In order to welcome you we have compiled information about your new hometown.
Get to know the town’s walking and cycling paths, activities and swimming pools but children under 18 get free access to pools.
Here you can find information about resources for children and families provided by the Municipality of Hafnarfjörður
Children and youth in Hafnarfjörður have access to good education, after-school activities and recreation activities.
Practical information about buses, waste collection, street cleaning, traffic, animal control and more.
Hafnarfjörður hopes to secure financial and social security for all residents. Find out what support is available.
Enjoy culture in Bæjarbíó cultural house, at various museums or attend exciting events.
You can stay at great hotels, hostels or at a family friendly campsite in town.
You can find a lot of outdoors activities and various recreations in Hafnarfjörður.
Check-out upcoming events, or register a new one.
Search for employees or available jobs in town.
Hafnarfjörður Town council consists of 11 municipal representatives. All town council meetings are broadcast live.
Here you can find the town's fees for children, sports and activities and support services.
Contact us with ideas, suggestions, problems or emergencies.
Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.
Applications are open from: 16.04.2026
Applications are open to: 10.05.2026
Contact: Áróra Huld Bjarnadóttir
Share this vacancy
Þroskaþjálfi óskast á heimili fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan þroskaþjálfa til starfa á heimili fatlaðs fólks frá 1.september 2026. Starfshlutfall er 80-100% og unnið er í vaktavinnu á dag-, kvöld- og helgarvöktum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hafi hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir, Áróra Huld Bjarnadóttir, forstöðumaður í síma: 585-5769, netfang: arorab@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 10. maí 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Open for applications from: 30.04.2026
Open for applications until: 14.05.2026
Contact: Pálína Hildur Sigurðardóttir
Hraunvallaleikskóli leitar að áhugasömum og metnaðarfullum deildarstjóra í 100% starf. Starfið er laust frá 4. ágúst næstkomandi.
Hraunvallaleikskóli er staðsettur á Völlunum í Hafnarfirði í sama húsnæði og Hraunvallaskóli sem stuðlar að samþættu námi barnanna frá því þau stíga sín fyrstu skref í leikskóla að sextán ára aldri. Gildi skólans endurspegla allt starf og eru vinátta, samvinna og ábyrgð. í Hraunvallaleikskóla er unnið eftir hugmyndafræði John Dewey um virka þátttöku barnsins í námi með áherslu á leik og samfélagslega þátttöku barna. Í skólanum er unnið með SMT-skólafærni þar sem æskilegri hegðun er veitt aukin athygli með markvissu hrósi og umbun. Skýr fyrirmæli eru höfð að leiðarljósi og rækt lögð við góð samskipti.
Leitað er eftir áhugasömum og ábyrgum einstaklingi sem hefur metnað fyrir starfinu.
Starfið er laust frá 4. ágúst n.k.
Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.
Fríðindi í starfi:
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, þó þeir hafi ekki kennsluréttindi.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Upplýsingar um starfið veitir Pálína Hildur leikskólastjóri palinas@hraunvallaskoli.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2026.
Open for applications from: 22.04.2026
Open for applications until: 06.05.2026
Contact: Kristinn Guðlaugsson
Hvaleyrarskóli auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum sérkennara
Í Hvaleyrarskóla eru um 370 nemendur í 1. til 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, kurteisi og samvinna sem endurspeglast í öllu skólastarfi. Í skólanum er unnið samkvæmt SMT-skólafærni þar sem áhersla er lögð á jákvæð samskipit og uppbyggilegt námsumhverfi. Hvaleyrarskóli er jafnframt heilsueflandi grunnskóli og vinnur eftir Olweusaráætluninni gegn einelti. Hvaleyrarskóli er skóli margbreytileikans þar sem lögð er rækt við fjölmenningu, skapandi starf og fjölbreyttar kennsluaðferðir.
Skólinn vinnur samkvæmt hugmyndafræði SMT, Olweus, byrjendalæsis og orð af orði ásamt áherslu á skák- og sviðslistir/danskennslu.
Nánari upplýsingar um skólann má einnig finna á heimasíðunni http://www.hvaleyrarskoli.is.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veita Kristinn Guðlaugsson, skólastjóri, kristinn@hvaleyrarskoli.is í síma 664 5833 eða Vala Stefánsdóttir, aðstoðarskólastjóri, vala@hvaleyrarskoli.is í síma 868 6859. Sími skólans er 565 0200.
Umsóknarfrestur er til 6. maí næst komandi. Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2026.
Open for applications from: 23.04.2026
Open for applications until: 07.05.2026
Contact: Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir
Við í Víðistaðaskóla leitum eftir skapandi, hugmyndaríkum og drífandi umsjónarkennara á yngsta stig skólans. Viðkomandi kennari bætist í góðan hóp annarra starfsmanna skólans. Skólinn er vel tækjum búinn og hefur yfir góðri aðstöðu að ráða.
Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn. Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda, teymisvinnu/kennslu og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.
Í Víðistaðaskóla er góður starfsandi og samheldni meðal þeirra sem í skólanum starfa.
Starfshlutfall er 100% og ráðið er frá og með 1. ágúst 2026.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veita Guðbjörg Norðfjörð Elíasdóttir skólastjóri, gudbjorgn@hafnarfjordur.is eða Valgerður Júlíusdóttir aðstoðarskólastjóri, valaj@vidistadaskoli.is.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 7. maí 2026.
Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Open for applications from: 28.04.2026
Open for applications until: 17.05.2026
Contact: sigrung@hafnarfjordur.is
Bókasafn Hafnarfjarðar óskar eftir starfsmönnum í tímavinnu um helgar.
Bókasafn Hafnarfjarðar er upplýsinga- og menningarstofnun sem ætlað er að efla frjálsan og óheftan aðgang almennings að upplýsingum og fjölbreyttu efni og viðburðum. Um er að ræða vinnu á laugardögum, sunnudögum og einstaka virkum dögum frá og með 1. júlí 2026.
Upplýsingar um starfið veitir Sigrún Guðnadóttir, forstöðumaður sigrung@hafnarfjordur.is sími 585 5691.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélaga Hafnarfjarðar (STH).
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí 2026
Open for applications until: 15.05.2026
Contact: Stella Björg Kristinsdóttir
Auglýst er eftir tómstundaleiðbeinendum í Tómstund. Um er að ræða 100% starf. Tómstund er fjölbreytt sumarnámskeið fyrir nemendur sem voru að ljúka 4.–7. bekk. Tómstund verður starfrækt í Engidalsskóla og Hraunvallaskóli á tímabilinu frá 8. júní – 17. júlí.
Helstu markmið Tómstundar eru að virkja börn í sumarfríinu, gefa þeim tækifæri á að hitta önnur börn, kynnast áhugaverðum viðfangsefnum og endurvekja gömul áhugamál. Tómstundaleiðbeinendur sjá um að skipuleggja starfið og halda fjölbreyttar smiðjur.
Skilyrði er að viðkomandi geti framvísað hreinu sakavottorði fyrir ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Stella Björg Kristinsdóttir, fagstjóri frístundastarfs og forvarna (stellabjorg@hafnarfjordur.is)
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 15.maí 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika.
Open for applications from: 29.04.2026
Metnaðarfullur sérfræðingur óskast til framtíðarstarfa á heimili fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan sérfræðing á heimili fyrir fatlað fólk í fjölbreytt og spennandi starf. Starfshlutfall er 80-100% og þarf viðkomandi að geta unnið allar tegundir vakta. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar og er starfið laust frá 1.ágúst 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir, Áróra Huld Bjarnadóttir, Forstöðumaður í síma: 585-5769, netfang: arorab@hafnarfjordur.is
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Umsókn fylgi greinargóð ferilskrá.
Contact: lars@hraunvallaskoli.is
Hraunvallaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara í Hraunborg – deild fyrir börn með einhverfu – skólaárið 2026-2027.
Starfshlutfall er 80-100%
Við erum að byggja upp nýja einhverfudeild sem leggur áherslu á einstaklingsmiðaða þjónustu, virðingu og jákvætt umhverfi fyrir börn með einhverfu og fjölskyldur þeirra. Markmið okkar er að skapa öflugt teymi starfsfólks sem vinnur saman að því að styðja hvert barn til þátttöku, þroska og vellíðunar. Deildin vinnur út frá styrkleikum barnanna og leggur áherslu á fjölbreyttar leiðir til að efla félagsfærni, nám og sjálfstæði. Við leitum að starfsfólki sem deilir okkar sýn og hefur brennandi áhuga á að taka þátt í að móta nýja starfsemi þar sem velferð og mannréttindi barnanna eru í forgrunni.
Umsækjandi þarf að hafa jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers og eins til breytinga og þróunar þar sem leitast er við að byggja á styrk hvers og eins.
Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is í síma 590-2800.
Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 14. maí 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna umsjónarkennslu á yngsta stigi skólaárið 2026-2027.
Starfshlutfall er 80-100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf 1. ágúst 2026.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og Aðalbjörg Sigurðardóttir, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800.
Umsóknarfrestur er til 14. maí 2026.
Contact: Lars Jóhann Imsland Hilmarsson
Hraunvallaskóli auglýsir eftir þroskaþjálfa.
Um er að ræða 80-100% starf skólaárið 2026-2027 og ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026.
Hraunvallaskóli starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Kennsla er miðuð við að mæta ólíkum þörfum einstaklinga sem læra að skipuleggja nám sitt sjálfir og meta árangur sinn. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum.
· Fjölbreytt nálgun í þjálfun og umsjón með nemendum í samvinnu við kennara, stoðþjónustu og foreldra
· Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við skólaþjónustu
· Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
· Taka þátt í stefnumótunarvinnu
· Önnur tilfallandi verkefni
· Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi (leyfisbréf fylgi umsókn)
· Þekkingu og reynslu af vinnu með nemendum með fjölþættan vanda
· Jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda
· Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
· Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
· Jákvæðni, sveigjanleika og góða samskiptahæfni
· Góð íslenskukunnátta. Miðað er við hæfniviðmið C1 samkvæmt viðmiðum Evrópska tungumálarammans.
Við ráðningu er gerð krafa um hreint sakavottorð.
Launakjör eru samkvæmt samningi sambands íslenskra sveitarfélaga við ÞÍ.
Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2026
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf og kynningarbréf.
Hraunvallaskóli auglýsir eftir þroskaþjálfa í Hraunborg, deild fyrir börn með einhverfu
Open for applications until: 10.05.2026
Contact: thordisru@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann í lærdómsríkt starf í Miðstöðina sem er ný sameinuð vinnu og virknimiðstöð fyrir fatlað fólk. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða spennandi, lærdómsríkt og framsækið 100% framtíðarstarf með fjölbreyttum verkefnum. Hefðbundin dagvinna frá 8- 16 eða 8:30-16:30.
Hæfniskröfur:
Frekari upplýsingar um starfið veitir Þórdís Rúriksdóttir, forstöðuþroskaþjálfi. thordisru@hafnarfjordur.is eða í síma: 565-5100
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Hraunvallaskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í 100% starf í sumarfrístund í Hraunsel og Drekasel
Um er að ræða starf sem felur í sér stuðning og aðstoð við nemendur í frístundaheimilinu Hraunseli og Drekaseli sem er frístundaheimili fyrir börn með einhverfu frá kl. 8-16:30 virka daga. Sérstök áhersla í starfinu er að koma til móts við öll börn og mikilvægt er að umsækjandi hafi jákvæða afstöðu til nemenda með fjölþættan vanda og tiltrú á getu hvers og eins.
Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.
Ráðið er í starfið frá 11. júní til 17. júlí og frá 5. ágúst til 21. ágúst.
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.hraunvallaskoli.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is, Aðalbjörg Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is og Arnbjörg Mist Ásgeirsdóttir deildarstjóri Tómstundamiðstöðvar, arnbjorga@hraunvallaskoli.is eða í síma 590 2800.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika
Contact: Lars J. Imsland
Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna umsjónar- og fagreinakennslu á unglingastigi skólaárið 2026-2027. Starfshlutfall er 100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf í 1. ágúst 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Lars Jóhann Imsland skólastjóri, lars@hraunvallaskoli.is og Aðalbjörg Sigurðardóttir, adalbjorgs@hraunvallaskoli.is, í síma 590 2800
Umsóknarfrestur er til 14. maí 2026
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öflugan starfsmann til afleysinga í lærdómsríkt starf í Miðstöðina sem er ný sameinuð vinnu og virknimiðstöð fyrir fatlað fólk. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.
Um er að ræða spennandi, lærdómsríkt og framsækið 100% starf í afleysingu til 1.árs. Hefðbundin dagvinna frá 8-16 eða 8:30-16:30.
Umsóknarfrestur til og með 10. maí 2026.
Contact: Berglind Kristjánsdóttir og Katrín Hildur Jónasdóttir
Skarðshlíðarleikskóli auglýsir eftir að ráða leikskólakennara í 100% starf
Skarðshlíðarleikskóli er nýlegur fjögurra deilda leikskóli sem uppfyllir nútímakröfur leikskólastarfs. Hann er staðsettur að Hádegisskarði 1. í einungis 4 mínútna fjarlægð frá Reykjanesbraut um Kaldárselsveg.
Hugmyndafræðilegur grunnur skólans tekur mið af lærdómssamfélagi (e. Professional Learning Community) þar sem allir læra saman og er áhersla lögð á virka þátttöku við að þróa öflugt skólastarf. Við leggjum áherslu á lýðræði, frumkvæði og lífsgleði í daglegum samskiptum og að auka leikni og færni barna í gegnum leikinn. Við viljum skapa góðan starfsanda þar sem allir fá að njóta sín og leggja sitt af mörkum. Stefna skólans tekur mið af Fjölgreindarkenningu Howards Gardners og Uppeldi til ábyrgðar.
Einkunnarorð leikskólans eru virðing, umhyggja og gleði.
Leikskólinn deilir húsnæði með grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttahúsi og bókasafni sem býður upp á mikla og spennandi möguleika á samstarfi sem er í stöðugri þróun.
Ferilskrá og leyfisbréf kennara fylgi umsókn.
Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019. Við hvetjum áhugasama til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Kristjánsdóttir berglindkrist@hafnarfjordur.is eða í síma 527 7380
Umsóknarfrestur er til 6. maí 2026
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Open for applications until: 05.05.2026
Contact: ingibjorgo@hafnarfjordur.is
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga sumarstarfsmenn í lærdómsríkt starf við þjónustu á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði sem best.
Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Um er að ræða 70%-100% starf eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.
Æskilegt er að hafa náð 20 ára aldri, en skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Ólafsdóttir, forstöðuþroskaþjálfi á netfangið ingibjorgo@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5765.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2026.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
Open for applications from: 12.01.2026
Open for applications until: 31.05.2026
Contact: ernaar@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn um starf í tímavinnu sem starfsmaður í einstaklingsstuðningi hjá Fjölskyldu- og barnamálasviði. Um er að ræða sveigjanlegan vinnutíma eftir að hefðbundnum vinnutíma lýkur. Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára.
Meginmarkmið með einstaklingsstuðningi er að veita persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun í og efla viðkomandi til sjálfsbjargar og sjálfræðis.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Hér er um að ræða umsóknargrunn sem er unnið úr ef tækifæri opnast og því er umsóknum ekki svarað sérstaklega nema til ráðningar komi.
Upplýsingar veitir Erna Aradóttir ernaar@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.
Open for applications from: 01.03.2026
Open for applications until: 31.08.2026
Contact: mannaudur@hafnarfjordur.is
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf innan grunnskóla eða tónlistarskóla, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni.
Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsóknir hér eru aðeins skoðaðar í tímabundin afleysingastörf og koma ekki til greina við úrvinnslu á störfum sem eru auglýst sérstaklega. Því hvetjum við þig til að fylgjast vel með öllum auglýstum störfum á vef Hafnarfjarðarbæjar og sækja sérstaklega um ef ákveðið starf vekur áhuga.
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Umsókn þín um afleysingarstarf er virk í sex mánuði og verður óvirk eftir þann tíma. Hægt er að óska eftir að umsókn verði óvirkjuð innan þess tíma með því að senda póst á mannaudur@hafnarfjordur.is
Umsóknum um tímabundin afleysingastörf er ekki svarað sérstaklega, en farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknin gildir ekki fyrir sumarstörf eða atvinnuátök.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf í leikskólum Hafnarfjarðar, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf. Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára. Gerð er krafa um hreint sakavottorð ásamt vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf hjá Hafnarfjarðarbæ. Hér er um að ræða önnur afleysingarstörf en í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og á sviði málefna fatlaðra. Þau störf eru auglýst sér á ráðningarsíðu.
Við leitum reglulega að starfsfólki í fjölbreytt afleysingastörf. Timabundin afleysingastörf eru ekki alltaf auglýst og þá leita stjórnendur eða mannauðsdeild í umsóknargrunni. Hér er um að ræða afleysingastörf sem ekki er ætlað að standa lengur en til 12 mánaða samfellt, s.s. vegna orlofs, veikinda, barnburðarleyfis eða námsleyfis.
Hér getur þú lagt inn umsókn í tímabundið afleysingastarf sem tengjast málefnum fatlaðra, en við leitum reglulega að starfsfólki í mjög fjölbreytt afleysingastörf.
Oft er hægt að mæta óskum um ákveðið starfshlutfall, aðlaga vinnutíma t.d að annarri vinnu eða námi eða bjóða upp á tímavinnu. Vinsamlegast taktu fram ef þú ert að leita að ákveðnu starfshlutfalli eða tímavinnu í umsókn.
Open for applications from: 15.04.2026
Open for applications until: 21.05.2026
Contact: hafsteinnv@hafnarfjordur.is
Sumarstarfsmenn sem munu starfa í þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar
Störf eru í boði í þremur mismunandi hópum og biðjum við umsækjendur um að nefna þá hópa sem þau hafa áhuga á að sækja um, í athugasemdum. Þeir hópar sem í boði eru:
· Slátturhópur
· Viðhaldshópur
· Blómahópur
Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfniskröfur
Aðrar upplýsingar um starfið
Umsóknafrestur er til og með 21. maí nk.
Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Viktorssoní gegnum netfangið hafsteinnv@hafnarfjordur.is
Open for applications from: 16.04.2026
Open for applications from: 17.04.2026
Open for applications until: 01.05.2026
Contact: Guðbjörg Dögg Gunnarsdóttir
Lækjarskóli auglýsir eftir tveimur þroskaþjálfum (þroskaþjálfateymi) í 80 – 100% starf skólaárið 2026-27
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Lækjarskóli hefur verið í innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn ekki hika við að hafa samband við okkur í Lækjarskóla.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Dögg Gunnarsdóttur, skólastjóra, dogg@laekjarskoli.is eða Björgvin Sigurbjörnsson bjorgvin@laekjarskoli.is
Umsóknarfrestur er til og með 1. maí 2026.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Þroskaþjálfafélag íslands.
Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Open for applications from: 20.04.2026
Open for applications until: 04.05.2026
Lækjarskóli auglýsir eftir kennara á yngsta eða miðstigi skólaárið 2026-2027.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband Dögg Gunnarsdóttur, skólastjóra, dogg@laekjarskoli.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2026.
Open for applications from: 21.04.2026
Contact: Guðrún Halldórsdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða glaðlynda og áhugasama starfsmenn í skammtímadvöl fyrir fötluð börn. Viðkomandi þarf að geta unnið morgun, kvöld, nætur og helgarvaktir. Við erum að leita að starfsfólki í tímabundið starf í sumar. Við leitum eftir starsmanni sem getur hafið störf sem fyrst og starfað hjá okkur í sumarstarfi. Starfshlutfall eftir samkomulagi.
Unnið er eftir hugmyndafræðinni þjónandi leiðsögn.
Skammtímadvöl er fyrir fötluð börn og ungmenni og er misjafnt hvað þau dvelja lengi í senn. Hlutverk með skammtímadvöl er að veita börnum og fjölskyldum þeirra stuðning. Á meðan á dvöl stendur fá börnin og ungmennin aðstoð við sín daglegu verkefni, njóta umönnunar og afþreyingar.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Halldórsdóttir forstöðumaður í síma: 585-5768, netfang: gudrunha@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2026
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær leitar að starfsmanni til starfa við vatns- og fráveitu. Um er að ræða fjölbreytt vettvangsstarf þar sem unnið er að viðhaldi og eftirliti með mikilvægum innviðum bæjarins.
Leitað er að ábyrgum og lausnamiðuðum aðila sem hefur áhuga á verklegum störfum og leggur metnað í góða umgengni og samstarf. Starfið tilheyrir umhverfis- og skipulagssviði þar sem áhersla er á fagmennsku og öryggi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri í síma 585-5500 eða í gegnum tölvupóst: gudmundure@hafnarfjordur.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 5. maí 2026
Contact: fanney@hafnarfjordur.is
Hefur þú ástríðu fyrir eflingu málþroska? Við viljum heyra frá þér!
Skrifstofa Mennta- og lýðheilsusviðs óskar eftir talmeinafræðingi til að koma að markvissri, samþættri þjónustu. Áhersla er lögð á gott samstarf milli fagfólks og þverfaglega nálgun til að tryggja farsæld barna. Á mennta- og lýðheilsusviði ríkir faglegt umhverfi þar sem metnaður, traust og lausnamiðuð vinnubrögð eru í fyrirrúmi, auk þess sem starfsfólk fær stuðning og tækifæri til þróunar, meðal annars með fræðslu og endurmenntun. Lögð er áhersla á sterk tengsl við skólasamfélagið, foreldra og aðra samstarfsaðila, bæði innan og utan sveitarfélagsins. Talmeinafræðingar mennta- og lýðheilsusviðs tilheyra deild ráðgjafar- og greiningar.
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Upplýsingar veitir Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs fanney@hafnarfjordur.is
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.
Contact: Kristín Anna Th. Jensdóttir
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga starfsmenn til sumarafleysinga í lærdómsríkt starf á heimili fatlaðs fólks, staðsett í Berjahlíð. Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar, með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Spennandi og skemmtilegt starf með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Starfshlutfall er 60-85% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og skilyrði er að hafa hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Anna Th. Jensdóttir forstöðumaður í síma 585-5761 eða á netfanginu kristinj@hafnarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með 6. maí 2026.
Open for applications from: 01.05.2026
Contact: Margrét Sverrisdóttir, Áslaug Hreiðarsdóttir
Við Öldutúnsskóla stunda um 590 nemendur nám í 1.–10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á faglegt og uppbyggilegt námsumhverfi þar sem markvisst er unnið að því að efla áhuga nemenda á námi og stuðla að árangri þeirra. Þá er lögð rík áhersla á góðan starfsanda, fjölbreytta kennsluhætti, öfluga teymisvinnu innan árgangateyma og markvissa teymiskennslu.
Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan og endurspeglast þau í öllu starfi skólans. Starfið byggir meðal annars á hugmyndafræði SMT um jákvæða skólafærni og Olweusaráætlun gegn einelti og andfélagslegri hegðun. Jafnframt er lögð áhersla á umhverfismál í daglegu starfi skólans.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Ef starfið vekur áhuga þinn er þér velkomið að hafa samband.
Nánari upplýsingar veita Margrét Sverrisdóttir skólastjóri, í síma: 664-5894 eða Áslaug Hreiðarsdóttir, aðstoðarskólastjóri í síma 664-5895.
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí nk.
Greinargóð ferilsskrá skal fylgja umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.