Sérfræðingur óskast á heimili fyrir fatlað fólk – Svöluás

Apply for this job

Applications are open from: 25.06.2026

Applications are open to: 09.07.2026

Contact: Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir

Metnaðarfullur sérfræðingur óskast til framtíðarstarfa á heimili fyrir fatlað fólk.

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan sérfræðing í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks. Starfshlutfall er 80-100% og þarf viðkomandi að geta unnið allar tegundir vakta. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Vinna við gerð þjónustu- og einstaklingsáætlana í samráði við notanda og endurmat á þeim
  • Sinnir faglegu starfi í samstarfi og samráði við þjónustunotendur og forstöðumann
  • Tekur þátt í fræðslu og faglegum stuðningi við dagleg störf starfsmanna
  • Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
  • Virkja þjónustunotendur til ýmissa tómstunda
  • Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
  • Almenn heimilisstörf
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun (B.A/B.S) á sviði þroskaþjálfunar, sálfræði, uppeldisfræði, iðjuþjálfunar eða öðru viðurkenndu fagsviði sem nýtist í starfi
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki
  • Reynsla af verkefnastýringu eða utanumhaldi verkefna kostur.
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.
  • Samstarfs- og skipulagshæfileikar.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Samviskusemi, þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
  • Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum
  • Íslenskukunnátta skilyrði,  A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Birgitta Rós Skarphéðinsdóttir, forstöðumaður í síma 565-0301, netfang: birgittar@hafnarfjordur.is

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Umsóknarfrestur er til og með 9. júlí 2026.

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Other vacancies