Starfsmaður vatns- og fráveitu – Umhverfis- og skipulagssvið

Apply for this job

Applications are open from: 21.04.2026

Applications are open to: 05.05.2026

Hafnarfjarðarbær leitar að starfsmanni til starfa við vatns- og fráveitu. Um er að ræða fjölbreytt vettvangsstarf þar sem unnið er að viðhaldi og eftirliti með mikilvægum innviðum bæjarins.

Leitað er að ábyrgum og lausnamiðuðum aðila sem hefur áhuga á verklegum störfum og leggur metnað í góða umgengni og samstarf. Starfið tilheyrir umhverfis- og skipulagssviði þar sem áhersla er á fagmennsku og öryggi.

Helstu verkefni og ábyrgð:  

  • Aðstoðar við viðhald og eftirlit á vélbúnaði
  • Aðstoðar við viðhald og eftirlit með lagnakerfum vatns- og fráveitu sem m.a. felst í lekaleit, að leita að rangtengingum, innrennsli og hvort verið er að setja óæskileg efni í fráveituna
  • Tekur þátt í viðhaldi, viðgerðum og eftirliti á vélbúnaði vatns- og fráveitu
  • Viðhald og eftirlit með dælustöðvum, miðlunargeymi og lokahúsum
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur: 

  • Mjög góð reynsla af sambærilegu starfi
  • Æskilegt að viðkomandi hafa lokið jarðlagnanámskeiði
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á dælum og vélbúnaði
  • Samstarfs- og samskiptahæfni og góð þjónustulund
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Almenn tölvukunnátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar
  • Góð íslenskukunnátta
  • Ökuréttindi

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri í síma 585-5500 eða í gegnum tölvupóst: gudmundure@hafnarfjordur.is  

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2026

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Other vacancies