Deildarstjóri á miðstigi – Öldutúnsskóli

Apply for this job

Applications are open from: 01.05.2026

Applications are open to: 15.05.2026

Contact: Margrét Sverrisdóttir, Áslaug Hreiðarsdóttir

Öldutúnsskóli auglýsir eftir deildarstjóra á miðstigi

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Við Öldutúnsskóla stunda um 590 nemendur nám í 1.–10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á faglegt og uppbyggilegt námsumhverfi þar sem markvisst er unnið að því að efla áhuga nemenda á námi og stuðla að árangri þeirra. Þá er lögð rík áhersla á góðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti, öfluga teymisvinnu innan árgangateyma og markvissa teymiskennslu.

Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og endurspeglast þau í öllu starfi skólans. Starfið byggir meðal annars á hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og Olweusaráætlun gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Jafnframt er lögð áhersla á umhverfismál í daglegu starfi skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Leiða miðstig og hafa yfirumsjón með verkefnum innan kennslustigs
  • Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Leiða námsmatsvinnu og önnur verkefni tengd henni
  • Taka á hegðunarvanda nemenda á kennslustigi
  • Taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og mótun skólastarfs
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Starfa samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni í samræmi við starfslýsingu

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (skal fylgja umsókn)
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- eða kennslufræði er kostur
  • Farsæl kennslu- og stjórnunarreynsla í grunnskóla
  • Haldgóð þekking á kennslufræði miðstigs
  • Mjög góð þekking og reynsla af fjölbreyttu námsmati
  • Haldgóð þekking á Mentor
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námsaðlögun og samþætting
  • Þekking og reynsla af SMT er kostur
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Leiðtogafærni og hæfni til að leiða framsækið skólastarf
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Mjög góð íslenskukunnátta, að lágmarki C1 samkvæmt skv. viðmiðum Evrópska tungumálarammans

Ef starfið vekur áhuga þinn er þér velkomið að hafa samband.

Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir skólastjóri, í síma: 664-5894 eða Áslaug Hreiðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 664-5895.

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí nk.

Greinargóð ferilsskrá skal fylgja umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

 

Other vacancies