið er samkvæmt SMT skólafærni, sem gengur m.a. út á það að veita jákvæðri hegðun athygli og styrkja hana. Gildi leikskólans eru samvinna, virðing og umhyggja. Samskipti innan skólans byggjast á þessum gildum og eiga þau að endurspeglast í öllu starfi skólans.
Í leikskólanum Bjarkalundi starfar jákvætt, áhugasamt og skemmtilegt starfsfólk þar sem áhersla er lögð á fagmennsku.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Upplýsingar um starfið veitir Elísabet Karlsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 555-4941 eða í gegnum netfangið bjarkalundur@hafnarfjordur.is.
Umsóknarfrestur er til 15. júní 2026
Contact: maria@setbergsskoli.is
Setbergsskóli auglýsir eftir skóla- og frístundaliðum með fjölbreytta hæfni og áhuga á að vinna með börnum á frístundaheimilinu Krakkabergi skólaárið 2026 – 2027. Starfshlutfall er 30-50%. Vinnutími er frá kl 13:00-16:36, alla virka daga.
Frístundaheimilið er fyrir nemendur í 1. – 4. bekk Setbergsskóla. Þar gefst færi á að lengja viðveru barna eftir að skólastarfi lýkur.
Nánari upplýsingar veita Birkir Sigurjónsson, deildarstjóri tómstundastarfs Setbergsskóla, birkirs@setbergsskoli.is og María Pálmadóttir, skólastjóri, maria@setbergsskoli.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní.
Open for applications from: 30.05.2026
Open for applications until: 13.06.2026
Öldutúnsskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á miðstigi
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026
Í Öldutúnsskóla er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti. Rík áherslu er lögð á teymisvinnu og teymiskennslu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og grundvallast starf skólans af þeim gildum. Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og samkvæmt hugmyndafræði Olweusar gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Skólinn leggur einnig ríka áherslu á umhverfismál.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir skólastjóri, í síma 664-5894, margret.sverrisdottir@oldutunsskoli.is og Áslaug Hreiðarsdóttir aðstoðarskólastjóri; aslaughr@oldutunsskoli.is.
Umsóknarfrestur er til og með 13. júní 2026
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.
Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Open for applications from: 28.05.2026
Open for applications until: 11.06.2026
Contact: lars@hraunvallaskoli.is
Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna umsjónarkennslu á yngsta stigi skólaárið 2026-2027.
Starfshlutfall er 80-100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2026.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum.
Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Umsóknarfrestur er framlengdur til 11. júní 2026.
Open for applications from: 27.05.2026
Open for applications until: 10.06.2026
Contact: Eygló Sif Halldórsdóttir
Leikskólinn Tjarnarás óskar eftir að ráða kennara í fullt starf frá 1.ágúst 2026
Leikskólinn Tjarnarás er fjögurra deilda leikskóli í Áslandinu, þar sem stutt er í ósnortna náttúruna. Helstu áherslur í starfi skólans er þátttaka, frumkvæði og sköpun barnanna þar sem frjálsi leikurinn er í fyrirrúmi. Stefna skólans tekur mið af Uppeldi til ábyrgðar og hefur Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eygló Sif Halldórsdóttir, leikskólastjóri, eyglosif@hafnarfjordur.is eða Anna Svanhildur Daníelsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri, annada@hafnarfjordur.is síma 5659710
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 10. júní 2026.
Open for applications from: 01.05.2026
Open for applications until: 30.06.2026
Contact: Maríanna Wathne Kristjánsdóttir
Vinnuskóli Hafnarfjarðar auglýsir eftir almennu sumarstarfsfólki, annars vegar í störf aðstoðarflokkstjóra í almennum garðyrkjuhópum með ungmennum og hinsvegar við almenn sumarstörf á vegum ýmissa félaga í Hafnarfirði sem eru í samstarfi við Vinnuskóla Hafnarfjarðar.
Helstu verkefni og ábyrgð.
Hæfniskröfur
Aðrar upplýsingar um starfið
Umsóknum um almenn sumarstörf í vinnuskólanum er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Vinnuskóla Hafnarfjarðar í gegnum netfangið vinnuskolinn@hafnarfjordur.is
Hraunvallaskóli auglýsir eftir grunnskólakennara til að sinna kennslu í hönnun og smíði skólaárið 2026-2027
Skólinn hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Segja má að nemendur hefji skólagöngu sína átján mánaða í Hraunvallaskóla og ljúki henni við sextán ára aldur. Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennsla er miðuð við að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem læra að skipuleggja nám sitt sjálfir og meta árangur sinn. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta – samvinna – ábyrgð.
Starfshlutfall er 50-100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars J. Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri adalbjorgs@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800
Umsóknarfrestur er framlengdur til 11. júní 2026
Open for applications from: 26.05.2026
Open for applications until: 09.06.2026
Contact: dogg@laekjarskoli.is
Lækjarskóli óskar eftir tónmenntakennara – sviðslistakennara í 100% starf
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins. Undanfarið skólaár höfum við unnið markvisst með þrjú meginmarkmið: Starfsánægju, samræmt námsmat og upplýsingatækni.
Fyrir nokkrum árum hóf Lækjarskóli innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda og fá þá til að taka virkan þátt og bera ábyrgð á eigin námi.
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn ekki hika við að hafa samband við okkur í Lækjarskóla.
Hafðu samband við Dögg Gunnarsdóttur skólastjóra, dogg@laekjarskoli.is .
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 9. júní 2026.
Contact: Pálína Hildur Sigurðardóttir
Hraunvallaleikskóli óskar eftir að ráða kennara í 100% starf.
Hraunvallaleikskóli er staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði í sama húsnæði og Hraunvallaskóli sem stuðlar að samþættu námi barnanna frá því þau stíga sín fyrstu skref í leikskóla að sextán ára aldri. Gildi skólans endurspegla allt starf og eru vinátta, samvinna og ábyrgð. í Hraunvallaleikskóla er unnið eftir hugmyndafræði John Dewey um virka þátttöku barnsins í námi með áherslu á leik og samfélagslega þátttöku barna. Í skólanum er unnið með SMT-skólafærni þar sem æskilegri hegðun er veitt aukin athygli með markvissu hrósi og umbun. Skýr fyrirmæli eru höfð að leiðarljósi og rækt lögð við góð samskipti.
Upplýsingar um starfið veitir Pálína Hildur Sigurðardóttir leikskólastjóri palinas@hraunvallaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 9. júní 2026
Contact: Guðrún Edda Bjarnadóttir
Leikskólinn Hvammur leitar að sérkennara í hlutastarf eða 100% starf.
Hvammur er 6 deilda leikskóli á skjólsælum og fallegum stað við Staðarhvamm 23 í Hafnarfirði, rétt ofan við Suðurbæjarlaug.
Einkunnarorð leikskólans eru jákvæð samskipti, jafnrétti og vinátta.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Edda Bjarnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri, gudrunedda@hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Hafnarfjarðarbæjar við Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 9.júní 2026.
Ferilskrá og leyfisbréf kennara fylgi umsókn.
Contact: Margrét Heiða Magnúsdóttir
Hvaleyrarskóli óskar eftir að ráða tómstundaleiðbeinanda í félagsmiðstöðina Verið. Ráðið er í stöðuna frá 24. ágúst 2026.
Félagsmiðstöðin Verið býður börnum og unglingum í 5. – 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði skólans eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Verið er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Heiða Magnúsdóttir, deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, í síma 664-5778 eða í gegnum netfangið margretm@hvaleyrarskoli.is
Contact: Margrét Halldórsdóttir
Engidalsskóli óskar eftir umsjónarkennara í 100% starf.
Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk. Í næsta vetur verða nemendur um 200.
Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymisvinnu og velferð og vellíðan nemenda og starfsmanna. Skólinn er heilsueflandi, flaggar Grænfána og er í innleiðingu á leiðsagnarnámi. Skólinn starfar samkvæmt Uppeldi til ábyrgðar. Við leggjum mikla áherslu á lestrarnám og er lestur eina heimanám nemenda. Við skólann er einstaklega skemmtileg skólalóð sem býður upp á fjölbreytta möguleika til leikja og útikennslu. Góður starfsandi og jákvæð samskipti eru meðal allra sem í skólanum starfa. Við leitum að fólki sem vill taka þátt í að byggja upp öflugt skólastarf með okkur
Leiðarljós skólans eru: Ábyrgð – Virðing – Vellíðan
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri, margreth@engidalsskoli.is í síma 555-4433.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn. Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Contact: Lars Jóhann Imsland
Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða UT kennsluráðgjafa, starfið er 50% en möguleiki er að auka við starfshlutfall með kennslu við skólann.
Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða tengilið farsældar barna fyrir skólaárið 2026-2027
Ráðið verður í starfið frá og með 1. ágúst og er starfið tímabundið í eitt ár. Starfshlutfall ráðningar er 50% en möguleiki er á aukningu í starfshlutfalli í öðrum störfum innan skólans s.s. kennslu.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Markmið með starfi tengiliðar farsældar barna í leik- og grunnskólum er að stuðla að því að nemendur og foreldrar sem á þurfa að halda hafi greiðan aðgang að samþættri þjónustu við hæfi.
Umsóknarfrestur er til og með 11. júní 2026.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn ásamt menntunargögnum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Open for applications from: 29.05.2026
Contact: Guðbjörg Dögg Gunnarsdóttir
Lækjarskóli auglýsir eftir kennara á yngsta stig skólaárið 2026-2027.
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband Dögg Gunnarsdóttur, skólastjóra, dogg@laekjarskoli.is
Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Contact: Hildur Arnar Bjargardóttir
Heilsuleikskólinn Hamravellir óskar eftir að ráða kennara fyrir íþróttir og útinám.
Í Heilsuleikskólanum Hamravöllum er hópur faglegra og skemmtilegra starfsmanna sem óskar eftir liðsauka. Við leitum að kennara sem sinnir íþróttakennslu og útinámi í samvinnu við aðra.
Hamravellir er staðsettur innarlega á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í ósnortna náttúru. Hamravellir er heilsuleikskóli þar sem áhersla er lögð á hollt mataræði, útiveru, hreyfingu og sköpun. Einkunnarorð leikskólans eru hreyfing, sköpun og vellíðan. Gildi leikskólans eru leikur og umhyggja.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Hildur Arnar Bjargardóttir leikskólastjóri, hildurarnar@hafnarfjordur.is eða í síma 464-4640.
Open for applications from: 09.06.2026
Open for applications until: 23.06.2026
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar auglýsir eftir rytmískum píanókennara, um 30% er að ræða. Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2026.
Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar eru um 600 nemendur og 50 kennarar.
Umsóknarfrestur er til og með 23. júní 2026.