Starfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk – Drekavellir

Apply for this job

Applications are open from: 24.06.2026

Applications are open to: 07.07.2026

Contact: Berglind Brynjarsdóttir

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett á Völlunum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og sjálfstætt líf.

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, nætur og helgarvaktir. Við erum að óska eftir starfsmanni í 80 % starfshlutfall og 40 % starfshlutfall. Viðkomandi þarf að geta hafið störf um miðjan ágúst. 

Helstu verkefni og ábyrgð: 

  • Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs 
  • Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði 
  • Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum 
  • Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum 
  • Almenn heimilisstörf 
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila 
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni 

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg 
  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks 
  • Íslenskukunnátta A2 samkvæmt samevrópska tungumálaramma
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Frumkvæði og samviskusemi 
  • Ágætis tölvukunnátta 
  • Líkamleg geta til að sinna krefjandi verkefnum á vinnustaðnum
  • Ökuréttindi skilyrði  

Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð. 

Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.  

Frekari upplýsingar um starfið Berglind Brynjarsdóttir, forstöðukona í síma: 664-5726, netfang: berglindbr@hafnarfjordur.is 

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 13.júlí 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Other vacancies